Hissa á að hafa verið dæmdur fyrir árás gegn manni sem lamdi hann í höfuðið með kylfu

Daníel Rafn Guð­munds­son var í gær dæmdur í 18 mán­aða fang­elsi fyrir lík­ams­árás á Stefán Loga Sívarts­son. Stefán hafði hótað Daníel líf­láti, kom heim til hans og barði hann í höf­uðið með hafn­ar­bolta­kylfu.

Hissa á að hafa verið dæmdur fyrir árás gegn manni sem lamdi hann í höfuðið með kylfu
Stefán Logi Sívars­son Skelja­granda­bróð­ir­inn hefur marg­sinnis verið dæmdur fyrir ofbeldi, en í hér­aðs­dómi í gær var hann fórn­ar­lambið - þrátt fyrir að hafa lamið árás­armann sinn að fyrra­bragði í höf­uðið með kylfu.

Í gær var Daníel Rafn Guð­munds­son dæmdur í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í átján mán­aða fang­elsi fyrir lík­ams­árás á Stefán Loga Sívars­son, oft kenndan við Skelja­granda. Málið hefur oft verið kennt við Ystasel þar sem atvikið átti sér stað. Í sam­tali við Stundina furðar Daníel Rafn sig á dómnum þar sem allar hans máls­bætur hafi verið sam­þykktar af dóm­ara. Hann seg­ist stefna að því að áfrýja dómnum til Hæsta­réttar sem og að kæra Stefán Loga fyrir lík­ams­árás.

„Þetta átti að vera sýknu­dómur. Það er spurn­ing hvort almenn­ingur vilji hafa svona mál í kerf­inu þar sem menn er dæmdur þegar það er ráð­ist á heim­ili þeirra. Þar sem ráð­ist er á mann með hafna­bolta­kylfu. Má ég ekki verja mig? Mátti ég ekki verja kon­una mína? Mátti ég ekki verja fjöl­skyld­una mína?“ spyr Daníel Rafn.

Daníel var ákærður fyrir að hafa slegið og sparkað í bæði lík­ama og höfuð Stefáns Loga. Samkvæmt dómi brotn­uðu rif­bein, nef og kinn­bein Stefáns Loga. Daníel neit­aði sök en dóm­ari taldi sannað að hann hafi verið sekur um að hafa veit Stefáni Loga þessa áverka.

Mynd úr lögregluskýrslu
Mynd úr lög­reglu­skýrslu Hér má sjá áverka Daníel eftir kylfu­höggið.

Kom óboðinn

Líkt og fyrr segir sam­þykkti hér­aðs­dómur allar máls­bætur Daníels Rafns sem fólu meðal ann­ars í sér að Stefán Logi hafi hótað honum líf­láti. „Rauði þráð­ur­inn í þessu er sá að það var fall­ist á ​mína lýs­ingu á mála­vöxtum að lang­mestu leyti​. Hann kom á heim­ili mitt óboð­inn. Hann var að fram­fylgja líf­láts­hót­unum út af meintu kyn­ferð­is­broti, sem ég var að verja. Hann lemur mig í haus­inn með hafn­ar­bolta­kylfu sem er „basically“ til­raun til mann­dráps í skiln­ingi lag­anna. Spurn­ingin er bara hvernig íslenskt rétt­ar­kerfi virki, hvað er nauð­vörn?“ spyr Daníel Rafn.

Nærmynd af sárinu
Nærmynd af sár­inu Hér má sjá hve slæmt höggið var sem Daníel fékk.

Þekktur ofbeldismaður

Í dómi Daníels, sem Stundin hefur undir höndum, er í kafla um refs­ingu, skaða­bætur og sak­ar­kostnað reif­aðar máls­bætur Daníels:

„Stefán Logi, sem er þekktur ofbeld­is­maður, kom óboð­inn heim til ákærða í fram­haldi af líf­láts­hót­unum“

„Þegar ákærða er ákvörðuð refs­ing verður að líta til þess að árásin á Stefán Loga var sér­stak­lega hrotta­leg og olli umtals­verðu og að nokkru leyti var­an­legu lík­ams­tjóni. Á hinn bóg­inn verður ekki litið fram hjá því að ákærði stóð í þeirri trú að Stefán Logi hefði brotið kyn­ferð­is­lega gegn konu hans, né heldur því að Stefán Logi, sem er þekktur ofbeld­is­maður, kom óboð­inn heim til ákærða í fram­haldi af líf­láts­hót­unum í hans garð. Loks ber að líta til þess að Stefán Logi hafði áður slegið ákærða þungu högg með kylfu í höf­uðið.“

Ekki sjálfgefið að maður drepist

Daníel Rafn bendir enn fremur á skýrslu Kára Stef­áns­sonar læknis​ sem lögð var fyrir dóm­inn en í henni kemur fram að sá sem fái þungt höf­uð­högg geti ​misst stjórn á hegðun sinni​. „Í skýrslu Kára segir að eftir að þú ert búinn að fá ​þungt högg á höf­uðið þá geti það orsakað frá­vik í hegðun og hömlu­leysi þess sem verður fyrir högg­inu.​​​ Maðurinn sem slær þig í haus­inn ​með hafna­bolta­kylfu ​hlýtur að vera ​að minnsta kosti ​að hluta til ábyrgur fyrir því sem ger­ist á eftir. Það er ekki sjálf­gefið að maður detti niður og drep­ist. Ef mað­ur­inn fær heila­hrist­ing og ótt­ast um líf sitt þá hlýtur sá sem slær að vera ábyrgur fyrir því,“ segir Daníel Rafn.

Furðar sig á lögreglu

Daníel Rafn seg­ist enn fremur furða sig á vinnu­brögðum lög­reglu í ljósi þess að Stefán Logi hafi veitt fyrsta höggið. „Ég hef alla tíð litið á þetta sem lík­ams­árás á mig. Hjá lög­reglu ​lýsti ég því yfir​ að ég hefði orðið fyrir lík­ams­árás​. Miðað við hvernig dóm­ur­inn er orð­aður þá er þetta lík­ams­árás á mig. Stefán Logi gaf mér alvar­legt höf­uð­högg​ áður en ég átti að hafa veist að honum. Hann yrði aldrei sýkn­aður af því. Það er furðu­legt af lög­reglu að hafa ekki tekið það upp á eigin spýtur,“ segir Daníel Rafn. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dómsmál

Ógnaði heimilisfólki með heimagerðu sverði
FréttirDómsmál

Ógnaði heim­il­is­fólki með heima­gerðu sverði

Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands dæmdi fyrir skömmu mann fyrir lík­ams­árás, hús­brot og akstur undir áhrifum áfengis. Í lýs­ingum vitna er sagt frá því að mað­ur­inn hafi kýlt heim­il­is­mann sem reyndi að koma í veg fyrir að mað­ur­inn kæmi inn um glugga á hús­inu. Þá er einnig sagt frá því að mað­ur­inn hafi á einum tíma­punkti dregið fram heima­gert sverð á sveiflað því í kringum sig fyrir utan húsið.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár