Utanríkisráðherra veitti kunningja sínum „mjög óvenjulegan styrk“

„Ég þekki Gunnar Braga,“ segir Árni Gunn­ars­son kvik­mynda­gerða­maður sem fékk þriggja millj­óna króna styrk frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu, sem sagður er „mjög óvenju­legur“ af for­manni Félags kvik­mynda­gerð­ar­manna. For­sæt­is­ráðu­neytið styrkir mynd­ina um þrjár millj­ónir til við­bótar, en Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son kemur fyrir í mynd­inni.

Utanríkisráðherra veitti kunningja sínum „mjög óvenjulegan styrk“
Gunnar Bragi Sveins­son Utan­rík­is­ráð­herra sam­þykkti að veita kunn­ingja sínum styrk. Mynd: Pressphotos

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra kemur fyrir í upp­tökum á heim­ild­ar­mynd um flótta­menn sem for­sæt­is­ráðu­neytið styrkti um þrjár millj­ónir króna í styrk­veit­ingu sem for­maður Félags kvik­mynda­gerð­ar­manna segir að sé „mjög óvenju­leg“.

Kvik­mynda­gerð­ar­mað­ur­inn hlaut einnig þriggja millj­óna króna styrk frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu, en hann er kunn­ingi Gunnars Braga Sveins­sonar utan­rík­is­ráð­herra. Þá hefur hann gegn stöðu aðstoð­ar­manns Páls Pét­urs­sonar, fyrr­ver­andi ráð­herra flokks­ins, og var einnig vara­þing­maður. 

Ræddi við Gunnar Braga

Utan­rík­is­ráðu­neytið sam­þykkti styrk­veit­ing­una þann 5. jan­úar síð­ast­lið­inn, en kvik­mynda­gerð­ar­mað­ur­inn, Árni Gunn­ars­son, frétti af styrk­veit­ing­unni frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu í fjöl­miðlum á föstu­dag, um tveimur vikum eftir að hann hitti Sigmund Davíð í Leifs­stöð við mót­töku flótta­manna.

„Ég þekki Gunnar Braga,“ segir Árni þegar hann er spurður um tengsl hans við utan­rík­is­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár