Gert ráð fyrir styrkjum til einkarekinna fjölmiðla næstu árin í fjármálaáætlun

Þrátt fyrir að frumvarp um styrki til einka­rekinna fjölmiðla sé enn til meðferðar hjá allsherjar- og menntamála­nefnd þá er gert ráð fyrir því að styrkirnir verði lögfestir í fjármála­áætlun ríkis­stjórnarinnar.

Í nýframlagðri fjármála­áætlun ríkis­stjórnarinnar er gert ráð fyrir að framlög til fjöl­miðlunar úr ríkis­sjóði hækki ár frá ári út árið 2025, en standi svo í stað í krónum talið á árinu 2026. Hækkunin á næsta ári er upp á tæplega fimm prósent, árið eftir verður hún um fjögur prósent og svo þrjú prósent milli áranna 2024 og 2025. Árið 2026 er gert ráð fyrir að framlög úr ríkis­sjóði til fjöl­miðlunar verði fimm milljónum krónum lægri en árið áður á verðlagi ársins 2021. Þegar búið er að taka tillit til þess að verðlags­breytingar munu óumflýjanlega verða á tíma­bilinu liggur fyrir að framlög til mála­flokksins verða skert á því tímabili sem fjármála­áætlun nær yfir.

Á fjárlögum ársins 2021 var 5.138 milljónum króna veitt til fjöl­miðlunar. Sú upphæð skiptist þannig að RÚV fær 4.746 milljónir króna og 392 milljónir króna voru áætlaðar í styrkja­greiðslur til einka­rekinna fjölmiðla. Frumvarp um styrkja­greiðslurnar hefur verið lagt fram og er nú til meðferðar hjá allsherjar- og menntamála­nefnd. Heimildir Kjarnans herma að væntingar séu til þess að frum­varpið verði afgreitt úr nefndinni fljótlega, og geti þá farið til annarrar umræðu í þinginu.

Áætlunin gerir ráð fyrir styrkjunum

Í fjármála­áætlun ríkis­stjórnarinnar, sem Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahags­ráðherra, kynnti á mánudag, er gert ráð fyrir að framlögin verði 5.390 milljónir króna á næsta ári, eða tæplega fimm prósent hærri en í ár. Þau hækka síðan ár frá ári fram til ársins 2025, þótt hlutfalls­lega hægi á hækkuninni og heilt yfir sé hún fyrst og síðast líkleg til að ná yfir verðlags­breytingar, og feli þar með ekki í sér raun­hækkun. Árið 2026 verður svo breyting á þegar framlögin eru áætlum 5.991 milljón króna, eða fimm milljónum króna lægri en árið áður.

Tölurnar benda til þess að gert sé ráð fyrir styrkja­kerfis­greiðslum til einka­rekinna fjölmiðla út spátímann. Sam­kvæmt frum­varp­inu er hægt að sækja um 25 pró­sent end­ur­greiðslu á stuðn­ings­hæfum kostn­aði en stuðn­ingur hvers og eins getur ekki orðið meiri en 25 pró­sent af fjár­veit­ingum til verk­efn­is­ins, sem eru áætlaðar 400 milljónir króna. Það þýðir að einstakur styrkur getur aldrei orðið meiri en 100 millj­ónir króna.

Margra ára ferli

Stuðn­ings­greiðslur úr rík­is­sjóði til einka­rek­inna fjöl­miðla hafa verið í deigl­unni árum sam­an. Segja má að ferlið hafa haf­ist í lok árs 2016 þegar sett var saman nefnd til að móta til­lögur um styrk­ingu rekstr­ar­um­hverfis einka­rek­inna fjöl­miðla. Drög að frum­varpi um þær voru kynnt af Lilju Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, fyrir tveimur árum síðan en komust hins vegar ekki á dag­skrá vor­­­þings þess árs vegna mik­illar and­­­­stöðu við málið hjá hluta þing­­­­flokks Sjálf­­­­stæð­is­­­­flokks.

Í kjöl­farið voru gerðar breyt­ingar á frum­varp­inu til að koma til móts við þá and­­­stöðu. Í þeim fólst aðal­­­­­lega að stærstu fjöl­miðlar lands­ins myndu fá hærri styrkja­greiðslur en minni fjöl­miðlar myndu skerð­­­ast á mót­i.

Nýtt frum­varp, sem átti að leggj­­­ast fram í sept­­­em­ber 2019, lét þó á sér standa. Lilja mælti á end­­­anum ekki fyrir frum­varpi um að lög­­­­­festa slíkt styrkja­­­kerfi fyrr en í des­em­ber 2019. Frum­varpið var hins vegar svæft í nefnd, aftur að mestu fyrir til­­­stilli þing­­­manna Sjálf­­­stæð­is­­­flokks, og fékk ekki afgreiðslu.

Þess í stað var ákveðið að taka þá fjár­­­muni sem búið var að heita í styrk­ina og breyta þeim í ein­­­skiptis neyð­­­ar­­­styrk vegna COVID-19. Lilju var falið að útfæra greiðslu þeirra í reglu­­­gerð. Það gerði hún í byrjun júlí.

Í reglu­­­gerð­inni var sú breyt­ing gerð á upp­­­runa­­­legri úthlut­un­­­ar­að­­­gerð að sú upp­­­hæð sem stærstu fjöl­miðla­­­fyr­ir­tæki lands­ins gátu sótt í rík­­­is­­­sjóð var tvö­­­­­föld­uð, úr 50 millj­­­ónum króna í 100 millj­­­ónir króna.

Fyrir vikið skert­ust greiðslur sem upp­­­runa­­­lega voru ætl­­­aðar 20 smærri fjöl­miðla­­­fyr­ir­tækjum um 106 millj­­­ónir króna en sama upp­­­hæð flutt­ist til þriggja stærstu einka­reknu fjöl­miðla­­­­fyr­ir­tækja lands­ins, Árvak­­­­urs, Sýnar og Torgs.

Það frum­varp sem nú er til umfjöll­unar á þingi er í anda reglu­gerð­ar­inn­ar.

Kjarn­inn er einn þeirra fjöl­miðla sem upp­­­­­­­­­fyllir þau skil­yrði sem sett eru fyrir stuðn­­­­­ings­greiðsl­­­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár