„Steingrímur hringdi bálreiður“

Deilt var harkalega um olíumál í herbúðum Vinstri grænna árið 2009. Kolbrún Halldórs­dóttir fyrr­verandi umhverfis­ráðherra lýsir því í viðtals­bókinni Frú ráðherra hvernig „það varð allt brjálað“ þegar hún hvatti til þess að horfið yrði frá áformum um olíuleit og rann­sóknir á Dreka­svæðinu.

Kolbrún Halldórs­dóttir, fyrr­verandi umhverfis­ráðherra og þingkona Vinstri grænna, lenti upp á kant við Steingrím J. Sigfússon, formann flokksins, vegna ummæla um olíuborun á Dreka­svæðinu árið 2009. Þetta kemur fram í í viðtals­bókinni Frú ráðherra eftir Eddu Jóns­dóttur og Sigrúnu Stef­ánsdóttur. Bókin kemur út í tilefni 100 ára afmælis kosninga­réttar kvenna og er þar rætt við Kolbrúnu og nítján aðrar kon­ur sem setið hafa á ráðherra­stóli.

„Kosninga­baráttan var strembin. Flokkarnir voru að berjast fyrir lífi sínu og þegar einungis voru þrír dagar til kosninga tók frétta­maður Stöðvar 2 við mig örlaga­ríkt viðtal um útboð leyfa til rannsókna á Dreka­svæðinu,“ segir Kolbrún þegar rætt er um kosninga­baráttuna í aðdrag­anda þing­kosninganna 2009. Kristján Már Unnarsson, frétta­maður á Stöð 2, óskaði eftir afstöðu umhverfis­ráðherrans til undir­búnings olíu­leitar í Norður-Íshafinu. 

„Ég svaraði auðvitað eins og sönnum umhverfis­ráðherra bar, sagði okkur skylt að standa vörð um hugmynda­fræði sjálf­bærrar þróunar og að hugmyndir um olíuborun færu á svig við þau markmið sem við hefðum sett okkur í loftslags­málum. Það væri óðagot fólgið í því að bjóða út þessi leyfi og það samrýmdist ekki stefnu VG.“ Viðbrögðin létu ekki á sér standa: „Það varð allt brjálað. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Olíuleit á Drekasvæðinu

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár