Reykur í hvalaskoðunarbát: Skipstjórinn einn eftir um borð

Hvala­skoð­un­ar­bát­ur­inn Faldur í hættu skammt undan Húsavík. Farþegum bjargað í annan bát. Eig­in­kona skip­stjór­ans segir hann kunna sitt fag.

Skipstjórinn
Skip­stjór­inn Pétur Olgeirs­son er enn um borð.

Skip­stjóri hvala­skoð­un­ar­báts­ins Faldurs, Pétur Olgeirs­son, er einn eftir um borð í bátnum en fyrr í dag kom upp reykur í véla­rúmi skips­ins. Það var til þess að allir far­þegar voru færðir í björg­un­ar­báta. Eig­in­kona Pétur, Ása Dagný Hólm­geirs­dóttir, var að skima eftir manni sínum við bryggj­una á Húsavík þegar Stundin ræddi við hana. „Ég vildi bara sjá að allt væri í lagi,“ segir Ása. Hún segir að það hafi verið reykur í véla­rúm­inu sem varð til þess að skipið var rýmt.

Að hennar sögn er öll hætta liðin hjá en hún segir þó að sér hafi veru­lega brugðið þegar Pétur hringdi í hana og sagði henni að björg­un­ar­sveit­ar­menn væru um borð. „Þetta bjarg­að­ist vel. Það reynd­ist vera reykur í véla­rúmi. Hann er einn eftir um borð og þetta gengur allt snurðu­laust. Ég er núna niðri á bryggju að kíkja eftir honum. Pétur er mjög reyndur skip­stjórn­ar­maður og kann sitt fag,“ segir Ása. Að hennar sögn fóru far­þeg­arnir í skoð­un­ar­ferð með öðrum bát eftir þeim að hafði verið bjargað.

Báturinn er á vegum hval­skoð­un­ar­fé­lags­ins Gentle Giants en um tutt­ugu og fjórir ferða­menn voru um borð sam­kvæmt frétt Vísis. Samkvæmt Ásu er nú verið að draga bát­inn í land. „Skip­stjór­inn varð var við reyk. Málið er nú leyst,“ segir Stefán Guð­munds­son, eig­andi Gentle Giants, í sam­tali við Stundina.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár