45 þúsund skrifa undir áskorun: Ný stjórnarskrá hefði tryggt auðlindir í þjóðareign

Und­ir­skrift­ar­söfnun farið fram úr björt­ustu vonum, segir Þorkell Helgason pró­fessor. „Stóru von­brigðin voru að nið­ur­stöður stjórn­laga­ráðs hafa algjör­lega dagað uppi.“

45 þúsund skrifa undir áskorun: Ný stjórnarskrá hefði tryggt auðlindir í þjóðareign

Meira en 45 þús­und hafa skrifað undir áskorun til for­seta Íslands um að vísa til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu öllum lögum sem myndu heim­ila ráð­stöfun fisk­veiði­heim­ilda til lengri tíma en eins árs á meðan ekk­ert ákvæði um þjóð­ar­eign á auð­lindum hefur verið sett í stjórn­ar­skrá og þjóð­inni ekki verið tryggt fullt gjald fyrir afnot þeirra.

Líkt og bent var á í frétt RÚV um málið hafa fleiri skrifað undir þessa áskorun en skrif­uðu undir und­ir­skrifta­lista vegna seinni Icesave-laga árið 2011 og fjöl­miðla­laga árið 2004. Forseti Íslands synj­aði fjöl­miðla­lög­unum á þeim for­sendum að gjá væri á milli þings og þjóðar.

Þorkell Helgason stærð­fræð­ingur er einn þeirra sem stendur að baki und­ir­skrifta­söfn­un­inni. Hann segir að hún hafi gengið vonum framar og sýni hversu alvar­legt málið sé. „Við erum fjarska ánægð með þessar und­ir­tektir. Við getum þó ekki sagt að við höfum stefnt að neinu sér­stöku mark­miði af því að for­set­inn metur hvernig hann bregst við. Við höfum engin áhrif á það.“

Áráng­ur­inn sé sér­stak­lega góður í ljósi þess að hóp­ur­inn sem að baki und­ir­skrift­ar­stöfn­un­inni stendur hafði ekki úr neinu fé að spila, nákvæm­lega engu. „Þannig að við höfum ekki getað stundað neinar aug­lýs­inga­her­ferðir, annað en að vera virk á veð­miðlum, blogga og þvíum­líkt. En það er nú ekki aðal­at­riðið, heldur hitt. Það sem við erum að leggja kapp á er að menn hugsi nú sinn gang. Mak­rílf­um­varpið í sjálfu sér kann að virð­ast lítið og mein­laust og vel meint af ráð­her­ans hálfu, en við ótt­umst að þarna geti lítil þúfa velt þungu hlassi – að þetta sé upp­hafið að því að það verði ekki aftur snúið, að kvót­arnir verði end­an­lega einka­væddir.“

Skorar á forsetann
Skorar á for­set­ann Þorkell Helgason pró­fessor er á meðal þeirra sem standa að baki und­ir­skrifta­söfn­un­inni. Hann átti einnig sæti í stjórn­laga­ráði og segir stærstu von­brigðin þau að til­lögur ráðs­ins náðu ekki fram að ganga.

Þjóðin ætti að fá eðlilegt gjald

Þorkell bendir á að vissu­lega sé kom­inn viss hefð­ar­réttur á úthlutun kvót­ans og því ekki hægt að inn­kalla hann á auga­bragði. „Það þarf eðli­legan aðdrag­anda. Svo ég tali nú bara fyrir sjálfan mig, þá sé ég það fyrir mig að nú ættu menn að setj­ast niður og hugsa sinn gang. Ég held að fyrir útgerð­ina gæti verið mjög hag­kvæmt að reyna að ná sáttum á þeim nótum sem stór meiri­hluti þjóð­ar­innar virð­ist vera á. Samkvæmt skoð­ana­könnun 2012 sögð­ust yfir átta­tíu pró­sent styðja það að það yrði tekið eðli­legt gjald fyrir kvót­ann.

„Samkvæmt skoð­ana­könnun 2012 sögð­ust yfir átta­tíu pró­sent styðja það að það yrði tekið eðli­legt gjald fyrir kvót­ann.“ 

Ég held að það ætti að vera auð­velt að ná sam­komu­lagi sem bæði þjóðin og útgerðin ætti að geta verið sátt við. Slíkt sam­komu­lag fælist í því að skerða kvót­ana hægt og bít­andi, um lítið hlut­fall árlega og bjóða upp það sem losnar. Þessi hug­mynd hefur verið á kreiki í ald­ar­fjórð­ung og hefur gengið undir ýmsum nöfnum, firn­ing­ar­leið, til­boðs­leið eða upp­boðs­leið, og verið útfærð á nokkra mis­mun­andi vegu.

Það má færa rök fyrir því að það að fara þessa leið sé síst óhag­kvæmara fyrir útgerð­ina heldur en að vera í óvissu um fram­haldið. Það hefur nú komið fram hjá tals­mönnum útgerð­ar­innar að þeir eru orðnir óró­legir yfir því að geta ekki verið vissir um fram­tíð­ar­skil­málana.“

Umdeilt frumvarp
Umdeilt frum­varp Þorkell væntir þess að Sigurður Ingi dragi í land með mak­ríl­frum­varpið í ljósi and­stöð­unnar við það.

Erfiðara en að breyta stjórnarskránni

Á meðal þess gagn­rýnt er að sam­kvæmt frum­varpi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra er gert ráð fyrir að úthluta kvót­anum til sex ára í senn og fram­leng­ist úthut­unin sjálf­krafa á hverju ári.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, hefur hins vegar sagt að sex ár séu jafn­vel of stuttur tími til að tryggja stöð­ug­leika í grein­inni.

„Bíðum nú við, eigum við ekki að fá sömu góðu kjörin, eilífð­ar­eign á kvót­anum“

Um það segir Þorkell: „Það sem við erum að benda á er að til þess að segja þessu upp þarf að minnsta kosti sex ára aðdrag­anda. Það þarf því að vera meiri­hluti á Alþingi fyrir upp­sögn á úthlutun mak­ríl­kvót­anna, sem spannar yfir einar, jafn­vel tvennar, kosn­ingar.

Það er erf­ið­ara að draga í land með þá úthlutun sem væri gerð á grund­velli þessa frum­varps heldur en að breyta stjórn­ar­skránni. Ef þessu verður komið á er afar ólík­legt að það verði nokkurn tím­ann dregið til baka. Þá muna þeir sem eru að fiska aðrar teg­undur segja; „Bíðum nú við, eigum við ekki að fá sömu góðu kjörin, eilífð­ar­eign á kvót­anum“.

Málinu verður að ljúka með sátt

Í ljósi þess hve margir hafa skrifað undir áskor­un­ina væntir Þorkell þess að frum­varpið verði ekki afgreitt á Alþingi, heldur muni daga þar uppi eða verða dregið til baka. „Ráðherra hefur sagt að 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

3
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
6
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár