Starfsmenn BUGL íhuga að segja upp vegna myglu

Fimm starfs­menn BUGL eru á ver­gangi vegna þrá­láts myglu­svepps á deild­inni. Nokkrir íhuga að segja upp. Land­spít­al­inn þarf 300 til 400 millj­ónir á ári í við­hald vegna raka­skemmda.

Fimm starfs­menn barna- og ung­linga­geð­deildar Land­spít­al­ans (BUGL) halda til ann­ars staðar á spít­al­anum vegna myglu­svepps. Nokkrir íhuga nú alvar­lega að segja starfi sínu lausu vegna máls­ins, en um er að ræða sér­hæft starfs­fólk sem fær ekki auð­veld­lega vinnu við hæfi ann­ars staðar og sem verður erfitt að leysa af hólmi innan spít­al­ans. „Það er urgur í fólki og spít­al­inn er að fara að missa, og hefur örugg­lega nú þegar misst, marga færa og reynda starfs­menn,“ segir starfs­maður á göngu­deild spít­al­ans, sem einnig hefur veikst af völdum myglu­svepps, en vill ekki láta nafns síns getið. 

Fyrir um ári síðan fóru starfs­menn BUGL að finna til ein­kenna vegna myglu og í febr­úar var ákveðið að tak­marka þjón­ustu göngu­deild­ar­innar. Í vor var allt bráðateymi BUGL flutt úr hús­inu svo hægt væri að ráða nið­ur­lögum svepps­ins. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar kom síðar í ljós að hús­næðið hefði ekki allt verið yfir­farið og veikt­ust að minnsta kosti fimm starfs­menn stuttu eftir að þeir sneru aftur til starfa. Svepp­ur­inn hefur því í 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár