„Undanfarin 10 ár hef ég haft mikinn áhuga á því að fara í útilegur á fjöll að vetri til. Þá gisti ég ýmist í tjaldi eða snjóhúsum,“ segir Hjalti Björnsson, dagskrárstjóri á sjúkrahúsinu á Vogi og fararstjóri hjá Ferðafélagi Íslands. Hjalti notar nær allan sinn frítíma í hverskonar útiveru. Hann fer einu sinni í viku með hóp sinn, Alla leið, á fjöll undir fána Ferðafélags Íslands. Þá er hann virkur í starfi björgunarsveitanna. Að sumrinu fer hann með hópa um Víknaslóðir, Lónsöræfi, Stórurð og kringum Langasjó. Að haustinu stundar hann síðan veiðar á rjúpu og hreindýrum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.












































Athugasemdir