Skeljagrandabróðir réðst á mann á Sogni vegna deilu um tónlist

Stefán Logi Sívars­son hefur verið fluttur úr opna fang­els­inu Sogni eftir átök. Samkvæmt heim­ildum brut­ust þau út vegna deilna um still­ingu á útvarpi.

Skeljagrandabróðir réðst á mann á Sogni vegna deilu um tónlist
Skelja­granda­bróðir Stefán Logi afplánar sex ára fang­els­is­dóm fyrir aðild sína að Stokks­eyr­ar­mál­inu.

 

Stefán Logi Sívars­son, oft kenndur við Skelja­granda, var í gær fluttur af fang­els­inu Sogni fyrir lík­ams­árás á sam­fanga.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar brut­ust út átök milli Stefáns Loga og sam­fanga hans í lyft­inga­salnum í fang­els­inu, með þeim afleið­ingum að bein­brot varð í vinstri augn­tóft sam­fang­ans.

Sendur á Litla-Hraun

„Þeir voru eitt­hvað að ríf­ast um tón­list­ar­val. Sam­fang­inn kom þarna niður og Stebbi var með ein­hverja tón­list á og sam­fang­anum fannst hún of há og lækk­aði í henni. Löggan var þarna allan gær­dag að taka yfir­heyrslur og Stebbi fór beint upp á Litla-Hraun,“ segir heim­ild­ar­maður Stund­ar­innar.

Margrét Frí­manns­dóttir, for­stöðu­maður bæði á Sogni og Litla-Hrauni, neitar að stað­festa að alvar­leg lík­ams­árás hafi átt sér stað á Sogni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fangelsismál

Ofbeldisfangar án betrunar: „Hérna eru menn með vandamál“
ÚttektFangelsismál

Ofbeld­is­fangar án betr­unar: „Hérna eru menn með vanda­mál“

„Er sál­fræð­ingur að vinna hér?“ spurði fangi á Litla-Hrauni þegar hann var inntur eftir því hvort og þá hvenær hann hefði fengið sál­fræði­við­tal. Einn sál­fræð­ingur sinnir 180 föngum sem afplána dóma á Íslandi og ekk­ert sér­hæft úrræði er fyrir fanga sem sitja inni fyrir lík­ams­árásir. Fang­arnir sögð­ust þó myndu þiggja slíka aðstoð ef hún væri mark­viss og í boði.
Barnaníðingur nýtur góðs af breytingu laga um rafrænt eftirlit
FréttirFangelsismál

Barn­a­níð­ingur nýtur góðs af breyt­ingu laga um raf­rænt eft­ir­lit

Í apríl síð­ast­liðnum var þeim Sigurði Ein­ars­syni, Magnúsi Guð­munds­syni og Ólafi Ólafs­syni sleppt út af Kvía­bryggju og á Vernd. Ástæða þess að þeir fengu frelsi fyrr en ella var laga­breyt­ing, sem þing­kona sagði sér­stak­lega smíðuð utan um þessa fanga. Einn af þeim sem nú njóta góðs af þess­ari laga­breyt­ingu er barn­a­níð­ing­ur­inn Sigurður Ingi Þórð­ar­son.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár