Sendur út í opinn dauðann að mati Samtakanna ´78

Sam­kyn­hneigðum manni frá Íran hefur verið gert að yfir­gefa landið á grund­velli heim­ildar í Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­inni. „Samtökin ´78 syrgja í dag,“ segir í yfir­lýs­ingu þar sem brott­vísun Amír er mót­mælt harð­lega.

Sendur út í opinn dauðann að mati Samtakanna ´78
Amír að læra íslensku Samtökin ´78 segja það þyngra en tárum taki „skiln­ingur á aðstæðum hinsegin flótta­fólks sé ekki meiri en raun ber vitni hjá yfir­völdum hér­lendis.“ Mynd: Heiða Helgadóttir

„Samtökin ´78 syrgja í dag. Góðum vini okkar og sjálf­boða­liða hefur verið gert að yfir­gefa landið og snúa í óvið­un­andi aðstæður á Ítalíu,“ segir í yfir­lýs­ingu sem sam­tökin sendu frá sér í dag. Þar er sagt frá Amír, fag­lærðum sam­kyn­hneigðum hár­greiðslu­manni frá Íran, sem sótti um hæli hér á landi sum­arið 2015.

Amír, sem hefur starfað í sjál­boða­vinnu hér á landi sem hár­greiðslu­maður, á fjölda vina hér á landi og þrátt fyrir að í Íran bíði hans mögu­lega ákæra og dauða­dómur vegna sam­kyn­hneigðar þá hefur honum verið vísað úr landi á grund­velli heim­ildar í Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­inni.

Vann sjálfboðavinnu
Vann sjálf­boða­vinnu Vinir Amírs hjá Sam­tök­unum ´78 segja hann hafa unnið í sjálf­boða­vinnu hér á landi við að klippa og snyrta hár fólks og að hann sé fag­lærður sem slíkur.

Lítill skilningur á aðstæðum hinsegin flóttamanna

„Ekki þarf að fjöl­yrða um aðstæður sam­kyn­hneigðra í Íran en þar er líf okkar sam­fé­lags­hóps í stöðugri hættu. Amír fer þaðan til Ítalíu þar sem hann verður fyrir alvar­legu ofbeldi, sefur á göt­unni, sætir ofsóknum vegna kyn­hneigðar sinnar, er full­kom­lega pen­inga­laus og að auki mat­ar­laus dögum saman. Nú hafa íslensk yfir­völd ákveðið að senda hann á ný til Ítalíu þó hann hafi þar ekki gilt dval­ar­leyfi. Alls óvíst er hvaða veru­leiki bíður hans þar eða hvort hann muni hljóta vernd þar í landi. Ekkert bendir til þess að aðrar aðstæður bíði hans en síð­ast þegar hann var á Ítalíu. Í grein­ar­gerð lög­fræð­ings Amírs kemur fram að ljóst sé að Ítalía geti ekki tryggt mann­sæm­andi aðstæður fyrir hann. Bæði sé aðstaða flótta­fólks óvið­un­andi en að auki séu for­dómar og ofbeldi í garð hinsegin fólks og fólks af erlendum upp­runa land­lægt,“ segir í yfir­lýs­ingu sam­tak­anna sem Stund­inni barst í dag.

Þá segja Samtökin ´78 að það sé þyngra en tárum taki að „skiln­ingur á aðstæðum hinsegin flótta­fólks sé ekki meiri en raun ber vitni hjá yfir­völdum hér­lendis.“

Engin þjálfun fyrir hendi

Einnig kemur fram í yfir­lýs­ing­unni að sam­kvæmt verk­lags­reglum Sam­ein­uðu þjóð­anna um mál­efni hinsegin flótta­fólks, sem Ísland hefur skuld­bundið sig til að fara eftir, ber að fræða starfs­fólk Útlend­inga­stofn­unar sér­stak­lega um hinsegin mál­efni. Á fundi for­svars­manna sam­tak­anna með Útlend­inga­stofnun fyrr á árinu hafi hins­vegar komið í ljós að engin slík þjálfun væri fyrir hendi.

„Nú er ljóst að Amír og aðrir hinsegin hæls­leit­endur gjalda fyrir það. Örlög Amírs eftir brott­vísun hans héðan eru á ábyrgð íslenskra ráða­manna. Við for­dæmum þessi for­kast­an­legu vinnu­brögð. Þeim verður að linna strax.“

Yfir­lýs­ingin í heild sinni:

Samtökin ‘78 syrgja í dag. Góðum vini okkar og sjálf­boða­liða hefur verið gert að yfir­gefa landið og snúa í óvið­un­andi aðstæður á Ítalíu. 

Amír sótti um hæli á Íslandi sum­arið 2015 en hann er sam­kyn­hneigður maður frá Íran. Ekki þarf að fjöl­yrða um aðstæður sam­kyn­hneigðra í Íran en þar er líf okkar sam­fé­lags­hóps í stöðugri hættu. Amír fer þaðan til Ítalíu þar sem hann verður fyrir alvar­legu ofbeldi, sefur á göt­unni, sætir ofsóknum vegna kyn­hneigðar sinnar, er full­kom­lega pen­inga­laus og að auki mat­ar­laus dögum saman. 

Nú hafa íslensk yfir­völd ákveðið að senda hann á ný til Ítalíu þó hann hafi þar ekki gilt dval­ar­leyfi. Alls óvíst er hvaða veru­leiki bíður hans þar eða hvort hann muni hljóta vernd þar í landi. Ekkert bendir til þess að aðrar aðstæður bíði hans en síð­ast þegar hann var á Ítalíu. Í grein­ar­gerð lög­fræð­ings Amírs kemur fram að ljóst sé að Ítalía geti ekki tryggt mann­sæm­andi aðstæður fyrir hann. Bæði sé aðstaða flótta­fólks óvið­un­andi en að auki séu for­dómar og ofbeldi í garð hinsegin fólks og fólks af erlendum upp­runa land­lægt. Þar að auki búi Amír við slæma and­lega heilsu og muni ekki hljóta þá þjón­ustu sem hann þarfn­ast þess vegna á Ítalíu. 

Stjórn­völd á Ítalíu geta auk­in­heldur ekki tryggt að hann hljóti dval­ar­leyfi þar. Amír gæti því beðið brott­vísun til Írans þaðan, en í heima­landi hans liggur dauða­refs­ing við sam­kyn­hneigð.

Inn­an­rík­is­ráðu­neytið hefur úrskurðað að ein­stak­lingar í við­kvæmri stöðu skulu ekki sendir til Ítalíu. Ljóst má vera að Amír er í við­kvæmri stöðu en hann er bæði sam­kyn­hneigður og býr við slæma and­lega heilsu sem meðal ann­ars er afleið­ing af ofbeldi sem hann hefur orðið fyrir. Það er mat Útlend­inga­stofn­unar að þrátt fyrir þetta telj­ist hann ekki vera í við­kvæmri stöðu. 

Samtökin ‘78 mót­mæla þessu mati harð­lega. Það er þyngra en tárum taki að skiln­ingur á aðstæðum hinsegin flótta­fólks sé ekki meiri en raun ber vitni hjá yfir­völdum hér­lendis. Samkvæmt verk­lags­reglum Sam­ein­uðu þjóð­anna um mál­efni hinsegin flótta­fólks, sem Ísland hefur skuld­bundið sig til að fara eftir, ber að fræða starfs­fólk Útlend­inga­stofn­unar sér­stak­lega um hinsegin mál­efni. Á fundi okkar með stofn­un­inni fyrr á árinu kom fram að engin slík þjálfun er fyrir hendi. Nú er ljóst að Amír og aðrir hinsegin hæls­leit­endur gjalda fyrir það. Örlög Amírs eftir brott­vísun hans héðan eru á ábyrgð íslenskra ráða­manna. 

Við for­dæmum þessi for­kast­an­legu vinnu­brögð. Þeim verður að linna strax.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár