Notendur Spotify 75 milljónir: Hörð samkeppni framundan

Sænska tónlistar­veitan Spotify opinberaði í dag upplýsingar um fjölda notenda þjónustunnar. Þeir eru orðnir 75 milljónir talsins og hefur fjölgað um 15 milljónir frá því fyrir­tækið tilkynnti síðast um notenda­fjölda. Það var í janúar á þessu ári. Af 75 milljónum notenda greiða um 20 milljónir mánaðarlegt gjald. Notendur geta valið um greiða mánaðar­lega tíu dollara gjald gegn því að losna við auglýsingar á milli laga.

Vöxtur Spotify hefur verið hraður. Í lok maí 2014 voru virkir notendur 40 milljónir talsins og þar af greiddu tíu milljónir notenda fyrir þjónustuna. Fjöldi þeirra sem greiða mánaðar­lega hefur í dag meira en tvöfaldast, að því er fyrir­tækið greinir frá á vefsvæði sínu í dag. Fjöldinn jafn­gildir því að einn nýr notandi skráir sig á Spotify á þriggja sekúndna fresti að meðaltali.


Spotify greinir einnig frá því að um 3 milljarðar dollara hafi á síðustu fimm árum verið greiddir í höfundar­laun. Það eru nærri 400 milljarðar króna miðað við gengi krónunnar í dag.

Þúsund milljarða virði

Erlendir fjöl­miðlar, frétta­stofa Bloomberg þeirra á meðal, hafa í dag greint frá nýju verðmati á Spotify. Sænska símfyrirtækið TeliaSonera eignaðist í dag 1,4 prósenta hlut í Spotify og greiddi fyrir hlutinn um 115 milljónir dollara. Samkvæmt þessum viðskiptum er virði Spotify nú um 8 milljarðar Bandaríkja­dollarar, eða jafnvirði ríflega þúsund milljarða króna.


Spotify vinnur nú að kappi við að fjölga notendum og safna nýju hlutafé, áður en ný tónlistar­veita Apple, sem kallast einfald­lega Apple Music, verður opnuð fyrir notendum. Báðar tónlistar­veiturnar veita aðgang að meira en 30 milljónum laga fyrir tæpa tíu dollara á mánuði. Þjónusta Apple fer í loftið 30. júní næst­komandi og er mesta samkeppni sem Spotify hefur staðið frammi fyrir á þessum markaði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár