Yfirmönnum öryggisdeildar Isavia fylgt út eins og glæpamönnum

Þrír yfir­menn hjá örygg­is­deild Isavia voru reknir í síð­ustu viku. Allir telja þeir að um sé að ræða geð­þótta­á­kvörðun og þeir hafi verið óþægi­legir fyrir yfir­stjórn­ina. Ásmundur Frið­riks­son ætlar að fylgja mál­inu eftir.

Yfirmönnum öryggisdeildar Isavia fylgt út eins og glæpamönnum

„Þetta kom okkur gjör­sam­lega í opna skjöldu. Við höfum ekk­ert unnið okkur til saka. Ég held að það sé bara felu­leikur að tala um skipu­lags­breyt­ingar,“ segir Einar Ásbjörn Ólafsson, fyrr­ver­andi yfir­maður flug­valla­gæslu við Kefla­vík­ur­flug­völl, í sam­tali við Stundina. Hann var ásamt umsjón­ar­manni aðgangs­mál, sem baðst undan að koma fram undir nafni í sam­tali við Stundina, og Valgeiri Ásgeirs­syni, verk­efna­stjóra við örygg­is­deild, rek­inn á fundi síð­ast­lið­inn þriðju­dag. Uppsögn þeirra þriggja leggst illa í starfs­menn örygg­is­deildar flug­vall­ar­ins og hefur Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gagn­rýnt yfir­stjórn Isavia harð­lega.

Ólag og reiði meðal starfs­manna Isavia vegna yfir­stjórn­enda og starfs­manna­stefnu stofn­un­ar­innar hefur staðið nú yfir um nokk­urt skeið. Fjölmörg dæmi eru um það og er skemmst að minn­ast könn­unar sem gerð var í fyrra þar sem kom fram að aðeins um 40% starfs­manna voru ánægðir í starfi. Valgeir Ásgeirs­son segir í sam­tali við Stundina að ítrekað hafi verið ætl­ast til af yfir­mönnum Isavia að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Isavia

InnlentIsavia

Isavia fær 6,3 millj­arða lán­aða til við­bótar: „Óvissan er engu að síður enn þá veru­leg“

Evrópski fjár­fest­inga­bank­inn hefur sam­þykkt að veita Isavia lán upp á 40 millj­ónir evra sem sam­svarar um 6,3 millj­örðum króna. Þetta kemur fram á vef Isavia. Þar segir að um loka­á­drátt vegna láns upp á 100 millj­ónir evra sem bank­inn veitti félag­inu árið 2018 sé að ræða, lánið er veitt til fram­kvæmda á Kefla­vík­ur­flug­velli. „Þessi fjár­mögnun kemur til við­bótar við fjóra...
InnlentIsavia

Færri far­þegar um Kefla­vík­ur­flug­völl á nýju ári

Reiknað er með að fjöldi far­þega sem fara um Kefla­vík­ur­flug­völl árið 2020 verði tæp­lega 6,7 millj­ónir og fækki því um 7,6% ef miðað er við árið 2019. Þetta kemur fram í far­þeg­a­spá Isavia fyrir árið 2020. Heild­ar­fjöldi komu­far­arfar­þega verður tæpar 2,6 millj­ónir, sem er 1,4% sam­dráttur frá í fyrra, sam­kvæmt spánni. Annað árið í röð fækkar skiptifar­þegum mest. Þeir fara...
InnlentIsavia

Sam­komu­lag WOW og Isavia vegna millj­arð króna skuldar stóðst allt fram í febr­úar

Wow og Isavia lögðu drög að sam­komu­lagi í lok sept­em­ber 2018 vegna millj­arð króna skuld flug­fé­lags­ins á þeim tíma, sem greiða átti í 13 aðskildum afborg­unum sem myndu teygja sig yfir síð­ustu tvo mán­uði árs­ins 2018 og fyrstu 11 mán­uði árs­ins 2019. Skilum sam­kvæmt sam­komu­lag­inu stóðu fram í febr­úar. Morg­un­blaðið greindi frá.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár