Fjölmiðlafrelsi mest hjá þeim ríkjum þar sem einkareknir fjölmiðlar eru styrktir

Ísland hefur fallið ár frá ári á lista alþjóðlegra samtaka um fjölmiðla­frelsi, úr 10. í 16. sæti á nokkrum árum. Þau lönd sem skipa efstu sæti þess lista eru nágranna­lönd okkar. Þau hafa öll í lengri tíma styrkt einka­rekna fjölmiðla með opinberu fé.

Alþingi hefur skilað auðu þegar kemur að því að bæta rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla á undanförnum árum.
Alþingi hefur skilað auðu þegar kemur að því að bæta rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla á und­an­förnum árum. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Í efsta sæti vísi­töl­u Blaða­manna án landamæra um fjölmiðla­frelsi, fimmta árið í röð, er Noregur. Finn­land er í öðru sæti, Dan­mörk í þriðja sæti og Sví­þjóð í fjórða sæti.

Ísland situr hins vegar í 16. sæti á lista samtak­anna og fellur um eitt sæti á milli ára.

Athygli vekur að í öllum þessum ríkjum er umfangs­mikill ríkis­stuðningur við einka­rekna fjölmiðla.

Hérlendis hefur staðið yfir ferli um að koma á slíku styrkja­kerfi frá árinu 2016. Fyrst var skipuð nefnd, svo var rituð skýrsla, þá var unnið úr tillögum hennar og loks smíðuð frumvörp. Ekkert þeirra hefur náð í gegn nú tæpum fimm árum eftir að ferlið hófst, aðallega vegna þess að hluta þingmanna Sjálfstæðis­flokksins eru á móti styrkja­kerfi fyrir einka­rekna fjölmiðla. Síðasta útgáfa frum­varpsins situr nú föst inni í allsherjar- og menntamála­nefnd þangað sem henni var vísað eftir að Lilja D. Alfreðs­dóttir, mennta- og menningar­mála­ráðherra, fékk að mæla fyrir málinu seint á síðasta ári.

Svipað og fyrri frumvörp

Frum­varpið er í grunn­inn með svip­uðu sniði og tvö fyrri frum­vörp sem Lilja lagði fram til þings­ins, eftir að þau höfðu verið sam­þykkt í rík­is­stjórn og þing­flokkum stjórn­ar­flokk­anna þriggja. Það felur í sér að einka­reknir fjöl­miðlar á Íslandi verði styrktir um tæpar 400 millj­ónir króna á ári úr rík­is­sjóði.

Styrkirnir til fjöl­miðla eiga að verða í formi end­ur­greiðslna vegna launa­kostn­aðar fjöl­miðla­fólks og útfærslan svipuð og í einskiptis­styrkjum sem fjöl­miðlar fengu til þess að takast á við áhrif kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins á síð­asta ári.

Í bæði fyrri skiptin sofn­uðu frum­vörp Lilju svefn­inum langa í alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd Alþing­is, sem Páll Magn­ús­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins stýr­ir.

Ísland eina norræna ríkið sem veitir ekki stuðning

Í grein­ar­gerð með frum­varpi Lilju um stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla er dregið fram að Ísland er eina nor­ræna ríkið sem ekki veitir beina eða óbeina styrki til einka­rek­inna fjöl­miðla.

„Í Finn­landi eru veittir styrkir til frétta­blaða sem gefin eru út á tungu­málum minni­hluta­hópa. Víð­tæk­ari fram­leiðslu- og dreif­ing­ar­styrkir eru veittir í Nor­egi og Sví­þjóð. Í Dan­mörku er ann­ars konar styrkja­kerfi þar sem stuðn­ingur er veittur til fram­leiðslu rit­stjórn­ar­efnis á prent­uðu formi fyrir smærri fjöl­miðla með útbreiðslu á lands­vísu auk þess sem netmiðlum er veittur stuðn­ing­ur. Í Dan­mörku er einnig veittur verk­efna­styrkur vegna stofn­unar nýrra fjöl­miðla og þró­unar þeirra miðla sem fyrir eru á mark­aðn­um,“ ­segir í grein­ar­gerð­inni.

Þar segir enn fremur að á Norð­ur­lönd­unum hafi mikil umræða átt sér stað um að styrkja einka­rekna fjöl­miðla enn frekar til að þeir nái að fóta sig í heimi þar sem færri og færri kjósa að greiða fyrir fréttir og sam­fé­lags­miðlar hirða stóran hluta aug­lýs­inga­kök­unn­ar.

Mestur stuðningur í Noregi

Mestur er stuðningurinn í Noregi, því landi þar sem fjölmiðla­frelsi mælist mest í heiminum. Styrkja­kerfið hefur því ekki leitt til þess að fjöl­miðlar hafi orðið handgengnari valdinu þar líkt og þingmenn Sjálfstæðis­flokks og Miðflokks hafa ítrekað haldið fram að muni gerast hér ef fjöl­miðlar verði styrktir úr ríkis­sjóði.

Í Noregi er enn fremur vilji til að auka við opinbera styrki frekar en að draga úr þeim enda hefur reynslan af þeim verið jákvæð. Hinn 7. mars 2017 skilaði nefnd sem skipuð var af norskum stjórn­völdum hvítbók sem innihélt tillögur til að efla fjölmiðla þar í landi. Meðal þeirra tillagna sem settar voru fram í hvít­bókinni var að auka styrk­veitingar til smærri fjölmiðla, einfalda umsóknar­ferlið og gæta jafnræðis milli fjölmiðla óháð því hvernig efni er miðlað. Tillögurnar eru enn til meðferðar hjá norskum stjórn­völdum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár