Óli Björn og Brynjar leggja fram frumvarp um að taka RÚV af auglýsingamarkaði

Tveir þingmenn Sjálfstæðis­flokksins vilja að RÚV hætti þátttöku á auglýsinga­markaði í tveimur skrefum án þess að RÚV yrði bætt upp tekju­tapið. Þingmaður Vinstri grænna segist klóra sér í kollinum yfir frum­varpinu.

Óli Björn Kárason og Brynjar Níelsson eru einu þingmennirnir sem eru á frumvarpinu.
Óli Björn Kárason og Brynjar Níelsson eru einu þing­menn­irnir sem eru á frum­varp­inu. Mynd: Bára Huld Beck

Óli Björn Kárason og Brynjar Níelsson, þingmenn Sjálfstæðis­flokksins, hafa lagt fram frumvarp sem leggur til að RÚV verði tekið af auglýsinga­markaði í tveimur skrefum. Það á, að þeirra mati, að gera til að styrkja stöðu einka­rekinna fjölmiðla og gera RÚV kleift að einbeita sér að menningar­hlutverki sínu.

Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður Vinstri grænna, sem leiðir starfshóp stjórnar­þingmanna sem er ætlað að sætta ólík sjónarmið um starfsemi RÚV, klórar sér í hausnum yfir frum­varpinu. Hann segir ályktanir Óla Björns og Brynjar um hvernig eigi að styrkja einka­rekna fjölmiðla benda til þess að þeir séu ekki staddir í nútímanum. Þess í stað séu þeir „fastir í eigin kreddum.“

Aukið svigrúm fyrir menningarlegt hlutverk

Frumvarp þing­mannanna tveggja gengur út á að frá byrjun næsta árs og út árið 2023 verði RÚV gert óheimilt að stunda beina sölu á auglýsingum, hlutfall auglýsinga megi ekki fara yfir fimm mínútur á hvern klukku­tíma í útsendingar­tíma, óheimilt verði að slíta í sundur dagskrár­liði með auglýsingum og bannað að selja kostun á efni. Þátttöku RÚV á auglýsinga­markaði verði svo hætt í byrjun árs 2024.

Ekki er gert ráð fyrir því að RÚV verði bætt það tekjutap sem fyrir­tækið yrði fyrir vegna þessa með öðrum hætti, en tekjur RÚV af samkeppnis­rekstri voru 2,2 milljarðar króna árið 2019.

Í greinar­gerð með frum­varpinu segja þeir Óli Björn og Brynjar að með því að draga RÙV af auglýsinga­markaði fái fyrir­tækið aukið svigrúm til að sinna því menningar­lega hlutverki sem því er ætlað samkvæmt lögum. „Um það verður vart deilt að frjáls fjöl­miðlun á Íslandi stendur höllum fæti. Á sama tíma og samkeppnis­staðan er skekkt með lögverndaðri yfirburða­stöðu Ríkis­útvarpsins standa einka­reknir innlendir fjöl­miðlar frammi fyrir harðri sókn alþjóðlegra stór­fyrirtækja inn á auglýsinga­markaðinn.“

Eru á móti styrkjakerfi

Þing­mennirnir tveir telja augljóst að samkeppnis­rekstur ríkisins á auglýsinga­markaði fjölmiðla hafi verulega neikvæð áhrif á rekstur og fjárhag sjálf­stæðra fjölmiðla sem flestir standi höllum fæti.

Takmörkun á umsvifum og síðar bann við samkeppnis­rekstri á sviði auglýsinga og kostunar ætti því að mati Óla Björns og Brynjars að bæta hag sjálf­stæðra fjölmiðla. „Óvarlegt er að ætla að þær tekjur sem ríkis­fyrirtækið hefur haft af sölu auglýsinga og kostunar komi óskertar í hlut sjálfstætt starfandi fjölmiðla eftir 1. janúar 2024. Þó má ætla að tekjur sjálf­stæðra fjölmiðla aukist verulega og mun meira en gert er ráð fyrir í frumvarpi mennta- og menningar­mála­ráðherra um ríkis­stuðning við einka­rekna fjölmiðla[...]Flutnings­menn telja að skynsamlegra sé að styrkja stöðu einka­rekinna fjölmiðla með því að takmarka verulega samkeppnis­rekstur ríkisins fremur en að koma upp flóknu kerfi milli­færslna og ríkis­styrkja. Slíkt stuðlar að auknu heil­brigði á fjölmiðla­markaði.“

„Fastir í eigin kreddum“

Í febrúar fól Lilja Alfreðs­dótt­ir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, þremur full­trúum rík­is­stjórn­ar­flokk­anna að rýna lög um RÚV og gera til­lögur að breyt­ingum sem lík­legar eru til að sætta ólík sjón­ar­mið um starf­semi og hlut­verk þess.

Full­trúar flokk­anna eru Kol­beinn Ótt­ars­son Proppé, full­trúi Vinstri grænna sem er jafn­framt for­maður hóps­ins, Silja Dögg Gunn­ars­dótt­ir, full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Páll Magn­ús­son, full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi útvarps­stjóri.

Ráð­gert var að þau myndu ljúka störfum eigi síðar en 31. mars, eða í gær. Af því varð ekki og Kolbeinn segir í samtali við Kjarnann að vinnu hópsins muni ljúka fljótlega eftir páska.

Hann gagnrýnir það að Óli Björn og Brynjar hafi lagt fram ofan­greint frumvarp á sama tíma og vinna hópsins stendur yfir. „Ég klóra mér í kollinum yfir þessu. Mér finnst mjög furðulegt að leggja fram svona mál á meðal að ég sit með öðrum þingmanni þeirra flokks í starfs­hópi þar sem við erum að fara yfir þessi mál, þar á meðal þátttöku RÚV á auglýsinga­markaði.“

Kolbeinn segist þá hugmynd Óla Björns og Brynjars að ætla að styrkja stöðu einka­rekinna fjölmiðla einungis með því að draga RÚV út af auglýsinga­markaði ekki ganga upp. „Ályktunin sem þeir draga varðandi leiðir til að styrkja einka­rekna fjölmiðla benda til þess að þeir séu ekki staddir í nútímanum og því fjölmiðla­umhverfi sem við búum við, heldur fastir í eigin kreddum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár