Sigríður Björk braut lög og var síðan skipuð lögreglustjóri

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir sendi aðstoð­ar­manni ráð­herra upp­lýs­ingar úr rann­sókn saka­máls - Hanna Birna Krist­jáns­dóttir skip­aði hana svo lög­reglu­stjóra án aug­lýs­ingar

Sigríður Björk braut lög og var síðan skipuð lögreglustjóri

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, braut lög um per­sónu­vernd þegar hún, þá lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum, sendi Gísla Frey Val­dórs­syni, aðstoð­ar­manni Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra, per­sónu­upp­lýs­ingar um mál­efni hæl­is­leit­and­ans Tony Omos. Gísli Freyr var í kjöl­farið dæmdur fyrir að leka per­sónu­upp­lýs­ingum, sem byggðu meðal ann­ars á rann­sókn­ar­gögnum frá Suð­ur­nesjum, í fjöl­miðla. 

Per­sónu­vernd kemst að þess­ari nið­ur­stöðu í úrskurði sínum um aðkomu Sigríðar Bjarkar að leka­mál­inu svo­kall­aða. Kjarninn greinir frá mál­inu í dag, en DV sagði upp­haf­lega frá því þann 13. nóv­em­ber í fyrra að tví­menn­ing­arnir hefðu átt í síma­sam­skiptum dag­inn sem fréttir sem byggðu á per­sónu­upp­lýs­ing­unum birt­ust í fjöl­miðlum.

Gísli Freyr fékk tvo tölvu­pósta með gögnum um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos frá lög­reglu­emb­ætt­inu á Suð­ur­nesjum þann 20. nóv­em­ber árið 2013. Fyrri póst­ur­inn barst honum klukkan 11:04 að morgni og hafði að geyma skýrslu sem rann­sókn­ar­lög­reglu­maður emb­ætt­is­ins tók af Tony 2. októ­ber 2013. Seinni póst­inn sendi Sigríður Björk per­sónu­lega á Gísla um kvöldið, en honum fylgdi grein­ar­gerð um hæl­is­leit­and­ann. Í úrskurði Per­sónu­verndar segir að ekki hafi verið gætt við­un­andi öryggis við miðlun fyrr­nefndra skýrslu­draga til ráðu­neyt­is­ins frá Lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum. Þá áfellist Per­sónu­vernd lög­reglu­stjór­ann fyrir að hafa ekki skráð sam­skiptin í mála­skrá lög­regl­unnar.

Rík­is­sak­sókn­ari fól lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að rann­saka trún­að­ar­brot inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins gagn­vart hæl­is­leit­end­unum Tony Omos og Evelyn Glory Joseph í fyrra. Við rann­sókn­ina beitti Hanna Birna Krist­jáns­dóttir þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra Stefán Eiríks­son lög­reglu­stjóra óeðli­legum þrýst­ingi sam­kvæmt nið­ur­stöðu Umboðs­manns Alþingis.

Hrókeringar í kerfinu
Hróker­ingar í kerf­inu Hörður Jóhann­es­son og Jón H.B. Snorra­son, aðstoð­ar­lög­reglu­stjórar, Stefán Eiríks­son, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Alda Hrönn Jóhanns­dóttir, nýr aðstoð­ar­lög­reglu­stjóri, Sigríður Björk Guð­jóns­son, nýr lög­reglu­stjóri, Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, Gísli Freyr Val­dórs­son, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður inn­an­rík­is­ráð­herra og Þórey Vil­hjálms­dóttir, einnig aðstoð­ar­maður inn­an­rík­is­ráð­herra.

Valdatafl í lögreglunni

Í kjöl­far leka­máls­ins áttu sér hróker­ingar innan lög­regl­unnar. Stefán ákvað að hætta störfum sem lög­reglu­stjóri og í kjöl­farið skip­aði Hanna Birna Sigríði Björk sem lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í hans stað án aug­lýs­ingar. Hörður Jóhann­es­son og Jón H.B. Snorra­son, aðstoð­ar­lög­reglu­stjórar og helstu sam­starfs­menn Stefáns Eiríks­sonar fyrrum lög­reglu­stjóra voru færðir til í starfi eftir að Sigríður Björk tók við emb­ætt­inu. Alda Hrönn Jóhanns­dóttir, helsta sam­starfs­kona Sigríðar Bjarkar frá Suð­ur­nesjum, var sett aðstoð­ar­lög­reglu­stjóri í stað Harðar. Stefán hætti störfum í kjöl­far afskipta Hönnu Birnu af rann­sókn leka­máls­ins en hún sagði af sér sem ráð­herra stuttu eftir að annar aðstoð­ar­manna hennar, Gísli Freyr Val­dórs­son, var dæmdur í fang­elsi vegna máls­ins. Hinn aðstoð­ar­mað­ur­inn, Þórey Vil­hjálms­dóttir, yfir­gaf ráðu­neytið með ráð­herra sínum.

Sigríður Björk hefur forð­ast að svara spurn­ingum fjöl­miðla um málið. Hún ræddi það þó við RÚV í nóv­em­ber. Þar sagð­ist hún ekki hafa gert nein mis­tök í mál­inu, allt hafi verið gert eftir eðli­legum leiðum. Ef ráðu­neytið óski eftir gögnum eigi að afhenti þau. „Ef ráðu­neytið biður um eitt­hvað þá fær ráðu­neytið það sem það biður um. Í fyrsta lagi vissi ég ekki að hann hefði ekki rétt á að fá þetta, hann hringir fyrir ráð­herra. Hann hringir fyrir ráðu­neytið,“ sagði Sigríður Björk. Þá sagð­ist hún eiga flekklausan feril að baki, en verið væri að draga hana niður. „Það er bara verið að stilla þessu svona upp eftir á. Ég er með átján ára flekklausan feril. Þið eruð að draga mig niður ég hef ekk­ert gert ég sendi umbeðin gögn til nýs ráð­herra eða ráðu­neytis sem er minn yfir­maður þannig að það er nú bara staðan í mál­inu.“

Hætti sem lögreglustjóri
Hætti sem lög­reglu­stjóri Eftir að hafa rann­sakað leka­málið og mætt þrýst­ingi inn­an­rík­is­ráð­herra ákvað Stefán Eiríks­son að hætta sem lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og fór að starfa fyrir Reykja­vík­ur­borg.

Hvaða lög voru brotin?

Fyrir liggur að send­ing umræddra gagna voru hvorki skráð hjá lög­regl­unni né inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu. Að mati Per­sónu­vendar fór skortur á skrán­ingu hjá Lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum og inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu í bága við fyrstu og aðra máls­grein 11. greinar og 12. grein laga um per­sónu­vernd og með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga.

Fyrsta og önnur máls­grein 11. greinar snúa að áhættu­mati, öryggi og gæði per­sónu­upp­lýs­inga. Þar segir að ábyrgð­ar­að­ili skuli gera við­eig­andi tækni­legar og skipu­lags­legar örygg­is­ráð­staf­anir til að vernda per­sónu­upp­lýs­ingar gegn ólög­legri eyði­legg­ingu, gegn því að þær glat­ist eða breyt­ist fyrir slysni og gegn óleyfi­legum aðgangi. Þá segir einnig að beita skuli ráð­stöf­unum sem tryggja nægi­legt öryggi miðað við áhættu af vinnsl­unni og eðli þeirra gagna sem verja á, með hlið­sjón af nýj­ustu tækni og kostn­aði við fram­kvæmd þeirra.

12. gr. snýr að innra eft­ir­liti. Er þar kveðið á um að ábyrgð­ar­að­ili skuli við­hafa innra eft­ir­lit með vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga til að ganga úr skugga um að unnið sé í sam­ræmi við gild­andi lög og reglur og þær örygg­is­ráð­staf­anir sem ákveðnar hafa verið.

Innra eft­ir­lit skuli við­haft með reglu­bundnum hætti. Tíðni eft­ir­lits­ins og umfang þess skal ákveðið með hlið­sjón af áhætt­unni sem er sam­fara vinnsl­unni, eðli þeirra gagna sem unnið er með, þeirri tækni sem notuð er til að tryggja öryggi upp­lýs­ing­anna og kostn­aði af fram­kvæmd eft­ir­lits­ins.

Ábyrgð­ar­að­ili skuli sjá til þess að gerð sé skýrsla um hverja aðgerð sem er liður í innra eft­ir­liti. Í slíkri skýrslu skal lýsa nið­ur­stöðu hvers þáttar eft­ir­lits­ins. Skýrslur um innra eft­ir­lit skal varð­veita tryggi­lega. 

Ólöf Nordal, inn­an­rík­is­ráð­herra, mun ekki svara fyr­ir­spurnum fjöl­miðla um málið fyrr en eftir helgi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár