Landspítalinn segir þörf á tæpum 2,2 milljörðum í viðbót vegna leyfisskyldra lyfja

Land­spítalinn segir að áætlanir í fjár­laga­frumvarpi um að setja 11,95 milljarða í leyfis­skyld lyf dugi ekki til, tæplega 2,2 milljarða þurfi til viðbótar. Annars sé hætt við að ekki verði hægt að taka ný leyfis­skyld lyf í notkun árið 2023.

Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala.
Runólfur Pálsson for­stjóri Land­spít­ala. Mynd: Aðsend

Land­spítalinn hefur skilað inn umsögn um fjár­laga­frumvarp ársins 2023, þó ekki um þann hluta frum­varpsins sem snýr að rekstri spítalans, heldur um þann fjárlagalið sem snýr að útlögðum kostnaði ríkisins vegna leyfis­skyldra lyfja. Land­spítalinn ber fjárhags­lega ábyrgð á þeim mála­flokki og hefur gert frá 2019.

Mat spítalans er að 2,16 milljarða þurfi til viðbótar við þá 11,95 milljarða sem í fjár­laga­frumvarpinu segir til um að stefnt sé á að veita til mála­flokksins. Ekki sé raunhæft að gera ráð fyrir einungis 2 prósenta raunvexti leyfi­skyldra lyfja frá fyrra ári eins og gert sé í fjár­laga­frumvarpinu, enda hafi vöxturinn verið að meðaltali 10 prósent á milli ára á síðustu fimm ár.

Fjárveitingarnar dugi vart til að viðhalda öllum lyfjameðferðum sem eru hafnar

„Miðað við fjár­laga­frumvarpið verður [...] ekkert svigrúm fyrir lyfja­nefnd Land­spítala að taka ný lyf í notkun á árinu 2023 og fjár­veitingar munu vart nægja til að viðhalda í öllum tilvikum lyfja­meðferð sem þegar er hafin,“ segir í umsögn spítalans, sem Runólfur Pálsson forstjóri Land­spítala skrifar undir.

Leyfis­skyld lyf eru þau lyf sem eingöngu er heimilt að nota að undan­gengnu samþykki lyfja­nefndar spítalans og eru jafnan „kostnaðarsöm eða vandmeðfarin og krefjast sérfræði­þekkingar og aðkomu heilbrigðis­starfsfólks hvort heldur er vegna gjafar, eftirlits með sjúklingi eða eftirlits með notkun lyfs“ samkvæmt því sem segir í umsögn Land­spítala.

Þar segir einnig að frá því spítalinn tók við fjárhagslegri ábyrgð á leyfis­skyldum lyfjum í upphafi árs 2019 hafi náðst að lækka kostnað umtals­vert með ýmsum hagræðingar­verkefnum og Land­spítalinn muni halda þeirri vinnu áfram.

„Nauðsynlegt er samt sem áður að gera ráð fyrir auknum lyfja­kostnaði vegna nýrra kostnaðar­samra lyfja, nýrra meðferða með lyfjum sem þegar eru innleidd og vegna fólks­fjölgunar og vaxandi fjölda aldraðra. Miklar framfarir hafa orðið í þróun lyfja til meðferðar við illvígum sjúkdómum og hefur það leitt til bættrar lifunar sjúklinga,“ segir í umsögn spítalans.

Land­spítali ítrekar í umsögn sinni „mikilvægi þess að nægilegt fjármagn sé veitt í þennan málaflokk til að geta greitt fyrir þau lyf sem nú þegar hafa verið innleidd og til að tryggja aðgengi lands­manna að nýjum lyfjum í takt við það sem þekkist í nágranna­löndum okkar“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár