Áskrifendum Spotify fjölgar hratt

Tónlistar­streymis­veitan Spotify hefur bætt við sig 10 prósentum í notenda­fjölda á síðasta ársfjórðungi. Áskrifendur eru nú yfir 83 milljónir og hefur fjölgað um rúmlega 8 milljónir frá því í mars til enda júní.

Tónlistar­streymis­veitan Spotify hefur bætt við sig 10 prósentum í notenda­fjölda á síðasta ársfjórðungi. Áskrifendur eru nú yfir 83 milljónir og hefur fjölgað um rúmlega 8 milljónir frá því í mars til enda júní. Vöxturinn er töluvert meiri en sérfræðingur höfðu gert ráð fyrir.

Tekjur fara þó hægar vaxandi en áður og er það rakið til nýju evrópsku persónu­verndar­löggjafarinnar, GDPR. Notendur þurftu þar að veita sérstak­lega samþykki fyrir notkun fyrir­tækisins á upplýsingum um hlustun þeirra á forritinu. Tekjur á öðrum ársfjórðungi jukust um 26 prósent.

Vöxtur fyrir­tækisins hefur verið hraður í Rómönsku-Ameríku undan­farið og keppir streymis­veitan hvað helst við Apple um áskrifendur. Apple hefur sótt hratt á í Banda­ríkjunum, þar sem flestir notendur notast við iPhone síma, og eru alls með um 40 milljón áskrifendur af sinni tónlistar­veitu.

Spotify fór í loftið fyrir 12 árum síðan sem ókeypis efnis­veita, rekin af auglýsingum. Á þessu ári hafa tónlistar­mennirnir Drake, Ariana Grande, Kanye West og Childish Gambino fengið mesta hlustun á forritinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár