Jólagjafir sem efla íslenska tungu

Viltu efla máltil­finn­ingu barnsins þíns, eða jafnvel þína eigin? Hvað með að setja góða bók, miða á menningar­viðburð eða gott spil í jóla­pakkann? Hér eru nokkrar hugmyndir að gjöfum og góðum samveru­stundum yfir hátíð­arnar sem efla íslenska tungu og menningar­læsi.

Nokkuð bar á því í kosninga­baráttunni í lok nóvember að staða íslensk­unnar stæði höllum fæti. Sum vilja meina að íslenskan sé undir vegna ágangs annarra tungumála hér á landi og að „woke-væðing“ sé síðasti naglinn í kistu okkar ástkæra og ylhýra. Önnur eru þeirrar skoðunar að vöntun sé á vönduðu íslensku menningar­efni og að efla þurfi áhuga landans á því efni sem til er nú þegar, þá sérstak­lega áhuga yngri kynslóð­anna. Við ætlum ekki að kryfja það til mergjar hér hvort eða hvers vegna íslenskan er á undan­haldi heldur ætlum við að koma með tillögur að ýmsu sem hægt er að setja í jóla­pakkann sem eflir íslenska tungu, vekur samræður og býður upp á notalegar stundir yfir hátíð­arnar.

Blindur er bóklaus maður

Það þarf vart að nefna það að lestur er sennilega allra besta leiðin til þess að efla tungumála­lipurð. Það er hægt …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Steingrimur Bergmann Gunnarsson skrifaði
    Hér vil ég vekja athygli á Jólagjöf sem eflir íslenska tungu; nýútkomin bók Rósu Ólafar Ólafíudóttur, Bláeyg sem er saga skrifuð fyrir börn ca. 10 til 12 / 13 ára. sjá m.a.: https://www.bokatidindi.is/baekur/flokkur/skaldverk
    Rósa er hjúkrunarfræðingur og menntuð í uppeldis og menntunarfræðum. Áður hefur hún sent frá sér ljóðabókina Í hvítum kjól og sjálfsævisöguna Kæra nafna, þar sem hún rekur baráttu við fátækt, misrétti, þöggun og skömm.

    Sagan sem er bæði spennandi og viðburðarík er skrifuð á fallegu máli og góðum orðaforða með skýringum neðanmáls á þeim orðum eða setningum sem gætu vafist fyrir lesandanum. Þannig auðgar lestur sögunnar orðaforða lesandans. Þóra Þorgilsdóttir 12 ára og Pétur Atli Margrétarson 10 ára lásu handritið áður en það fór í prentun. Eftir lesturinn skrifuðu þau okkur eftirfarandi umsagnir: „Mér fannst hún rosa góð því að hún hélt mér spenntri." „…þá var þetta örugglega ein af bestu sögum sem ég hef lesið og ég myndi mæla með henni." Þóra Þorgilsdóttir, 12 ára. „Mjög góð. Spennandi söguþráður. Ævintýraleg og skemmtileg saga. Ávanabindandi að lesa söguna." Pétur Atli Margrétarson, 10 ára. Annar lesandi sem keypti bókina sendi höfundinum eftirfarandi póst: „Las hana í einni beit. Mjög góð!”
    Bókin var kynnt á Bókahátíðinni í Hörpu (16 og 17. nóv. s.l.) þar sem henni var afar vel tekið. Lesendur eru hrifnir af því hve sagan er vel skrifuð og hvað orða-skýringarnar hjálpa lesendum að bæta við orðaforða sinn. En undanfarin ár hefur mikið verið rætt um læsi íslenskra barna og hvernig megi efla lestur og lesskilning þeirra. Þess vegna er sagan skrifuð, eins og segir hér að ofan, á fallegu máli af góðum orðaforða en neðanmáls eru orðaskýringar sem hjálpa lesandanum ef og þegar hann rekst á ókunn orð eða orðatiltæki. Þetta fannst þeim Þóru og Pétri afar gott að hafa með. Þá hafa þeir sem fullorðnir eru einnig haft gaman af að lesa söguna því góðar barna- og unglingabækur eru líka skrifaðar fyrir fullorðna!
    Kamelía bókaforlag gefur bókina út. Barna- og ungmennasjóðurinn AUÐUR styrkti útgáfuna.
    Steingrímur B. Gunnarsson.
    sbg@simnet.is
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár