Talskona Stígamóta stígur til hliðar

Utan­að­kom­andi vinnu­staða­sál­fræð­ingur verður feng­inn til þess að taka út vinnu­um­hverfið á Stíga­mótum eftir yfir­lýs­ingu Thelmu Ásdís­ar­dóttur um að níu fyrr­ver­andi starfs­menn Stíga­móta taki undir frá­sögn Helgu Bald­vins­dóttur Bjargar af ein­elti og and­legu ofbeldi á vinnu­staðnum.

Talskona Stígamóta stígur til hliðar
Stígur til hliðar Guðrún Jóns­dóttir tals­kona Stíga­móta stígur til hliðar á meðan vinnu­staða­sál­fræð­ingur tekur út starfs­um­hverfið á Stíga­mótum.

Guðrún Jóns­dóttir, tals­kona Stíga­móta, stígur til hliðar eftir yfir­lýs­ingu níu fyrr­ver­andi starfs­manna sem sögð­ust trúa frá­sögn Helgu Bald­vins­dóttur Bjargar af ein­elti og and­legu ofbeldi á Stíga­mótum þegar hún starf­aði þar, vegna þess að þeir höfðu sam­bæri­lega reynslu af störfum á vett­vangi Stíga­móta. 

Frá þessu var greint í yfir­lýs­ingu sam­tak­anna á Facebook fyrr í dag. Þar segir að stjórn og starfs­hópur Stíga­móta taki yfir­lýs­ingu hóps­ins alvar­lega og að þegar hafi verið haft sam­band við Vinnu­eft­ir­litið sem gaf ráð um ábyrgar leiðir við með­ferð máls­ins. Til standi að gera úttekt utan­að­kom­andi fag­að­ila á starfs­um­hverfi Stíga­móta. Vinnu­staða­sál­fræð­ingur mun taka verk­efnið að sér. Á meðan stígur Guðrún til hliðar en Steinunn Gyðu- og Guð­jóns­dóttir tekur við hennar hlut­verki.  

Áður höfðu stjórn og starfs­hópur fundað án Guðrúnar og kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að innan hóps­ins ríkti fullt traust til hennar. Í kjöl­farið var send út yfir­lýs­ing þess efnis að reynsla þeirra væri önnur, en þeim þætti leitt að Helga hefði upp­lifað sam­starfið með þessum hætti.

Thelma Ásdís­ar­dóttir, fyrr­ver­andi starfs­kona Stíga­móta, sendi yfir­lýs­ingu í gær um að níu ónafn­greindir fyrr­ver­andi starfs­menn tækju undir reynslu Helgu Bald­vins­dóttur og væru að minnsta kosti sumir þeirra til­búnir að stíga fram. 

„Í kjöl­farið af pistli Helgu Baldvins Bjargar viljum við lýsa því yfir að við trúum henni enda höfum við allar sam­bæri­lega reynslu af því að starfa á vett­vangi Stíga­móta. Við skorum hér með á fram­kvæmda­hóp Stíga­móta til þess að taka á mál­inu af ábyrgð og fag­mennsku,“ sagði í yfir­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár