Landspítalinn þarf að skerða þjónustu sína fái hann ekki meira fjármagn á næsta ári

Í umsögn forstjóra Land­spítalans um fyrir­liggjandi fjár­laga­frumvarp segir að að hann glími við undir­liggjandi rekstrar­vanda. Ástæða þess að spítalinn hafi verið rekinn innan fjár­veitinga séu einskiptis framlög og sú staðreynd að hann sé undir­mannaður.

Runólfur Pálsson er forstjóri Landspítalans.
Runólfur Pálsson er for­stjóri Land­spít­al­ans. Mynd: Aðsend

„Að óbreyttu þarf spítalinn að skerða þjónustu sína. Slík staða er auðvitað alvarleg.“ Þetta kemur fram í umsögn Land­spítalans um fyrir­liggjandi fjár­laga­frumvarp ríkis­stjórnarinnar sem Runólfur Pálsson, forstjóri spítalans, skrifar undir.

Í umsögninni segir að Land­spítalinn glími við undir­liggjandi rekstrar­vanda. Þótt gert sé ráð fyrir að hann verði rekinn innan fjár­veitinga á yfir­standandi ári sé það vegna undir­mönnunar á spítalanum og einskiptis fjár­veitinga sem leysi ekki þann vanda. „Það er afar brýnt að fjár­laga­frumvarpið taki á þeim áskorunum sem blasa við Land­spítala og í raun heilbrigðis­kerfinu öllu í lok heims­faraldurs COVID-19. Frum­varpið verður að koma til móts við þá erfiðu stöðu sem að framan er rakin, þ.e. við mönnun starfa, við endur­skipulagningu og uppbyggingu þjónustu spítalans eftir faraldurinn og viðureign við undir­liggjandi rekstrar­vanda.“

Vantar 620 milljónir króna til að mæta lýðfræðislegum breytingum

Fjár­veitingar til Land­spítala eru áætlaðar 84,9 milljarðar króna á næsta ári samkvæmt frum­varpinu, sem er tæplega 3,5 milljörðum krónum meira en renna til hans í ár. Í umsögninni er bent á að þegar búið er að taka tillit til endurmats á launa­flokkum og verðbóta sé raun­vöxtur á framlögum 1.266 milljónir króna. Þeirri upphæð er ætlað mæta lýðfræði­legum breytingum vegna fólks­fjölgunar, hækkandi meðal­aldri þjóðarinnar og framþróun í meðferðar­úrræðum.

Í umsögn Land­spítalans segir að þessi fjárhæð jafngildi 1,4 prósent af gjald­heimild fyrri árs. Þegar því fyrir­komulagi var komið á að reikna spítalanum líkan raunvöxt til að takast á við lýðfræðislegar breytingar hafi árleg hækkunar­þörf verið metin 1,8 prósent. „Nú hafa þessir útreikningar verið yfir­farnir og má ætla að fjár­veitingar þyrftu að aukast um 2,2 prósent til að mæta raun­vextinum. Ef uppruna­lega viðmiðið þ.e. 1,8 prósent lægi til grund­vallar frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2023 væri upphæðin 1.586 m.kr. eða 320 m.kr. hærri en í frum­varpinu og ef endur­metna þörfin væri höfð til viðmiðunar væri upphæðin 1.938,1 m.kr. eða 620 m.kr. hærri en frum­varpið. Þess má líka geta að spítalinn fékk reiknaðan raunvöxt ekki bættan á yfir­standandi ári heldur fór sú fjárhæð til að mæta auknum útgjöldum við styttingu vinnu­vikunnar í vakta­vinnu.“

Þá er tiltekið að framlög til tækja­kaupa á spítalanum hafi dregist saman undan­farin ár, en þau fara mest megnis fram í evrum. Í krónum talið hafa framlögin rýrnað um 20 prósent frá árinu 2018 á sama tíma og gengi evru hefur hækkað um 15 prósent. Þá á eftir að taka tillit til stór­aukinnar verðbólgu í þeim löndum sem tækin eru keypt frá.

Viðvarandi mannekla

Saman­dregið segir í umsögninni að helstu áskoranir sem Land­spítalinn standi frammi fyrir sér þrjár: erfið­leikar við að manna stöður, að endur­skipuleggja og byggja upp þjónustu hans í kjölfar kórónu­veiru­faraldursins og að takast á við áður­nefndan undir­liggjandi rekstrar­vanda.

Viðvarandi mannekla er á Land­spítalann sem eykur verulega álag á það starfs­fólk sem er þar fyrir. Fyrir vikið eru fleiri að hugsa sér til hreyfings og erfiðar gengur að laða nýtt fólk til starfa við spítalann. „Við þessar aðstæður á spítalinn í vandræðum með að halda úti almennri þjónustu og erfiðar gengur að vinna niður biðlista sem lengdust í faraldrinum.“

Þessi staða leiðir til þess að sparnaður verður á launalið spítalans, einfald­lega vegna þess að hann nær ekki að ráða þann fjölda sem hann þarf til að geta haldið úti þeirri þjónustu sem honum er gert að gera. Auk þess sé hætt við að spítalinn geti ekki náð að veita þjónustu í samræmi við samning um framleiðslu­tengda fjár­mögnun sem leiðir til þess að fjár­veitingar verið teknar af honum. Í umsögninni segir að mikilvægt sé að spítalinn geti snúið við þessari þróun og laðað til sín fólk til starfa og haldið í það starfs­fólk sem er þegar til staðar. „Lykil­atriði í þeirri viðleitni eru samkeppnishæf launakjör og aðlaðandi starfs­umhverfi.“

Þurfa að geta nýtt aukna getu

Í kórónu­faraldrinum var starfsemi Land­spítalans endur­skipulögð þannig að hægt væri að sinna þeim sem sýkst höfðu af COVID-19. Samhliða var dregið úr annarri starfsemi og valaðgerðum hætt. Afleiðing þessara aðgerða eru þær að biðlistar hafa lengst og margir bíða þjónustu. Þá hafi faraldurinn kallað á breytt verklag á mörgum sviðum, meðal annars með aukinni áherslu á sýkinga­varnir.

Geta Land­spítalans til að framkvæma vissar rann­sóknir jókst með tilkomu ýmissa tækja sem keypt voru til að greina COVID-19. Í umsögninni segir að mikilvægt sé að nýta þessa auknu getu til að auka öryggi sjúklinga. Slíkt kalli á aukin kaup á hvarfefnum og rekstar­vöru sem valdi auknum útgjöldum. „Nauðsynlegt er að spítalinn hafi fjárhags­lega burði til að takast á við þessi verkefni þ.e. að stytta bið eftir þjónustu og að breyta verklagi til að auka öryggi sjúklinga. Að óbreyttu hefur hann það ekki.“

Afgangur vegna erfiðleika við að manna stöður og einskiptis framlaga

Undir­liggjandi rekstrar­vandi er svo óleystur. Í umsögninni segir að Land­spítalinn glími við lang­varandi fjárhags­vanda. „Spítalinn hefur löngum verið rekinn með halla og hefur mætt honum m.a. með því að hagræða í rekstri og reyna að aðlaga starfsemina að fjár­veitingum. Síðustu ár hafa verið þung sem skýrist að hluta afheims­faraldrinum sem hefur haft veruleg áhrif á starfsemi spítalans og því hefur ekki tekist að laga rekstur að fjár­heimildum.“

Á árunum 2018 til 2020 var saman­lagður halli á rekstri spítalans tæplega 4,3 milljarðar króna. Í fyrra var hins vegar tæplega 2,7 milljarða króna afgangur af rekstri hans. Í umsögninni segir að sá afgangur eigi sér eðlilegar skýringar. Annars vegar sé um að ræða tæplega tveggja milljarða framlag frá heilbrigðis­ráðuneytinu til að mæta eldri halla. Hins vegar spili erfið­leikar við að manna stöður á spítalanum stóra rullu. „Þegar horft er framhjá þessum skýringum glímir Land­spítali við undir­liggjandi rekstrar­vanda. Í ár er gert ráð fyrir að spítalinn verði rekinn innan fjár­veitinga en það er vegna undir­mönnunar á spítalanum og einskiptis fjár­veitingum sem leysa ekki undir­liggjandi rekstrar­vanda spítalans.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár