Sláturtíð er runnin upp

Vertu því við­búin að villimað­ur­inn í þér vakni þegar þú stendur yfir bal­anum, blóð­ugur upp að oln­bogum og hrærir í blóð­mörs­blöndu.

Ein af birt­ing­ar­myndum þess að þjóð­fé­lagið allt er á blússandi upp­leið er að fólk er hætt að deila með sér ráðum í anda hag­sýnna hús­mæðra. Þegar kreppan náði hámarki eftir banka­hrun keppt­ust fjöl­miðlar við að birta ráð um ódýra og hefð­bundna elda­mennsku. Nú les eng­inn slíkt, heldur reiðir fólk fram fram­andi rétti í eld­hús­inu heima, ef það hefur á annað borð tíma til að elda sjálft. Annars fer það bara út að borða. Hefð­bundin mat­ar­gerð er ekki í tísku og það er kjöt­neysla ekki heldur. En þrátt fyrir allt er slát­ur­tíðin byrjuð, svo ef þú vilt synda á móti straumnum, vera öðru­vísi en allir hinir, er þetta einmitt tím­inn fyrir þig til að læra að taka slátur.

  1. Það fyrsta sem þú gerir er að fara út í kjör­búð og kaupa hrá­efni í tvö slátur, sem gefa þér tíu keppi. Þú færð í einum pakka frosið blóð í fötu, heilan poka af hvítri fitu sem kall­ast mör, sjálfa vömb­ina úr lamb­inu litla til að sníða poka úr, nýru þess, hjarta og svið­inn haus­inn. Kauptu líka rúg­mjöl og hafra og nokkuð sem heitir slát­ur­garn. Kannski líka ilm­kerti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár