Verslunarskólanemi eignaðist viðskiptaveldi eftir að faðir hans var dæmdur til greiðslu skaðabóta

Lyf og heilsa, næst stærsta lyfja­verslun landsins, var skráð sem eign nítján ára verslunar­skólanema eftir að Karl Wernersson, faðir hans, var dæmdur til að greiða milljarða í skaða­bætur í efnahags­brotamáli. Jafnaldri nýs eiganda, sem er blaða­maður á Viðskipta­blaðinu, er orðinn varamaður í stjórn félagsins sem á Lyf og heilsu eftir fléttuna.

Karl Wernersson
Karl Wernersson Félag hans, Milestone, átti stóran hlut í Sjóvá og Glitni fyrir hrun. Það seldi Karli Lyf og heilsu skömmu áður en það fór í gjald­þrot.

Nítján ára piltur varð skyndi­lega skráður eigandi næst stærstu lyfja­verslunar­keðju landsins og umsvifa­mikils fasteigna­félags eftir að faðir hans var dæmdur til að greiða milljarða króna í skaða­bætur vegna efnahags­brota.

Pilturinn, sem var nemandi í Verslunar­skóla Íslands, skellti á frétta­mann RÚV sem gerði tilraun til að spyrja hann út í viðskipti þeirra feðga í símtali. 

Jón Hilmar KarlssonEr orð­inn umsvifa­mik­ill í fast­eigna­rekstri og lyf­sölu eftir að faðir hans var dæmdur til að greiða skaða­bætur. Skjáskot af Facebook.

Jón Hilmar Karlsson er nú 21 árs gamall. Hann er sonur Karls Wernerssonar, eins umsvifa­mesta fjár­festis Íslands fyrir hrun, sem kenndur var við Milestone og átti stóran hlut í Sjóvá og Glitni. Karl var dæmdur í Hæstarétti í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir efnahags­brot og var nú í mars dæmdur til að greiða þrotabúi Milestone um tíu milljarða króna ásamt bróður sínum og forstjóra félagsins. 

Fékk að leiðrétta skráningu eftir dóm

Viðskipti Karls og sonar hans áttu sér stað eftir að Karl var dæmdur til greiðslu skaðabóta vegna þess að hann og bróðir hans létu Milestone greiða fyrir hlutabréf Ingunnar, systur hans, í félaginu. Eignar­hald systkinanna á Milestone var meðal annars í gegnum aflandsfélög. Samkvæmt mati dómstóla var samningur um kaup á hluta­bréfum á milli bræðranna og Ingunnar Wernersdóttur, en ekki Ingunnar og Milestone, og voru bræðurnir því metnir bóta­skyldir gagnvart þrotabúi Milestone.

Með viðskiptunum við son sinn hefur Karl mögulega náð að fyrir­byggja að gengið verði að Lyfjum og heilsu vegna skaðabóta­dómsins.

Karl lét senda inn leið­réttan ársreikning til ársreikninga­skrár Ríkis­skattstjóra daginn eftir að hann var dæmdur til greiðslu skaða­bótanna í apríl í fyrra, fimm mánuðum eftir að ársreikningnum var skilað inn. Í leið­réttum ársreikningi kom fram að sonur hans væri orðinn eigandi þegar í árslok árið 2014. Jón Hilmar varð nítján ára árið 2014.

Ein af eignum Milestone var Lyf og heilsa, en svo vildi til að Milestone hafði selt félagi Karls Wernerssonar lyfja­verslunar­keðjuna skömmu fyrir hrun, sem skipta­stjóri Milestone taldi að snerist um að forða Lyfjum og heilsu frá kröfu­höfum. 

Stóran hluta síðasta árs var Jón Hilmar, þá nýr eigandi Lyfja og heilsu samkvæmt leið­réttum pappírum, í heims­reisu í Afríku, Asíu og Suður-Ameríku. 

Lyf og heilsa rekur á þriðja tug lyfja­verslana um land allt undir nöfnum Lyfja og heilsu, Apótek­arans og Gamla apóteksins.

Blaðamaður Viðskiptablaðsins í varastjórn

Hörður Guð­munds­son21 árs vara­maður í stjórn félags­ins sem rekur á þriðja tug lyfja­versl­ana.

Þann 6. desember síðastliðinn var síðan send tilkynning til Ríkis­skattstjóra um að Jón Hilmar hefði verið kosinn í stjórn Toska ehf, sem á Lyf og heilsu. 

Vinur, jafnaldri og skóla­félagi Jóns Hilmars úr Verslunar­skólanum, Hörður Guðmundsson, var skráður varamaður í stjórn Toska ehf. á sama tíma. Hörður er blaða­maður á Viðskipta­blaðinu og stjórnar­maður í Heimdalli, félagi ungra sjálfstæðis­manna í Reykjavík, en hann bauð sig fram til formennsku í Heimdalli seint á árinu 2015.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár