Stjórnsýslunefndir hunsa tilmæli umboðsmanns

„Það kemur fyrir að stjórn­völd séu þannig ekki fylli­lega sátt við afstöðu umboðs­manns í ein­stökum málum og fari ekki að til­mælum hans,“ segir í árs­skýrslu umboðs­manns Alþingis.

Stjórnsýslunefndir hunsa tilmæli umboðsmanns
Tryggvi Gunn­ars­son er umboðs­maður Alþingis.

„Þrátt fyrir að stjórn­völd bregð­ist almennt vel við fyr­ir­spurnum umboðs­manns sem og til­mælum og ábend­ingum eru þó und­an­tekn­ingar frá því. Virðist það einkum eiga við um þau stjórn­völd sem ráð­herra fer ekki með almennar yfir­stjórn­unar- og eft­ir­lits­heim­ildir gagn­vart og eru nefnd sjálf­stæð stjórn­völd eða stjórn­sýslu­nefndir.“

Þetta kemur fram í skýrslu umboðs­manns Alþingis fyrir árið 2014 þar sem fjallað er um starf­semi emb­ætt­is­ins. 

„Það kemur fyrir að stjórn­völd séu þannig ekki fylli­lega sátt við afstöðu umboðs­manns í ein­stökum málum og fari ekki að til­mælum hans. Í því sam­bandi legg ég áherslu á að þrátt fyrir að slík stjórn­völd falli ekki undir yfir­stjórn­unar- og eft­ir­lits­heim­ildir ráð­herra falla störf þeirra ekki fyrir utan eft­ir­lits­heim­ildir umboðs­manns. Hinar ýmsu úrskurð­ar­nefndir í stjórn­sýsl­unni gegna þannig mik­il­vægu eft­ir­lits- og réttar­ör­ygg­is­hlut­verki við með­ferð kæru­mála og fara með hlut­verk sem væri almennt ann­ars falið ráð­herra á við­kom­andi mál­efna­sviði,“ segir í skýrsl­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár