Viðurkennir að skattbyrði tekjulágra hafi aukist en segir skattbyrðisprósentur og bótafjárhæðir ekki skipta máli

Forsætis­ráðherra segir að ráðstöfunar­tekjur segi meira um lífskjör en skatt­byrði.

Bjarni Benediktsson forsætis­ráðherra viðurkennir að skatt­byrði tekju­lægstu fjöl­skyldna hafi þyngst frá 1998 meðan Sjálfstæðis­flokkurinn hefur lengst af farið með lykla­völdin í fjármála­ráðuneytinu. Hins vegar segir hann að fjárhæð bóta og skattbyrðis­prósentur skipti ekki máli fyrir velferð launa­fólks heldur einungis þróun ráðstöfunar­tekna. Þetta kom fram í stefnu­ræðu hans sem hann flutti á Alþingi rétt í þessu.

„Nýlega kom út skýrsla um skatt­byrði launa­fólks frá því um aldamótin. Horft var aftur til ársins 1998. Niður­staðan var sú að skatt­byrði hefði aukist, sér í lagi hjá þeim tekju­lægstu. Og þetta kann að vera rétt en breytir ekki því að annað sjónar­horn segir miklu meiri sögu. Við mælum framfarir og lífskjara­sókn mun betur með því að horfa á þróun ráðstöfunar­tekna en skatt­byrði,“ sagði Bjarni og bætti við: „Frá árinu 1998 hafa ráðstöfunar­tekjur sambúðar­aðila á lágmarks­launum með tvö börn hækkað um u.þ.b. þriðjung á föstu verðlagi. Það er semsagt mun auðveldara að fram­fleyta sér í dag en það var árið 1998, jafnvel þótt hægt sé að sýna fram á að skatt­byrði einstakra tekjuhópa hafi breytt til hins verra. Ég leyfi mér að benda á þetta því það sem skiptir máli fyrir velferð launa­fólks er ekki fjárhæð bóta eða skattbyrðis­prósentur – heldur þær krónur sem fólk hefur milli handanna. Það er það sem málið snýst um. Krónunum hefur líka fjölgað. Kjörin hafa batnað. Og þau hafa batnað með svipuðum hætti hjá öllum tekju­hópum.“

Stundin fjallaði umtals­vert um skatt­byrði mismun­andi tekjuhópa fyrir síðustu þing­kosningar. Þann 22. október síðastliðinn birti blaðið ítarlega úttekt þar sem rakið var hvernig bein skatt­byrði lágtekju- og milli­tekjuhópa jókst í ríkis­stjórnartíð Sjálfstæðis­flokksins og Framsóknar­flokksins á tíma­bilinu 2013 til 2016. Þá var farið yfir ójafna dreifingu aukinna ráðstöfunar­tekna milli tekjuhópa. Með því að núvirða tölur Hagstofunnar um aukningu ráðstöfunar­tekna mismun­andi tekjuhópa og skoða í samhengi við fjölda fólks í hverjum hópi mátti sjá að ráðstöfunar­tekjur þeirra 10 prósenta lands­manna sem höfðu mestar tekjur höfðu aukist um 14 prósent frá árinu 2013. Ráðstöfunar­tekjur 9. tíundarinnar jukust um 8 prósent, 8. tíundarinnar um 7 prósent, 7. tíundarinnar um 6 prósent og 6. tíundarinnar um 5 prósent. 

Svona dreif­ist skatt­byrðin.Úr umfjöllun Stund­ar­innar frá því í fyrra.

ASÍ birti svo ítarlega skýrslu um þróun skatt­byrði launa­fólks þann 28. ágúst. Niður­staða skýrslunnar er sú að skatt­byrði allra tekjuhópa hafi aukist á tíma­bilinu 1998 til 2016 en aukningin sé mest hjá þeim tekju­lægstu. „Þegar skoðað er samspil tekju­skatts, útsvars og persónu­afsláttar auk barna- og vaxtabóta hefur t.d. skatt­byrði para á lágmarks­launum með tvö börn og lágmarks eigið fé í húsnæði (20%) í heildina aukist um 21 prósentu­stig á umræddu tímabili,“ segir í samantekt á niður­stöðum skýrslunnar. „Munurinn á skatt­byrði tekju­lægstu hópanna og þeirra tekju­hærri hefur því minnkað og dregið hefur úr tekju­jöfnunar­hlutverki skatt­kerfisins. Kaupmáttar­aukning síðustu ára hefur þannig síður skilað sér til launa­fólks með lægri tekjur en þeirra tekju­hærri vegna vaxandi skatt­byrði.“

Megin­ástæðurnar eru þær að persónu­afsláttur hefur ekki fylgt launa­þróun. Þá hefur stuðningur vaxta­bóta­kerfisins og stuðningur við leigjendur minnkað verulega vegna þess að bóta­fjárhæðir og skerðingar­mörk hafa ekki hækkað í takt við laun og fasteigna­verð. 

Bjarni Benediktsson impraði á því að ekkert ríki mældist með meiri launa­jöfnuð en Ísland samkvæmt árlegri úttekt OECD á jöfnuði meðal þjóða. „En því er engu að síður haldið fram að launa­ójöfnuður sé sjálfstætt vandamál og vaxandi. En sá málflutningur stenst enga skoðun eins og niður­stöður OECD bera skýrt með sér. Það væri nær að beina sjónum að tækifærum til aukinnar verðmæta­sköpunar,“ sagði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár