Stjórnendur Isavia kallaðir fyrir þingnefnd

Fram­kvæmd­ar­stjórn opin­bera hluta­fé­lags­ins Isavia verður kölluð fyrir Alþingi. Starfs­menn eru ósáttir. Fram­kvæmd­ar­stjóri fékk til­tal.

Stjórnendur Isavia kallaðir fyrir þingnefnd
Svarar fyrir sig Hlynur Sig­urðs­son, fram­kvæmda­stjóri Isavia, hefur fengið til­tal fyrir að þiggja boðs­ferð frá Icelandair á knatt­spyrnu­leik.

Opinbera hluta­fé­lagið Isavia hefur síð­ast­liðin miss­eri kom­ist ítrekað í fjöl­miðla og eru aðstæður komnar á það stig að æðstu stjórn­endur félags­ins verða boð­aðir fyrir umhverfis- og sam­göngu­nefnd Alþingis eftir páska til að skýra mál sitt. Kraum­andi óánægja er meðal starfs­manna félags­ins vegna fram­kvæmda­stjóra en flestir þeirra ríf­lega 800 starfs­manna búa á Suð­ur­nesjum þar sem vinna er ekki á hverju strái. Könnun sem gerð var á síð­asta ári sýndi að um 90 pró­sent starfs­manna væru óánægðir í starfi. Stundin greindi frá því á dög­unum að Hlynur Sig­urðs­son, fram­kvæmda­stjóri Flug­stöðvar Leifs Eiríks­sonar, þáði boðs­ferð Icelandair í skemmti­ferð til Noregs árið 2012, en hann borg­aði fyrir ferð­ina eftir frétta­flutn­ing. Sömu­leiðis greindi Kastljós nýverið frá því að eig­in­kona for­stjóra Isavia hefði farið í ferðir með eig­in­manni sínum í boði skatt­greið­enda.
Að sögn starfs­manns Isavia sem Stundin hefur rætt við er mikil reiði vegna hinar svoköll­uðu 67 ára reglu sem þýðir að allir starfs­menn skuli taka saman föggur sínar á 67 ára afmæl­is­degi sínum. Þetta á við alla, nema und­an­tekn­ing­arnar. Þrír yfir­menn á örygg­is­sviði voru nýverið reknir stuttu áður en fyrr­nefndur Hlynur sagði á fundi að Isavia þyrfti á „ungum og gröðum“ mönnum að halda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Isavia

InnlentIsavia

Isavia fær 6,3 millj­arða lán­aða til við­bótar: „Óvissan er engu að síður enn þá veru­leg“

Evrópski fjár­fest­inga­bank­inn hefur sam­þykkt að veita Isavia lán upp á 40 millj­ónir evra sem sam­svarar um 6,3 millj­örðum króna. Þetta kemur fram á vef Isavia. Þar segir að um loka­á­drátt vegna láns upp á 100 millj­ónir evra sem bank­inn veitti félag­inu árið 2018 sé að ræða, lánið er veitt til fram­kvæmda á Kefla­vík­ur­flug­velli. „Þessi fjár­mögnun kemur til við­bótar við fjóra...
InnlentIsavia

Færri far­þegar um Kefla­vík­ur­flug­völl á nýju ári

Reiknað er með að fjöldi far­þega sem fara um Kefla­vík­ur­flug­völl árið 2020 verði tæp­lega 6,7 millj­ónir og fækki því um 7,6% ef miðað er við árið 2019. Þetta kemur fram í far­þeg­a­spá Isavia fyrir árið 2020. Heild­ar­fjöldi komu­far­arfar­þega verður tæpar 2,6 millj­ónir, sem er 1,4% sam­dráttur frá í fyrra, sam­kvæmt spánni. Annað árið í röð fækkar skiptifar­þegum mest. Þeir fara...
InnlentIsavia

Sam­komu­lag WOW og Isavia vegna millj­arð króna skuldar stóðst allt fram í febr­úar

Wow og Isavia lögðu drög að sam­komu­lagi í lok sept­em­ber 2018 vegna millj­arð króna skuld flug­fé­lags­ins á þeim tíma, sem greiða átti í 13 aðskildum afborg­unum sem myndu teygja sig yfir síð­ustu tvo mán­uði árs­ins 2018 og fyrstu 11 mán­uði árs­ins 2019. Skilum sam­kvæmt sam­komu­lag­inu stóðu fram í febr­úar. Morg­un­blaðið greindi frá.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár