Tveir heimar Baltimore

Í Baltimore eykst mis­skipt­ing jafnt og þétt. Fátækt, ójöfnuður og von­leysi ríkir á meðal hinna lægst settu. Ólöf Stein­unn­ardóttir, þróunar- og stjórnmálafræð­ingur, skoðar hvað er í raun og veru að ger­ast í borg­inni þar sem allt er á suðu­punkti.

Sett á útgöngubann
Sett á útgöngu­bann Til að reyna að koma böndum á óeirð­irnar var útgöngu­bann sett á í Baltimore í nokkra daga. Íbúum var meinað að fara út eftir klukkan tíu á kvöldin til fimm á morgn­anna.

Óeirðir hafa ríkt í Baltimore frá því að 25 ára gam­all blökku­maður, Freddie Gray, lést af völdum áverka sem hlaut í haldi lögreglu. Freddie lést þann 19. apríl og útför hans fór fram viku síðar. Í kjölfarið sauð allt upp úr og neyð­arástandi var lýst yfir í borg­inni. Kveikt var í bygg­ingum og fjöldi lögreglu­manna voru særðir eftir átökin. Til að reyna að ná tökum á ástand­inu var sett á útgöngu­bann í borg­inni þar sem borg­urum var meinað að fara út úr húsi frá klukkan tíu á kvöldin og til fimm á morgn­ana. Útgöngu­bannið átti að gilda í viku, hið minnsta. Sex lögreglu­menn voru ákærðir í málinu, fyrir manndráp.

Þeir sem þekkja vel til í Baltimore segja að það hafi ein­ungis verið
tímaspursmál hvenær stór hluti Baltimor­ebúa myndi springa og mótmæla stétta­skipt­ing­unni sem hægt og rólega hefur verið að aukast und­an­farna áratugi. Síðan í byrjun 9. áratug­ar­ins má segja að vænum skammti af fátækt, glæpum og algjöru von­leysi á meðal mik­ils meiri­hluta blökkubúa í Baltimore, sem eru um 65% borg­arbúa, hafi verið blandað saman í einn graut. Á sama tíma hefur vel­megun hvítra Baltimor­ebúa auk­ist hægt og rólega og eins og á svo mörgum stöðum í heim­inum hefur bilið á milli ríkra og fátækra aldrei verið meira.

Þessir tveir ólíku hópar Baltimor­ebúa hafa að stórum hluta lifað sínu lífi án mik­illa afskipta af hvor öðrum. Mótmælin sem brut­ust út á mánudag­inn eftir útför Freddie Gray og glæpa­aldan hefur gengið yfir Baltimore eru skýr skila­boð um að eitt­hvað verði að aðhaf­ast.

En stóra spurn­ing er hvað á að gera? Hvað er hægt að gera fyrir íbúa Baltimore, sem lifað hafa við eða undir fátækt­ar­við­miðum und­an­farna áratugi? Fólk sem jafnan getur ekki sent börnin sín í almenni­lega skóla sem bjóða upp á nám sem veitir nem­endum inngöngu í háskóla og þar af leið­andi mögulega leið til að brjótast út úr þessum vítahring.

Blökkumenn í leiðtogasætum

Það sem hefur verið að ger­ast í Baltimore er ekki það sama og gerð­ist í Ferguson seint á síðasta ári þar sem 18 ára svartur Bandaríkja­maður var skot­inn af 28 ára hvítum lögreglu­manni þótt við­burð­irnir séu keimlíkir. Meg­in­vandamál íbúanna í Baltimore er ekki hægt að rekja til mis­munar vegna kynþáttar.

Borg­ar­stjórinn í Baltimore er til að mynda af afrísku bergi brot­inn sem og for­seti borg­arráðs, lögreglu­stjórinn, helsti saksóknar­inn og margir aðrir yfir­menn í Baltimore. Auk þess má nefna að helm­ingur 3.000 manna lögreglu­sveitar Baltimore eru blökku­menn.

Í Baltimore er að finna margar öflugar kirkjur sem fyrst og fremst þjóna svörtum Baltimor­ebúum auk þess sem blökku­menn hafa verið í leið­toga­sætum í Baltimore síðan á seinni hluta 19. aldar þegar aðgerð­ar­sinn­anum Frederick Douglass tókst að brjótast úr þræla­haldi og verða virtur rithöfundur og stjórnmálamaður. Samt sem áður hefur bilið á milli þeirra sem eiga og þeirra sem engu hafa að tapa aldrei verið meira.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár