Segist aðeins hafa haft aðgang að ráðherranetfangi

Össur Skarp­héð­ins­son sigr­aði í próf­kjöri Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík. Við­ur­kennir að hafa beðið nýbúa um atkvæði sem utan­rík­is­ráð­herra og úr net­fangi ráðu­neyt­is­ins. Var með net­fang á vegum Alþingis á sama tíma.

Össur Skarp­héð­ins­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, hafnar því að hafa boðið fólki íslenskan rík­is­borg­ara­rétt fyrir að kjósa sig í próf­kjöri en við­ur­kennir að hafa sent nýbúum tölvu­póst úr ráð­herra­net­fangi sínu vegna próf­kjara Sam­fylk­ing­ar­innar árið 2012. 

Þetta kom fram í við­tali við Össur sem birt­ist á vef RÚV í gær. Haft er eftir honum að ráð­herra­net­fangið hafi verið það eina sem hafði aðgang að á þessum tíma. „Þar sem erfitt var að ná í allt þetta fólk í síma gripum við til þess að senda bréf og ég sendi nokkur úr þessu net­fangi, af því að öðru var ekki til að dreifa,“ segir hann. 

Ráð­herrar hafa bæði aðgang að net­fangi á vegum Alþingis og net­fangi á vegum ráðu­neyta. Þegar próf­kjörin stóðu yfir árið 2012 var net­fangið ossur@althingi.is gefið upp á vef Alþingis. Ekki kemur fram hvers vegna 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár