Vill ræða „málefnalega og ekki mjög gildishlaðið“ um mannréttindi og Trump

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra varði banda­rísk stjórn­völd þegar umræðan um fanga­flug um íslenska loft­helgi stóð sem hæst árið 2006. „Ég kýs að leggja ekki neitt út af þeim sviðs­myndum sem hátt­virtur þing­maður dregur hér upp, enda finnst mér það vera nokkuð hæpið,“ sagði hann aðspurður um pynt­ingar og hugs­an­legt fanga­flug Banda­ríkj­anna um Ísland í fram­tíð­inni í fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag.

Vill ræða „málefnalega og ekki mjög gildishlaðið“ um mannréttindi og Trump

„Ég kýs að leggja ekki neitt út af þeim sviðs­myndum sem hátt­virtur þing­maður dregur hér upp, enda finnst mér það vera nokkuð hæpið, virðu­legi for­seti,“ sagði Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra á Alþingi í dag eftir að Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata, spurði hvort ráð­herr­ann hygð­ist tryggja að Ísland yrði ekki milli­lend­ing­ar­staður fyrir fanga­flug Banda­ríkj­anna í fram­tíð­inni. Vísaði hún sér­stak­lega til þess að Donald Trump, nýr for­seti Banda­ríkj­anna, hefði lýst yfir vilja til að hefja aftur pynt­ingar. 

„Ég hef sér­stakar áhyggjur af því að Banda­ríkja­for­seti muni opna að nýju leyni­fang­elsi út um allan heim til þess að geta þar stundað pynd­ingar á yfir­lýstum óvinum banda­ríska rík­is­ins og meintum hryðju­verka­mönnum þar sem hann virð­ist trúa á gildi og getu pynd­inga til þess að ná fram að sögn mik­il­verðum upp­lýs­ingum,“ sagði Þór­hildur og bætti við:

„Ég vil spyrja hæst­virtan utan­rík­is­ráð­herra út í það hvað hann hygg­ist gera til þess að tryggja að sagan end­ur­taki sig ekki, að við tökum ekki aftur beinan þátt í því að hjálpa Banda­ríkja­for­seta að fremja stríðs­glæpi eins og við gerðum hér og eins og kom í ljós í skýrslu 2007 að Ísland væri að öllum lík­indum með­sekt í flutn­ingi fanga í leyni­fang­elsi víðs vegar um heim­inn. Ég vil spyrja hæst­virtan utan­rík­is­ráð­herra að því hvort hann deili þeim áhyggjum mínum. Hvað hyggst hann gera til þess að koma í veg fyrir að íslenskir flug­vellir verði milli­lend­ing­ar­staður fyrir fanga­flug Banda­ríkj­anna eins og allar líkur eru á að þeir hafi verið í tíð for­vera Trumps, George Bush yngri? Hvað ætlar hann að gera til þess að koma í veg fyrir að það ger­ist? Hvernig ætlum við að tryggja að við tökum ekki þátt og eigum ekki hlut­deild í stríðs­glæpum eins og við gerðum hér um árið?“

Í svari sínu sagði Guð­laugur að íslensk utan­rík­is­stefna myndi áfram grund­vall­ast á sömu gildum og áður. „Ég held að það sé besta leiðin til þess að berj­ast fyrir mann­rétt­indum, að ræða hlut­ina mál­efna­lega og ekki mjög gild­is­hlaðið. Ég held að sé best að gera það með þeim hætti. Við munum standa fyrir það sem við höfum staðið fyrir fram til þessa í utan­rík­is­stefnu okkar,“ sagði Guð­laugur og bætti því við að hann vildi ekki leggja út af sviðs­myndum Þór­hildar, enda þætti honum það „nokkuð hæpið“. 

Varði sjálfur bandarísk stjórnvöld
þegar fangaflugsmálið kom upp

Davíð Oddsson og Halldór Ásgríms­son, þá for­sæt­is­ráð­herra og utan­rík­is­ráð­herra Íslands, lýstu yfir stuðn­ingi við Íraks­stríðið árið 2003 án þess að málið væri borið undir utan­rík­is­mála­nefnd Alþingis. Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins vörðu ákvörð­un­ina af mik­illi hörku og hædd­ust að stjórn­ar­and­stöð­unni þegar þing­menn hennar tóku málið upp. 

Með stuðn­ingnum við Íraks­stríðið var banda­rískum stjórn­völdum veittur aðgangur að íslenskri loft­helgi og heim­ild til að nota Kefla­vík­ur­flug­völl ef nauð­syn krefði vegna aðgerða í Írak. Árið 2005 greindi frétta­stofa Stöðvar 2 frá því að flug­vélar á vegum CIA, sem grunur lék á að flyttu fanga, hefðu lent á Íslandi í að minnsta kosti 67 skipti frá árinu 2001. Sömu vélar flugu til og frá Texas og Washington í Banda­ríkj­unum og Búkarest í Rúmeníu þar sem starf­rækt voru leyni­fang­elsi og við­hafðar pynt­ingar. Í skýrslu sem hug­veitan Open Society Foundation birti árið 2013 er full­yrt að án sam­starfs við ríki á borð við Ísland hefði fanga­flug CIA aldrei verið mögu­legt, en í því fólst að menn grun­aðir um hryðju­verk voru numdir á brott og flogið með þá í leyni­fang­elsi víða um heim þar sem þeir voru pynt­aðir. Með þessu brutu Banda­ríkin alþjóða­lög, svo sem Gen­far­sátt­mál­ann um verndun stríðs­fanga, og skýldu sér á bak við að ekki væri um hefð­bundna stríðs­fanga að ræða heldur hryðju­verka­menn.

Á meðal þeirra sem vörðu Íraks­stríðið voru Bjarni Bene­dikts­son, núver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, núver­andi utan­rík­is­ráð­herra. Þegar rætt var um fanga­flug og pynt­ingar á Alþingi árið 2006 átaldi Guð­laugur Þór stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn fyrir yfir­lýs­inga­gleði. Tók hann sér­stak­lega fram að banda­rískir ráða­menn hefðu gefið út yfir­lýs­ingar „þar sem þeir vísa því á bug að þeir stundi pynd­ingar“. Þetta sagði hann þrátt fyrir að á þessum tíma hefði þegar verið fjallað ítar­lega, bæði í íslenskum og erlendum fjöl­miðlum, um pynt­ingar og mann­rétt­inda­brot banda­rískra stjórn­valda í fang­elsum á borð við Guant­anamó á Kúbu og Abu Ghraib í Írak.

„Það er ekk­ert sem kallar á að vera með
þessar stóru yfir­lýs­ingar“

„Komið hafa yfir­lýs­ingar frá Banda­ríkja­mönnum þar sem þeir vísa því á bug að þeir stundi pynd­ingar og á sama hátt hafa þeir sam­þykkt ný lög 15. des­em­ber síð­ast­lið­inn um það efni. Það er ekk­ert sem kallar á að vera með þessar stóru yfir­lýs­ingar sem hæst­virtir þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar hafa verið með, ekk­ert,“ sagði Guð­laugur Þór eftir að þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar höfðu gagn­rýnt með­ferð Banda­ríkj­anna á föngum og milli­lend­ingu CIA-flug­véla á íslandi harð­lega. 

Eins og fram kom á Alþingi í dag hefur Guð­laugur ekki áhyggjur af því að sagan end­ur­taki sig í stjórn­ar­tíð Donalds Trump eða að Kefla­vík­ur­flug­völlur verði aftur not­aður við fanga­flug.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár