Spotify metið á 3 þúsund milljarða

Virði sænska tónlistar­hugbúnaðar­fyrir­tækisins Spotify var um 30 milljarðar Bandaríkja­dala við upphaf viðskipta með bréf félagsins

Virði Spotify var um 30 milljarðar Bandaríkja­dala, sem nemur um 3 þúsund milljörðum króna, við upphaf viðskipta með bréf félagsins í kaup­höllinni í New York í dag. Fyrsta viðskipta­degi félagsins hafði verið beðið með mikilli eftir­væntingu enda þótti skráning félagsins óvenju­lega stórt skref fyrir félagið, að mörgu leyti.

Það hefur aldrei skilað hagnaði, en fjármunum félagsins hefur verið eytt í vöxt fyrst og fremst. Spotify hefur á starfs­tíma sínum sótt sér um 2,7 milljarða Bandaríkja­dala í fjár­mögnun, bæði láns- og hlutafé.

Stærstu hluthafar eru meðal annars fjár­festinga­sjóðurinn Tencent, Sony Music, Tiger Global og TCV sjóðurinn. Tapið í fyrra nam meira en 150 milljörðum króna, en engu að síður segja stjórn­endur félagsins að félagið sé að halda áætlunum og gott betur. Tekjur muni aukast og tapi verði snúið í hagnað, áður en langt um líður.

Áskrifendur að þjónustu Spotify eru nú yfir 70 milljónir, en fyrir­tækið ráðgerir að stækka enn meira og hraðar á næstu árum, ekki síst í Asíu. Helsti samkeppnis­aðilinn er Apple en áskrifendur að tónlistar­þjónustu fyrir­tækisins eru 38 milljónir.

Spotify hóf starfsemi 7. október 2008, á afar víðsjár­verðum tímum í fjármála­heiminum. Þá römbuðu markaðir til falls víða um heim, en félagið hefur á tæpum tíu árum vaxið jafnt og þétt og eru glæsilegar höfuð­stöðvar félagsins í Stokk­hólmi.

Virði félagsins er nú á við fjórfalt virði íslenska hlutabréfa­markaðarins í heild sinni, en virði hans er nú um 780 milljarðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár