Stjórnmálaviðhorfið við þinglok

Eiríkur Bergmann, pró­fessor í stjórn­mála­fræði, ræðir stjórn­mála­við­horfið í lok fyrsta lög­gjaf­ar­þings á nýju kjör­tíma­bili og rýnir í hvað kortin segja um fram­haldið handan sum­ars.

Stjórnmálaviðhorfið við þinglok
Katrín Jak­obs­dóttir Vinstri græn hafa mælst sterk í skoð­ana­könn­unum, þar af með 23,4 pró­sent í síð­ustu könnun MMR, tæpum tveimur pró­sentu­stigum undir Sjálf­stæð­is­flokknum. Mynd: Pressphotos

Ágæt spekt hefur ríkt í íslenskum stjórn­málum frá því að rík­is­stjórnin tók við í jan­úar í kjöl­far nokkuð stremb­innar stjórn­ar­kreppu, sem varð að loknu harla óvana­legu þing­kjöri. Hvort það sé svika­logn verður að koma í ljós þegar hausta fer á ný. Staða stjórn­arn­ar­innar er samt óvana­lega veik á Alþingi og hún átti á nýliðnu þingi í stöð­ugum brösum með að koma málum sínum í gegn, ekki aðeins sökum þess hve tæpt meiri­hlut­inn stendur í hausum talið, heldur ekki síður vegna óhemju ólíkra sjón­ar­miða innan stjórn­ar­liðs­ins þar sem nokkuð stöðugar skærur virð­ast ríkja á milli manna – í eld­hús­dags­um­ræðum um dag­inn töl­uðu full­trúar rík­is­stjórn­ar­innar stundum líkt og fyrir önd­verðri stjórn­ar­stefnu.

Blóm í haga

Þessi aðþreng­ing stjórn­ar­innar á þingi hefur þó ekki að öðru leyti valdið henni telj­an­legum kranka – ef það orð má nota – úti í sam­fé­lag­inu. Stjórnin nýtur þess nefni­lega hversu ósam­stiga stjórn­ar­and­staðan er, sem engan veg­inn …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár