Skattafléttur álfyrirtækjanna: Vaxtakjör Norðuráls hjá móðurfélagi sínu tekin út úr opinberum ársreikningi

Skýring með lána­kjörum Norð­ur­áls er ekki birt í árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins. Móð­ur­fé­lag Norð­ur­áls hefur lækkað vexti Norð­ur­áls ehf. niður 5 pró­sentum. Indriði Þor­láks­son segir að fyr­ir­tækið noti fléttur til að kom­ast hjá skatt­greiðslum á Íslandi en Norðurál segir að vaxta­kjör fyr­ir­tæk­is­ins séu ákveðin hjá „óháðum“ aðila.

Skattafléttur álfyrirtækjanna: Vaxtakjör Norðuráls hjá móðurfélagi sínu tekin út úr opinberum ársreikningi
Vaxta­kjörin ekki birt Vaxta­kjör Norð­ur­áls eru ekki birt í árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins en þau er hins vegar að finna í vinnu­gögnum þess. Ragnar Guð­munds­son er for­stjóri Norð­ur­áls sem rekur álverið á Grund­ar­tanga.

Norðurál ehf. sem á og rekur álverið á Grund­ar­tanga birtir ekki upp­lýs­ingar um vaxta­kjör sín gagn­vart móð­ur­fé­lagi sínu í íslenskum árs­reikn­ingi sínum. Þessar upp­lýs­ingar er hins vegar að finna í vinnu­gögnum Norð­ur­áls sem ekki eru gerð opin­ber. Þetta kemur fram í svörum frá upp­lýs­inga­full­trúa Norð­ur­áls, Sólveigu Bergmann. Hver ástæðan er fyrir því að vaxta­kjörin eru ekki tekin fram liggur ekki fyrir.

Stundin fjall­aði um vaxta­greiðslur Norð­ur­áls í síð­asta tölvu­blaði sínu sem út þann 7. jan­úar en þar var meðal ann­ars haft eftir Indriða Þor­láks­syni að fyr­ir­tækið not­að­ist við „fléttu“ til að losna við að greiða til­tekna skatta á Íslandi. Norðurál á umfangs­miklum lána­við­skiptum við móð­ur­fé­lag sitt í Banda­ríkj­unum og námu skuld­irnar í árs­lok 2014 meira en 711 millj­ónum dala og voru vaxta­kjörin 8 til 9,75.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Álver

FréttirÁlver

Alcoa: Laga­setn­ingin hefði ekki haft nein áhrif á 6,2 millj­arða vaxta­greiðslur 2014 og 2015

Vaxt­greiðslur álfyr­ir­tæk­is­ins Alcoa hafa almennt verið undir þeim við­miðum sem kveðið er á um í nýjum lögum um tekju­skatt. Laga­breyt­ingin sem á að koma í veg fyrir skattaund­an­skot slíkra fyr­ir­tækja virð­ist því ekki hafa mikil áhrif. For­stjóri Alcoa segir að fyr­ir­tækið vinni að því að kanna áhrif laga­breyt­ing­ar­innar á starf­semi álfyr­ir­tæk­is­ins.
FréttirÁlver

Óskatt­lagðar vaxta­greiðslur Alcoa úr álver­inu nema 67 millj­örðum króna

Vaxta­greiðslur álvers­ins á Reyð­ar­firði til félags í eigu Alcoa í Lúx­em­borg eru rúm­lega tveimur millj­örðum króna hærri en bók­fært tap álvers­ins á Íslandi. Síðasta rík­is­stjórn breytti lögum um tekju­skatt til að koma í veg fyrir slíka skatta­snún­inga. Indriði Þor­láks­son segir að laga­breyt­ing­arnar séu ekki nægi­lega rót­tækar til að koma í veg fyrir skattaund­an­skot með lána­við­skiptum á milli tengdra félaga.
FréttirÁlver

Stjórn­endur álver­anna væru lög­brjótar í Noregi

Norsk meng­un­ar­lög­gjöf er með tals­vert öðru sniði en sú íslenska. Í henni eru heim­ildir fyrir því að refsa stjórn­endum fyr­ir­tækja sér­stak­lega, fremji þau ítrekað það sem kallað er „meng­un­ar­glæpi“. Reglu­legt eft­ir­lit fag­að­ila með vöktun álvera og hegn­ing fyrir brot á meng­un­ar­lögum, sem er við­tek­inn siður í Noregi, þekk­ist ekki á íslandi.

Mest lesið

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár