Á bálið með byggingateikningarnar

Fyrir nokkru kom fram í þætti í danska útvarpinu að starfs­fólk danskra sveitar­félaga hefði brennt margar gamlar bygginga­teikningar. Viðbrögðin voru hörð.

Í umræðu­þætti í danska útvarpinu, DR, fyrir nokkrum vikum nefndi einn viðmælenda, eiginlega í fram­hjáhlaupi, að starfs­menn Borgar­skjalasafns Kaupmanna­hafnar væru að brenna gamlar bygginga­teikningar. Stjórn­andi þáttarins hjó eftir þessum ummælum, rann­sakaði málið og komst að því, sér til undrunar, að dönsk sveitar­félög hafa á síðustu árum brennt, í stórum stíl, gamlar bygginga­teikningar. Þetta mál var svo rætt í áður­nefndum þætti, viku eftir að fyrst var á þetta minnst. Dönsku dagblöðin, ásamt útvarps- sjónvarps­stöðvum hafa að undan­förnu fjallað talsvert um þetta mál, sem vakið hefur mikla athygli.

Stjórnmálamennirnir hrukku við

Sváfu stjórn­mála­mennirnir, hvernig getur svona gerst, Kaup­mann­hafnarborg brennir söguleg skjöl, stóra skjala­brennan!

Þessar fyrir­sagnir og fleiri í sama dúr hefur að undan­förnu mátt sjá á forsíðum danskra blaða og netmiðla.

Þótt stjórn­mála­mennirnir hafi kannski ekki beinlínis sofið virðist sem hvorki ráðherrum, bæjar­stjórum, þing­mönnum né bæjar­stjórnar­fólki víða um land hafi verið kunnugt um skjala­brennuna. Morten Kabell, borgar­stjóri umhverfis­mála í Kaupmanna­höfn, brást við um leið og hann frétti af málinu og fyrir­skipaði, í samráði við menningar­borgar­stjórann Carl Christian Ebbesen, að samstundis skyldi hætt að brenna teikningar, að minnsta kosti meðan verið væri að athuga málið. Mette Bock menningar­mála­ráðherra kom líka af fjöllum, í viðtali við Danska sjón­varpið sagðist hún ekki haft hugmynd um þetta mál fyrr en hún sá umfjöllun fjölmiðla. „Ég er ekki sérfræðingur, en það hljómar undarlega að menn hafi valið að eyði­leggja frum­teikningar með þessum hætti. Sveitar­félaginu (Kaupmanna­höfn), og engu sveitar­félagi reyndar, ber ekki skylda til að gera slíkt. Ég veit ekki af hverju Kaupmanna­hafnarborg hefur valið þessa leið en kemur mér á óvart.“

Hvaða skjöl er verið að brenna og af hverju?

Í áður­nefndum umræðu­þætti í danska útvarpinu kom fram að það væru bygginga­teikningar sem borgar­starfsmenn og starfs­menn margra sveitar­félaga víða um kepptust nú við að moka á eldinn. Enn fremur var spurt af hverju þetta væri gert og hver hefði tekið ákvörðun um að brenna skjölin og ekki síst hvaða skjöl mætti brenna og hver skyldu varðveitt.

Fram hefur komið að bygginga­teikningar og tilheyrandi pappírar hafi, í Kaupmanna­höfn einni, fyllt tíu þúsund hillu­metra, tíu kílómetra. Tæpum þriðjungi þessara skjala hefur nú verið eytt. Starfs­menn Borgar­skjala­safnsins (þar sem alltaf vantar pláss) sögðu að ákvörðun um að brenna hluta skjala­safnsins hefði verið tekin, að vel ígrunduðu máli, í samráði við Ríkis­skjala­safnið. Mótaðar hefðu verið vinnu­reglur um hvað skyldi varðveitt og hverju væri óhætt að farga. Eftir þessum reglum hefði verið farið í einu og öllu og öll skjöl sem vafi léki á hvort rétt væri að varðveita væru borin undir starfs­menn Ríkis­skjala­safnsins. Megin­reglan er sú að teikningar sem eru yngri en frá árinu 1850 og ekki hafa „sérstakt gildi“ (eins og það er orðað) skuli bornar á bálið.

En hvað er „sérstakt gildi“? Er það vegna þess að viðkomandi bygging varð þekkt kenni­leiti, ólík öllum öðrum, dæmi um stíl þekkts arkitekts eða hvað?

Allt varðveitt, á stafrænu formi

Starfs­menn Borgar­skjala­safnsins eru hægt og rólega að fikra sig, ef svo mætti segja, í gegnum skjala­kílómetrana tíu. Hvert einasta skjal er myndað, að sögn með fullkomnustu tækni sem völ er á og varðveitt þannig. Skjölin eru sem sagt ekki að öllu leyti töpuð þótt frumskjalið hafi endað á bálinu. Samtímis mynda­tökunni er allt skráð vel og vandlega þannig að auðvelt ætti að reynast að finna viðkomandi skjal þegar, og ef, á þyrfti að halda. En er þetta ekki bara jafngott og jafnvel betra en einhver gulnaður pappír kynni nú einhver að spyrja.

Tölvumynd er ekki það sama og frummynd

Sagn­fræðingar og safnafólk hefur í viðtölum lagt á það áherslu að þótt gott sé og blessað að eiga teikningar í tölvutæki formi komi það ekki í stað frum­teikninganna. Sama hversu góð tölvu­myndin sé. „Eftir­prentun af málverki getur verið mjög góð, en hún verður aldrei annað en eftir­prentun“ sagði sagn­fræðingur í viðtali í dagblaðinu Politiken. Margir viðmælendur fjöl­miðlanna hafa talað á sömu nótum. Þar að auki sé engan veginn hægt að treysta því að ekki geti eitthvað orðið til þess að tölvu­myndirnar tapist, annað eins hafi nú gerst.

Eigendur mega ekki fá frumteikningarnar til eignar

Ofanvert við Löngulínu í Kaupmanna­höfn er Kastellet, Friðriks­virki. Elsti hluti þess er frá 17. öld og var eins og nafnið gefur til kynna virki, hluti bygginganna voru síðar notaðar sem fangelsi. Friðrikisvirkið er í dag í umsjón hersins og varnarmála­ráðuneytisins. Ráðuneytið óskaði eftir því við borgina að það fengi allar þær teikningar sem til eru af Friðriks­virkinu. Ekki gat borgin orðið við þessari beiðni sökum þess að samkvæmt reglum Þjóð­skjala­safnsins er ekki heimilt að afhenda til eignar upprunalegar teikningar. Skiptir engu hver á í hlut. Einn af yfir­mönnum Þjóð­skjala­safnsins benti hinsvegar á að ef Varnarmála­ráðuneytið hefði óskað eftir að fá teikningarnar af Friðriks­virki að láni, jafnvel til margra ára, hefði ekkert verið því til fyrir­stöðu.

Hefur margt merkilegt endað á bálinu?

Þessari spurningu gátu starfs­menn Borgar­skjala­safnsins ekki svarað öðruvísi en þannig að við ákvarðanir hefði verið fylgt leið­beiningum Þjóð­skjala­safnsins. Blaðamenn komust að því að meðal þess sem hefði endað á bálinu væru teikningar af Grundtvigskirkjunni í Kaupmanna­höfn, einu þekktasta guðshúsi borgarinnar. Grundtvigskirkjan var nítján ár í byggingu, vígð 1940. Hún var byggð eftir teikningum P.V. Jensen Klint, hann lést árið 1930 og sonurinn Kaare Klint, sem unnið hafði með föður sínum, teiknaði hluta innréttinganna, þar á meðal altarið og prédikunar­stólinn. Að mati sérfræðinga var ekki ástæða til að varðveita frum­teikningar Klint feðganna.

Ekki bara brennt í Kaupmannahöfn

Það er ekki einungis í Kaupmanna­höfn sem bygginga­teikningar hafa orðið eldinum að bráð. Sömu sögu er að segja víða um land, ekki þó alls staðar. Í Vordingborg á Suður- Sjálandi höfðu starfs­menn skjala­safnsins til dæmis lokið við að mynda alla pappíra og voru í þann mund að kveikja á ofninum þegar fréttirnar frá Kaupmanna­höfn bárust. Starfs­maður safnsins sagði að í þetta sinn hefði komið sér vel að vera á seinni skipunum “annars væri þetta allt orðið að ösku.“ Sums staðar hefur verið tekin ákvörðun um að mynda allt en geyma teikningarnar, eins og verið hefur.

Óvíst hvort haldið verður áfram að brenna

Í Kaupmanna­höfn og annars staðar hefur, eins og áður var getið, verið slökkt á brennslu­ofnunum. Hvort kveikt verður á þeim aftur hefur ekki verið ákveðið en í ljósi þess hve mikla og neikvæða athygli „brennslan“ hefur fengið verður það að teljast ólíklegt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár