Ráðherra segir að „Ísland sé best í heimi“ í umræðum um útlendingamál

Sigríður Andersen dómsmála­ráðherra efast um að það sé jákvætt fyrir allar fjöl­skyldur sem sækja um vernd á Íslandi að fá vernd. Hún vonar að þing­mönnum finnist Ísland vera „best í heimi“.

„Ég er auðvitað þeirrar skoðunar að Ísland sé best í heimi og ég trúi því að þeir sem sitja í þessum sal séu þeirrar skoðunar líka.“

Þetta sagði Sigríður Andersen, dómsmála­ráðherra og þingkona Sjálfstæðis­flokksins, þegar hún mælti gegn frumvarpi til breytinga á útlendinga­lögum sem formenn allra flokka nema Sjálfstæðis­flokksins lögðu fram í dag. Frum­varpið felur í sér réttarbót fyrir barna­fjölskyldur sem sótt hafa um alþjóð­lega vernd á Íslandi. 

Samkvæmt núgildandi útlendinga­lögum ber stjórn­völdum að taka umsókn um alþjóð­lega vernd til efnis­meðferðar ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóð­lega vernd barst. Í hinu nýframlagða frumvarpi er lagt til að þessi frestur verði styttur úr tólf mánuðum í níu. Þá er lögfest heimild til að veita barni, sem sótt hefur um alþjóð­lega vernd og ekki fengið niður­stöðu í máli sínu innan fimmtán mánaða, dvalar­leyfi á grund­velli mannúðar­sjónarmiða.

Sigríður Andersen gagnrýndi frumvarp formannna harðlega á Alþingi nú undir kvöld. „Það er ekki víst að hagsmunum alls þessa fólks sé best borgið hér á landi. Ísland er ekki best í heimi fyrir margt af þessu fólki. Hingað leitar fólk sem er í alls kyns vanda og þarf að fá þvílíka faglega þjónustu að það liggur fyrir hér að hún er ekki einu sinni til hér á landi,“ sagði hún. 

Þá fullyrti Sigríður að með frum­varpinu væri mælst til þess að tiltekin mál fengju jákvæða afgreiðslu í samræmi við geðþótta stjórn­valda. „Um það að mínu mati má reyndar deila hvort að sú afgreiðsla verði í raun jákvæð fyrir þetta fólk,“ sagði hún og vísaði þar til þeirra fjöl­skyldna sem geta fengið vernd á Íslandi ef frum­varpið verður samþykkt. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár