Ísland fellur um eitt sæti í vísitölu Blaðamanna án landamæra

Samtökin Blaðamenn án landamæra hafa birt fjölmiðla­frelsis­vísitölu sína fyrir árið 2021. Ísland fellur um eitt sæti á listanum, niður í það sextánda. Herferðar Samherja gegn trúverðug­leika frétta­manna á síðasta ári er getið í umfjöllun samtak­anna.

Ísland fellur í fjölmiðlafrelsisvísitölu Blaðamanna án landamæra fjórða árið í röð.
Ísland fellur í fjöl­miðla­frels­is­vísi­tölu Blaða­manna án landamæra fjórða árið í röð. Mynd: Bára Huld Beck

Ísland fellur um eitt sæti í árlegri fjölmiðla­frelsi­vísitölu samtak­anna Blaða­manna án landamæra og situr nú í 16. sæti, eftir að hafa verið í 15. sæti í fyrra.

Herferð sjávar­útvegs­fyrir­tækisins Samherja gegn blaða- og frétta­mönnum sem fjallað hafa um málefni fyrir­tækisins er sérstak­lega nefnd í umfjöllun samtak­anna um stöðu fjölmiðla á Íslandi.

Þetta er fjórða árið í röð sem Ísland fellur niður listann, eftir að hafa verið í 10. sæti árið 2017, en hin norrænu ríkin raða sér efst á lista.

Noregur er sem fyrr í efsta sæti vísi­tölunnar, fimmta árið í röð, þrátt fyrir að í umfjöllun Blaða­manna án landamæra komi fram að fjöl­miðlar þar í landi hafi kvartað undan því að fá lítinn aðgang að gögnum hins opinbera um heims­faraldurinn. Finnland er í öðru sæti, Danmörk í þriðja sæti og Svíþjóð í fjórða sæti.

Í umfjöllun samtak­anna um Ísland segir, rétt eins og nokkur undan­farin ár, að starfs­umhverfi blaða­manna hafi farið versnandi árum saman þar sem samskipti stjórn­málamanna og fjölmiðla hafi súrnað.

Þá segir að efnahags­hrunið árið 2008 hafi haft mikil áhrif á fjölmiðla, grafið undan rekstrar­forsendum þeirra og sömuleiðis getu þeirra til þess að standast þrýsting frá hagsmuna­hópum.

Á sama tíma hafi traust til fjölmiðla þó aukist og hlutverk þeirra sem stoðir lýðræðis styrkst. Íslensk löggjöf verndi blaðamenn og tjáningar­frelsið, en megin­vandamál íslenskra fjölmiðla haldi áfram að vera skortur á fjármagni. Þess er getið að verið sé að ræðja nýja löggjöf um styrki til einka­rekinna fjölmiðla.

Fjallað er um Samherja­málið sérstak­lega og segir í umfjöllun samtak­anna að sjávar­útvegs­fyrirtækið hafi árið 2020 farið af stað með fjölmiðla­herferð sem miðaði að því að draga úr trúverðug­leika frétta­manna sem fjölluðu um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár