Umfangsmiklir fjármálaglæpir í Moldavíu minna á Ísland

Áhrifa­miklir ein­stak­lingar í Moldavíu eru bendl­aðir við fjár­mála­glæpi sem minna á aðdrag­and­ann að íslenska banka­hrun­inu. Stór hluti af þjóðar­­fram­leiðslu Moldavíu, fátæk­asta ríkis Evrópu, lekur úr landi með hjálp við­ur­kenndra end­ur­skoð­enda. Ríkið þurfti að bjarga bönk­unum.

Stéphane Bridé
Stéphane Bridé Fyrr­ver­andi deild­ar­stjóri mál­efna Moldavíu hjá Grant Thornton var gerður að efna­hags­ráð­herra.

Eitt af stærstu end­ur­skoð­unar­fyr­ir­tækjum heims hefur verið sakað um van­rækslu og van­hæfni eftir að einn millj­arður Banda­ríkja­dala lak út úr mold­a­víska hag­kerf­inu í lok síð­asta árs. Sú upp­hæð jafn­gildir 15% af þjóðar­fram­leiðslu þessa fyrr­ver­andi Sovét­lýð­veldis sem jafn­framt er fátæk­asta ríki Evrópu.

Grant Thornton er eitt af stærstu end­ur­skoð­unar- og bók­halds­fyr­ir­tækjum Bret­lands með útibú í tæp­lega 20 ríkjum víðs­vegar um heim­inn. Þeir voru ábyrgir fyrir end­ur­skoðun þriggja stærstu banka Moldavíu þegar fjár­magnslek­inn átti sér stað. Segja má að upp­hæðin sem nefnd er hér að ofan hafi með flóknu neti fjár­magns­færslna verið arð­rænt úr land­inu í gegnum bresk fyr­ir­tæki. Bank­arnir þrír hafa stuðst við end­ur­skoð­enda­fyr­ir­tækið Grant Thornton frá því 2010 (Unibank), 2011 (Banca de Economii) og 2013 (Banca Sociala).

Ein afleið­ing þessa mikla fjár­magnsleka út úr mold­óvíska hag­kerf­inu var sú að rík­is­stjórn lands­ins varð að bjarga fyrr­nefndum bönkum með lausn­arfé sem jafn­gildir hálfs­árs veltu bank­anna þriggja. Eins og gefur að skilja voru áhrifin á þjóð­ar­búið og gjald­mið­il­inn gígantísk; gjald­mið­ill­inn féll um fjórð­ung í byrjun árs auk þess sem tíma­bil sam­dráttar hófst. Segja má að þessi fjár­magns­svik hafi eyði­lagt hag­kerfi þjóð­ar­innar á einni nóttu en Moldavía, sem þegar bar þann óeft­ir­sókna­verða titil að vera fátæk­asta ríki Evrópu, mátti því tæp­lega við meiri sam­drætti.

Upp komst um arðránið í nóvember í fyrra

Mold­a­víski þing­mað­ur­inn Iurie Chirinciuc, sem var partur af nefnd sem sett var á lagg­irnar til að rann­saka málið, telur að Grant Thornton hafi van­rækt skyldur sínar sem end­ur­skoð­andi umræddra banka. Nýlega spurði hann 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár