Yfirmenn öryggisdeildar Isavia voru ekki nógu „ungir og graðir“

Björn Óli Hauksson gælir við einka­væð­ingu í við­tali við Við­skipta­blaðið.

Yfirmenn öryggisdeildar Isavia voru ekki nógu „ungir og graðir“

Í við­tali við Við­skipta­blaðið sem kom út í dag fer Björn Óli Hauksson, for­stjóri Isavia, yfir víðan völl og talar meðal ann­ars um öll þau umdeildu mál rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins sem nýverið hafa komið upp. „Ekkert fyr­ir­tæki er full­komið og öll rök­rétt gagn­rýni er okkur holl og hjálpar okkur við að halda ein­beit­ing­unni,“ segir Björn Óli í við­tal­inu.

Við­skipta­blaðið hefur enn fremur heim­ildir fyrir því að á fundi með örygg­is­deild Isavia, þar sem þremur reyndum yfir­mönnum var sagt upp störfum, hafi fram­kvæmda­stjóri talað um að Isavia vildi „unga og graða“ starfs­menn því ákveðnir gallar fylgdu eldri starfs­mönnum.

Allt í gríni

Stundin hefur fjallað um upp­sögn yfir­mann­anna þriggja. „Það er spurn­ing þegar fólk er að vinna sitt starf, því flug­verndin er heil­mikið reglu­verk. Í þessu reglu­verki er engin und­an­komu­leið og þarf að fara eftir því. Það er kannski það sem fólk er að tala um, að við séum stífir í að vinna eftir reglu­verki,“ sagði Valgeir Ásgeirs­son, fyrrum verk­efn­is­stjóri hjá flug­vernd­ar­eft­ir­liti, í sam­tali við Stundina þá.

Björn Óli neitar því ekki í við­tali við Við­skipta­blaðið að orðin um gröðu og ungu menn­ina hafi verið sögð. Hann segir að það hafi verið grín. „Ég held hins vegar að þarna hafi orðið ákveð­inn mis­skiln­ingur á milli manna. Verið var að ráða nýjan, yngri yfir­mann og ég held að sá sem þarna tal­aði hafi verið að tala um nýja yfir­mann­inn en ekki þá sem fund­inn sátu og hafi meint þetta í gamni,“ segir Björn Óli.

Varar við erlendum eigendum

Björn Óli segir enn fremur í við­tal­inu að ekk­ert sé því til fyr­ir­stöðu að einka­væða rekstur frí­hafn­ar­innar. Hann varar þó við því að þá gæti rekst­ur­inn farið til útlend­inga. „Það er raun ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að rekstur frí­hafn­ar­innar sé boð­inn út og að einka­að­ilar komi þar að. Hins vegar verður að hafa í huga að slíkt yrði að fara fram gegnum útboð og alls ekki er ólík­legt að erlendur aðili myndi þá verða hlut­skarpastur. Við­brögðin í for­val­inu hvað varðar annan versl­un­ar­rekstur í Flug­stöð­inni, þar sem erlendir aðilar komu inn, sýna e.t.v. að ekki yrði vin­sælt að erlent fyr­ir­tæki kæmi í Frí­höfn­ina. Frí­höfnin er mjög sterkt fyr­ir­tæki með mjög gott starfs­fólk og við erum mjög ánægð með rekst­ur­inn. Það er eig­and­ans að ákveða það hvort rekst­ur­inn verði áfram í okkar höndum eða boð­inn út. Það myndi í raun ekki skipta öllu máli fyrir okkur, fjár­hags­lega séð,“ segir Björn Óli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Isavia

InnlentIsavia

Isavia fær 6,3 millj­arða lán­aða til við­bótar: „Óvissan er engu að síður enn þá veru­leg“

Evrópski fjár­fest­inga­bank­inn hefur sam­þykkt að veita Isavia lán upp á 40 millj­ónir evra sem sam­svarar um 6,3 millj­örðum króna. Þetta kemur fram á vef Isavia. Þar segir að um loka­á­drátt vegna láns upp á 100 millj­ónir evra sem bank­inn veitti félag­inu árið 2018 sé að ræða, lánið er veitt til fram­kvæmda á Kefla­vík­ur­flug­velli. „Þessi fjár­mögnun kemur til við­bótar við fjóra...
InnlentIsavia

Færri far­þegar um Kefla­vík­ur­flug­völl á nýju ári

Reiknað er með að fjöldi far­þega sem fara um Kefla­vík­ur­flug­völl árið 2020 verði tæp­lega 6,7 millj­ónir og fækki því um 7,6% ef miðað er við árið 2019. Þetta kemur fram í far­þeg­a­spá Isavia fyrir árið 2020. Heild­ar­fjöldi komu­far­arfar­þega verður tæpar 2,6 millj­ónir, sem er 1,4% sam­dráttur frá í fyrra, sam­kvæmt spánni. Annað árið í röð fækkar skiptifar­þegum mest. Þeir fara...
InnlentIsavia

Sam­komu­lag WOW og Isavia vegna millj­arð króna skuldar stóðst allt fram í febr­úar

Wow og Isavia lögðu drög að sam­komu­lagi í lok sept­em­ber 2018 vegna millj­arð króna skuld flug­fé­lags­ins á þeim tíma, sem greiða átti í 13 aðskildum afborg­unum sem myndu teygja sig yfir síð­ustu tvo mán­uði árs­ins 2018 og fyrstu 11 mán­uði árs­ins 2019. Skilum sam­kvæmt sam­komu­lag­inu stóðu fram í febr­úar. Morg­un­blaðið greindi frá.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár