Milljónum af skattfé varið til að bæta ímynd Hönnu Birnu

Fyrr­verandi ritstjóri Pressunnar hjálpaði ráðherra - Lögfræði­ráðgjöf einnig greidd af innan­ríkis­ráðuneytinu

Markaðs­stofan Argus ehf. fékk 2,4 milljónir króna frá innan­ríkis­ráðuneytinu vegna ráðgjafar í tengslum við lekamálið á árinu 2014. Hjálpaði fyrir­tækið Hönnu Birnu Kristjáns­dóttur, þáverandi ráðherra, að bæta ímynd sína í fjöl­miðlum. Þá var einnig sú lögfræði­ráðgjöf sem Hanna Birna fékk kostuð af skatt­greiðendum, en lögmanns­stofan LEX fékk rúmlega eina milljón króna fyrir þjónustu sína.

Kjarninn greinir frá þessu í dag og upplýsir að beinn kostnaður ráðuneytisins vegna aðkeyptrar ráðgjafar á árinu 2014 vegna leka­málsins nam tæpum 3,5 milljónum króna. 

Hanna Birna Kristjáns­dóttir innan­ríkis­ráðherra ber ábyrgð á þessum útgjöldum. Ráðherrann átti í miklum vanda vegna málsins. Óljóst er í hverju ráðgjöfin var fólgin en innan­ríkis­ráðuneytið neitaði blaða­mönnunum, sem héldu málinu gangandi, um allar upplýsingar á síðari stigum. Á endanum var aðstoðar­maður ráðherra, Gísl Freyr Valdórsson dæmdur sekur um brot á þagnar­skyldu. Ráðherrann sagði af sér og í janúar staðfesti umboðs­maður Alþingis í ítarlegu áliti að ráðherrann hefði beitt lögreglu­stjórann í Reykjavík þrýstingi í tengslum við rannsókn leka­málsins. Fyrir liggur, þrátt fyrir ráðgjöfina, að allt fór á versta veg fyrir ráðherrann og samstarfs­fólk hans. Á meðal þeirra sem veittu ráðherra ráðgjöfina er Stein­grímur Sævarr Ólafsson, fyrr­verandi frétta­stjóri Stöðvar 2 og ritstjóri Pressunnar. 

Hanna Birna Kristjáns­dóttir sagði af sér ráðherra­embætti í kjölfar dómsins og umfjöllunar DV og annarra miðla um lekamálið þann 21. nóvember síðastliðinn. Sama dag var tilkynnt um kaup Pressunnar ehf., útgáfu­félags Björns Inga, á ráðandi hlut í DV ehf.

Mbl.is hafði eftir Bjarna Benedikts­syni, formanni Sjálfstæðis­flokksins, á dögunum að hann vænti þess að Hanna Birna kæmi brátt aftur á þing.

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lekamálið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár