Eldsnöggur, ósvífinn og óstöðvandi

Kappakst­ursöku­þórar hafa það orð á sér að vera leið­in­legir í við­tölum, þurrir á mann­inn og gefa lítið af sér. Það verður þó seint sagt um Sebast­ian Vettel sem vann fjórða heims­meist­ara­titil sinn í röð þetta keppn­is­tíma­bilið í Formúlu 1. Hann skaut keppi­nautum sínum ref fyrir rass, sigr­aði í síð­ustu níu mót­unum og bætti í leið­inni met Michaels Schumacher um flesta sigra í röð á einu tíma­bili.

En lífið hefur ekki verið dans á rósum fyrir Vettel síðan hann þreytti frumraun sína í Banda­ríkj­unum árið 2007. Hæfi­leika sína hefur hann ræktað og upp­skorið með gríð­ar­lega mik­illi vinnu, aga og dóm­greind, eins og Þjóð­verjum er einum lagið.

Það er samt ekki svo að hann sé um leið orð­inn besti öku­þór allra tíma. Til þess þarf hann meiri tíma. Goð­sögnin Jackie Stewart hefur til dæmis bent á að til þess að stimpla sig end­an­lega inn sem einn af þeim bestu þurfi Vettel að skipta um lið og byrja aftur frá grunni í Formúlu 1. Dreng­ur­inn er samt sem áður kom­inn í hóp fjög­urra bestu, með fjóra titla á bak­inu.

Lesið nýja Kjarnann til að upp­lifa gagn­virka umfjöllun um Sebast­ian Vettel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár