Nefnd um dómarastörf gagnrýnd harðlega: „Kannski eru gögn til staðar, kannski ekki“

Þyrí Stein­gríms­dóttir, rit­stjóri Lög­manna­blaðs­ins, seg­ist hafa gert árang­urs­lausar til­raunir til að fá upp­lýs­ingar um máls­með­ferð­ar­reglur nefnd­ar­innar. Skrán­ingu og vörslu gagna sé veru­lega ábóta­vant. „Þetta er ekki boð­legt og allra síst gagn­vart dóm­urum sem í flestum ef ekki öllum til­vikum er fólk sem vant er að virð­ingu sinni, gætir að hæfi sínu, hefur góða dóm­greind og leggur sig fram um að hlíta lögum og reglum.“

Nefnd um dómarastörf gagnrýnd harðlega: „Kannski eru gögn til staðar, kannski ekki“

Þyrí Stein­gríms­dóttir, hæsta­rétt­ar­lög­maður og rit­stjóri Lög­manna­blaðs­ins, gagn­rýnir nefnd um dóm­ara­störf og eft­ir­lits­kerfi stjórn­sýsl­unnar með dóm­stólum harð­lega í grein sem birt­ist í blað­inu sem kom út í vik­unni.

Markús Sig­ur­björns­sonfor­seti Hæsta­réttar

Nefndin hefur komið við sögu í umfjöllun fjöl­miðla um fjár­mál hæsta­rétt­ar­dóm­ara und­an­farnar vikur en Markús Sig­ur­björns­son, for­seti Hæsta­réttar, var rang­lega sak­aður um að hafa van­rækt til­kynn­ing­ar­skyldu um fjár­hags­mál­efni sín. Sá mis­skiln­ingur byggði á því að nefnd um dóm­ara­störf fann ekki bréf sem Markús hafði sent nefnd­inni. Þrátt fyrir þessa mis­bresti gaf nefnd um dóm­ara­störf út sér­staka yfir­lýs­ingu þar sem því var hafnað að skrán­ingu mála hjá nefnd­inni væri ábóta­vant.

Þyrí bendir á það í grein sinni að umrædd nefnd hefur heim­ildir til að taka afar íþyngj­andi ákvarð­anir um störf dóm­ara, setu þeirra í emb­ætti og einnig um æru þeirra. Þá seg­ist Þyrí hafa leitað upp­lýs­inga um máls­með­ferð­ar­reglur nefnd­ar­innar án árang­urs.

„Sú sem þetta ritar hefur enga vit­neskju um hvaða reglur gilda um máls­með­ferð hjá nefnd­inni, þrátt fyrir að hafa reynt að leita upp­lýs­inga um það. Ekki liggur fyrir hvort þær reglur eru yfir­höfuð til eða hvar þær eru birtar ef svo er. Þá virð­ist engin leið að vita hvort og þá hvaða kvart­anir hafi borist nefnd­inni, hvað hafi átt sér stað á fundum hennar, um hvað álit hennar hafi fjallað o.s.frv,“ skrifar hún og bætir því við að svo virð­ist sem skrán­ingu og vörslu gagna sé veru­lega ábóta­vant. „Kannski eru þessar reglur til staðar, kannski ekki. Kannski eru gögn til staðar, kannski ekki.“

Þyrí Stein­gríms­dóttir

Þá skrifar hún: „Ef mál­efni og starfs­hættir nefndar um dóm­ara­störf sem borin hafa verið á borð fyrir okkur að und­an­förnu eru ekki eins­dæmi þá hlýtur sú spurn­ing að vakna hvort eft­ir­lits­kerfi stjórn­sýsl­unnar með dóm­stólum sé boð­legt. Svarið við því er aug­ljós­lega nei. Þetta er ekki boð­legt og allra síst gagn­vart dóm­urum sem í flestum ef ekki öllum til­vikum er fólk sem vant er að virð­ingu sinni, gætir að hæfi sínu, hefur góða dóm­greind og leggur sig fram um að hlíta lögum og reglum, hvort sem það eru almennar reglur fyrir alla í sam­fé­lag­inu eða reglur sem gilda um þá sér­stak­lega.“

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dómsmál

Ógnaði heimilisfólki með heimagerðu sverði
FréttirDómsmál

Ógnaði heim­il­is­fólki með heima­gerðu sverði

Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands dæmdi fyrir skömmu mann fyrir lík­ams­árás, hús­brot og akstur undir áhrifum áfengis. Í lýs­ingum vitna er sagt frá því að mað­ur­inn hafi kýlt heim­il­is­mann sem reyndi að koma í veg fyrir að mað­ur­inn kæmi inn um glugga á hús­inu. Þá er einnig sagt frá því að mað­ur­inn hafi á einum tíma­punkti dregið fram heima­gert sverð á sveiflað því í kringum sig fyrir utan húsið.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár