Stjórnendur Isavia teknir á teppið fyrir að þiggja boðsferð: „Aðeins frímiðar eftir“

Hlynur Sig­urðs­son og Guð­mundur Daði Rún­ars­son við­ur­kenna að það hafi verið mis­tök að fara á lands­leik Íslands og Noregs í und­ankeppni HM í boði Icelandair. Þeir segja að ekki hafi verið hægt að kaupa miða, því aðeins voru eftir frí­miðar.

Stjórnendur Isavia teknir á teppið fyrir að þiggja boðsferð: „Aðeins frímiðar eftir“

Hlynur Sig­urðs­son, fram­kvæmda­stjóri Flug­stöðvar Leifs Eiríks­sonar, við­ur­kennir að það hafi verið mis­tök að þiggja boðs­ferð Icelandair til Osló árið 2013. Í til­kynn­ingu sem Stund­inni barst rétt í þessu kemur fram að yfir­stjórn Isavia hafi farið yfir málið með bæði Hlyni og Guðmundi Daða Rún­ars­syni, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóra Isavia, og þeim hafi verið veitt til­tal vegna máls­ins. Líkt og Stundin greindi frá fyrr í dag fóru Hlynur og Guð­mundur í skemmti­ferð til Osló í boði Icelandair til að sjá lands­leik Íslands og Noregs í und­ankeppni HM. Um er að ræða alvar­legan hags­muna­á­rekstur þar sem Icelandair er aðeins eitt margra flug­fé­laga sem kaupir þjón­ustu af Isavia. Í til­kynn­ingu frá Isavia er því haldið fram að þetta sé eina dæmið um að fram­kvæmda­stjórar félags­ins hafi þegið boð af þessu tagi. Þeir Hlynur og Guð­mundur hafa nú greitt fyrir ferð­ina að sögn tals­manns Isavia, Guðna Sig­urðs­sonar.

Yfirlýsingin í heild sinni

Vegna fyr­ir­spurnar Stund­ar­innar vegna boðs­ferðar tveggja starfs­manna Isavia til Oslóar.

„Þeir upp­lýstu að til hafi staðið að kaupa sér far­miða í umrædda ferð og rætt það við Icelandair en þá aðeins verið frí­miðar eftir í flugið“

Fjöldi flug­fé­laga hafa boðið stjórn­endum Isavia í ákveðnar ferðir, en sam­kvæmt reglum félags­ins er óheim­ilt að þiggja slík boð. Í ein­staka til­fellum hefur verið talið mik­il­vægt að fara í ferðir sem komnar eru til með þessum hætti vegna við­skipta­tengsla erlendis en þá er alltaf greitt fyrir far­mið­ann af félag­inu. Ekki var um við­skipta­ferð  að ræða í þessu til­viki og var yfir­stjórn félag­ins ekki kunn­ugt um hana. Starfs­menn­irnir voru beðnir að útskýra hvað þarna hefði gerst þar sem þetta var ekki í sam­ræmi við reglur félags­ins. Þeir upp­lýstu að til hafi staðið að kaupa sér far­miða í umrædda ferð og rætt það við Icelandair en þá aðeins verið frí­miðar eftir í flugið sem þeir ósk­uðu eftir að kaupa. Þeir við­ur­kenna þó þau mis­tök að hafa ekki fylgt því eftir við Icelandair að greiða fyrir far­mið­ana og taka fulla ábyrgð á þessum mis­tökum. Þeir hafa nú greitt fyrir mið­ana. Þetta er einu til­vikin sem um ræðir hjá fram­kvæmda­stjórum félags­ins þar sem segja mætti að boð af þessu tagi hafa verið þegin.

Yfir­stjórn félags­ins hefur farið yfir málið með umræddum starfs­mönnum og veitt þeim til­tal vegna þess.​

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Isavia

InnlentIsavia

Isavia fær 6,3 millj­arða lán­aða til við­bótar: „Óvissan er engu að síður enn þá veru­leg“

Evrópski fjár­fest­inga­bank­inn hefur sam­þykkt að veita Isavia lán upp á 40 millj­ónir evra sem sam­svarar um 6,3 millj­örðum króna. Þetta kemur fram á vef Isavia. Þar segir að um loka­á­drátt vegna láns upp á 100 millj­ónir evra sem bank­inn veitti félag­inu árið 2018 sé að ræða, lánið er veitt til fram­kvæmda á Kefla­vík­ur­flug­velli. „Þessi fjár­mögnun kemur til við­bótar við fjóra...
InnlentIsavia

Færri far­þegar um Kefla­vík­ur­flug­völl á nýju ári

Reiknað er með að fjöldi far­þega sem fara um Kefla­vík­ur­flug­völl árið 2020 verði tæp­lega 6,7 millj­ónir og fækki því um 7,6% ef miðað er við árið 2019. Þetta kemur fram í far­þeg­a­spá Isavia fyrir árið 2020. Heild­ar­fjöldi komu­far­arfar­þega verður tæpar 2,6 millj­ónir, sem er 1,4% sam­dráttur frá í fyrra, sam­kvæmt spánni. Annað árið í röð fækkar skiptifar­þegum mest. Þeir fara...
InnlentIsavia

Sam­komu­lag WOW og Isavia vegna millj­arð króna skuldar stóðst allt fram í febr­úar

Wow og Isavia lögðu drög að sam­komu­lagi í lok sept­em­ber 2018 vegna millj­arð króna skuld flug­fé­lags­ins á þeim tíma, sem greiða átti í 13 aðskildum afborg­unum sem myndu teygja sig yfir síð­ustu tvo mán­uði árs­ins 2018 og fyrstu 11 mán­uði árs­ins 2019. Skilum sam­kvæmt sam­komu­lag­inu stóðu fram í febr­úar. Morg­un­blaðið greindi frá.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár