Stjórnendur hjá Isavia fóru í skemmtiferð í boði Icelandair

Hlynur Sig­urðs­son og Guð­mundur Daði Rún­ars­son fóru á lands­leik Íslands og Noregs í und­ankeppni HM í boði Icelandair.

Stjórnendur hjá Isavia fóru í skemmtiferð í boði Icelandair
Fram­kvæmda­stjóri Flug­stöðvar Leifs Eiríks­sonar Hlynur Sig­urðs­son fór í skemmti­ferð í boði Icelandair árið 2013.

Bæði fram­kvæmda­stjóri, Hlynur Sig­urðs­son, og aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri, Guð­mundur Daði Rún­ars­son, Flug­stöðvar Leifs Eiríks­sonar fóru í dags­ferð þann 15. októ­ber árið 2013 til að sjá seinni lands­leik Íslands og Noregs í und­ankeppni heims­meist­ara­móts­ins í fót­bolta sem haldin var í Osló. Flug­ferðin var alfarið í boði Icelandair en óljóst er hvort önnur útgjöld hafi verið borguð af flug­fé­lag­inu. Þetta herma heim­ildir Stund­ar­innar innan Isavia.

Alvarlegur hagsmunaárekstur

Alvar­leiki máls­ins snýst einna helst um það að Icelandair er aðeins eitt fjöl­margra flug­fé­laga sem stundar við­skipti við Isavia og hefur félagið því mik­inn hag af því að hafa stjórn­endur jákvæða í sinn garð. Með því að þiggja slík boð getur hæg­lega komið til hags­muna­á­rekstra milli Isavia, sem er opin­bert hluta­fé­lag, og Icelandair sem kaupir þjón­ustu af félag­inu.

Sem fram­kvæmda­stjóri flug­stöðv­ar­innar heyrir Hlynur Sig­urðs­son beint undir for­stjóra Isavia, Björn Óla Hauksson. Hlynur situr enn fremur í fram­kvæmda­ráði Isavia. Hann hefur gegnt stöðu fram­kvæmda­stjóra Flug­stöðvar Leifs Eiríks­sonar frá árinu 2010.

Ekki eins og sýnist

Stundin hafði sam­band við Friðþór Eydal, tals­mann Isavia, síðla mið­viku­dags og spurði hvort það teld­ist eðli­legt að fram­kvæmda­stjóri hjá Isavia færi í slíka boðs­ferð. Hann óskaði eftir að fá fyr­ir­spurn­ina senda í tölvu­póst. Henni hefur ekki verið svarað.

Í sam­tali við Stundina í dag neit­aði Hlynur að tjá sig um boðs­ferð­ina. Hann sagði að frétta­til­kynn­ing yrði sendi út „í dag eða á morgun“ vegna máls­ins. „Við erum að skoða þessi mál og við sendum til­kynn­ingu. Nei, ég tjái mig ekki per­sónu­lega um þetta. Þetta er ekki eins og sýn­ist,“ segir Hlynur. Ekki náð­ist í Guðmund Daða Rún­ars­son, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóra, vegna máls­ins.

„Þetta er ekki eins og sýn­ist“

Stundin óskaði eftir við­brögðum frá Guðjóni Arn­gríms­syni, upp­lýs­inga­full­trúa Icelandair. Hann seg­ist koma af fjöllum um málið og ekki geta tjáð sig um flug ein­stakra far­þega. „Spurðu þá bara. Ég get ekki einu sinni stað­fest að þessi ferð hafi verið farin. Ég hef ekki grænan grun um hvað þú ert að tala. Spurðu þá fyrst, þessa ágætu drengi,“ segir Guðjón.

Enn eitt Isavia-málið

Rík­is­fyr­ir­tækið Isavia hefur nú ítrekað verið í fréttum vegna ýmissa mála. Skemmst er að minn­ast frétta­flutn­ings Kast­ljóss á dög­unum þar sem greint var frá því að fyr­ir­tækið hafi greitt fleiri hund­ruð þús­und krónur í ferða­lög eig­in­konu Björns Óla Hauks­sonar, for­stjóra Isavia. 

Við­skipta­blaðið greindi svo frá því að bíla­hlunn­indi væru ríf­lega tvær og hálfar millj­ónir á síð­asta ári. Tíu stjórn­endur hjá rík­is­fyr­ir­tæk­inu hafa bif­reið til afnota.

Uppsögn þriggja yfir­manna við örygg­is­deild Isavia hefur auk þessa verið gagn­rýnd harð­lega. Upp­sagn­irnar voru sagðar vera vegna skipu­lags­breyt­inga sem við nán­ari skoðun stenst ekki. Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur gagn­rýnt þessar upp­sagnir.

„Þeir sátu einir á móti tveimur yfir­mönnum þegar þeim voru sögð ótíð­indin og muna varla orð af því sem sagt var vegna áfalls yfir frétt­unum. Trún­að­ar­maður var ekki boð­aður til stuðn­ings mönn­unum. Það er sárt að horfa á full­fríska menn bogna vegna harka­legra aðgerða yfir­manna sem hvergi þurfa að standa skil á verkum sínum. Fjöl­skyldur þeirra, börn og for­eldrar brotna, öryggi heim­il­is­ins hverfur og eftir sitja góðir menn í þoku von­leysis og kvíða. Á sama tíma líðst yfir­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins að ganga hart fram í starfs­manna­málum og brjóta eigin reglur um sið­ferði og með­ferð fjár­muna fyr­ir­tæk­is­ins og mis­nota aðstöðu sína meðan vamm­lausum starfs­mönnum er sagt upp störfum án þess að hafa nokkuð til saka unnið,“ sagði Ásmundur í umræðu um störf þings­ins síð­ast­lið­inn þriðju­dag.

Við­skipta­blaðið greindi frá því upp­hafi mán­aðar að aðal­menn í stjórn Isavia fá hæst laun af stjórn­ar­mönnum opin­berra hluta­fé­laga á Íslandi. Aðalmenn stjórnar Isavia hafa 137 þús­und krónur í laun á mán­uði og stjórn­ar­for­maður um 300 þús­und krónur.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Isavia

InnlentIsavia

Isavia fær 6,3 millj­arða lán­aða til við­bótar: „Óvissan er engu að síður enn þá veru­leg“

Evrópski fjár­fest­inga­bank­inn hefur sam­þykkt að veita Isavia lán upp á 40 millj­ónir evra sem sam­svarar um 6,3 millj­örðum króna. Þetta kemur fram á vef Isavia. Þar segir að um loka­á­drátt vegna láns upp á 100 millj­ónir evra sem bank­inn veitti félag­inu árið 2018 sé að ræða, lánið er veitt til fram­kvæmda á Kefla­vík­ur­flug­velli. „Þessi fjár­mögnun kemur til við­bótar við fjóra...
InnlentIsavia

Færri far­þegar um Kefla­vík­ur­flug­völl á nýju ári

Reiknað er með að fjöldi far­þega sem fara um Kefla­vík­ur­flug­völl árið 2020 verði tæp­lega 6,7 millj­ónir og fækki því um 7,6% ef miðað er við árið 2019. Þetta kemur fram í far­þeg­a­spá Isavia fyrir árið 2020. Heild­ar­fjöldi komu­far­arfar­þega verður tæpar 2,6 millj­ónir, sem er 1,4% sam­dráttur frá í fyrra, sam­kvæmt spánni. Annað árið í röð fækkar skiptifar­þegum mest. Þeir fara...
InnlentIsavia

Sam­komu­lag WOW og Isavia vegna millj­arð króna skuldar stóðst allt fram í febr­úar

Wow og Isavia lögðu drög að sam­komu­lagi í lok sept­em­ber 2018 vegna millj­arð króna skuld flug­fé­lags­ins á þeim tíma, sem greiða átti í 13 aðskildum afborg­unum sem myndu teygja sig yfir síð­ustu tvo mán­uði árs­ins 2018 og fyrstu 11 mán­uði árs­ins 2019. Skilum sam­kvæmt sam­komu­lag­inu stóðu fram í febr­úar. Morg­un­blaðið greindi frá.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár