Isavia hagnast um 2,2 milljarða og ætlar nú að rukka leigubílsstjóra

Isavia hyggst rukka leigu­bíl­stjóra við Leifs­stöð um árgjald

Isavia hagnast um 2,2 milljarða og ætlar nú að rukka leigubílsstjóra
Formaður Fylkis Valur Ármann Gunn­ars­son gagn­rýnir fyr­ir­hug­aða gjald­töku Isavia harð­lega.

Isavia hyggst 1. apríl næst­kom­andi hefja gjald­töku á leigu­bíl­stjórum við Leifs­stöð. Valur Ármann Gunn­ars­son, for­maður bif­reið­ar­stjóra­fé­lags­ins Fylkis á Suð­ur­nesjum, gagn­rýnir þessi áform Isavia harð­lega í sam­tali við Stundina og telur þau raunar ganga gegn stjórn­ar­skrá Íslands. Isavia hyggst rukka leigu­bíl­stjóra 60 þús­und krónur á ári og svo taka aðrar 250 krónur af hverri ferð bíl­stjóra. Valur hefur reiknað heild­ar­kostnað á árs­grund­velli fyrir með­alleigu­bíl­stjóra við Leifs­stöð sem tæp­lega 400 þús­und krónur. Að sögn Vals er það tals­vert meira en þau mán­að­ar­laun sem flestir leigu­bíl­stjórar skammti sér. Aðal­fundur Isavia var haldin á dög­unum og þar kom fram að hagn­aður opin­bera hluta­fé­lags­ins var í fyrra um 2,2 millj­arðar króna.

Skattlagðir sem launþegar

Í athuga­semdum sem Valur sendi Isavia fyrir hönd Bif­reið­ar­stjóra­fé­lags­ins Fylkis færir hann rök fyrir því að leigu­bíl­stjórar séu sjálf­stæðir atvinnu­rek­endur en ekki skráð fyr­ir­tæki og því gildi aðrar reglur um stétt­ina. „Leigu­bif­reiða­stjórar eru sjálf­stæðir atvinnu­rek­endur en eru ekki með skráð fyr­ir­tæki  og því skatt­lagðir sem laun­þegar og bera því fullan skatt af þeirri inn­komu sem eftir stendur að frá­dregnum rekstr­ar­kostn­aði. Skattur er álagður af emb­ætti rík­is­skatt­stjóra og inn­heimtur af rík­is­sjóði og er því ekki í verka­hring hjá Isavia sem er opin­bert hluta­fé­lag,“ segir í bréf­inu.

Óheimilt að skerða atvinnurétt manna

Bréfið gengur raunar lengra og segir að gjald­taka Isavia brjóti í bága við mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu. „Samkvæmt mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu og Sam­ein­uðu þjóð­anna ásamt ákvæði í stjórn­ar­skrá lýð­veldis  Íslands er bannað að skerða rétt manna til að stunda atvinnu sína. Með þess­ari gjald­töku er Isavia tví­mæla­laust að skerða rétt manna til að stunda atvinnu sína því leigu­bif­reiða­stjórar bera mis mikið úr býtum og eiga því mjög mis­jafn­lega auð­velt með að mæta svo gríð­ar­legri gjald­töku  sem raun ber vitni en hún getur numið á árs­grund­velli hátt í um hálfri milj­óna. Þá eru engar líkur á að hægt sé sam­kvæmt þessum sátt­málum eða stjórn­ar­skrá að láta menn greiða gjald fyrir að stunda sína atvinnu,“ segir í bréf­inu.

Borga þrátt fyrir fýluferð

Valur segir að eins og áform Isavia standi nú munu leigu­bíl­stjórar vera rukk­aðir um 250 krón­urnar þó þeir fái ekki far­þega. „Það á að láta okkur borga fyrir að stunda vinn­una okkar sem er alveg stór und­ar­legt. Þeir eru að tala um það rukka okkur um sex­tíu þús­und á ári plús 250 krónur fyrir hverja ferð sem við förum. Þetta nátt­úr­lega þýðir það að við sem erum að sinna þess­ari flug­stöð 24/7, ef við förum upp eftir þá er kannski ein­hver bíl­stjóri kom­inn í milli­tíð­inni sem tekur far­þeg­anna og við förum fýlu­ferð, þá þurfum við samt að borga 250 krónur,“ segir Valur. Hann áætlar að heild­ar­tekjur Isavia af þessar gjald­töku verði um 21 millj­ónir á ári, en hann miðar við að um 50 leigu­bílar sinni þess­ari vinnu og hver fari að með­al­tali fjórar ferð á dag.

Fá skúr og hlið

Í staðin fyrir þetta gjald fá leigu­bíl­stjórar ekki mikla þjón­ustu frá Isavia. Þeim býðst aðstaða í það sem Valur kallar 40 fer­metra skúr þar sem þeir geta horft á sjón­varpið og fengið kaffi. Skúrinn sé þó ekki mikið not­aður af leigu­bíl­stjórum þar sem hann sé úr leið. Auk þessa hefur Isavia reist sér­stakt hlið fyrir leigu­bíl­stjóra og verður krónu­gjaldið rukkað þar.

„Við erum í raun­inni ekki að fá neitt. Við erum faldir á bak við, ekki sýni­legir frá komu­sal. Við erum í raun­inni faldir á bak við aðra þjón­ustu­að­ila, sem eru rút­urnar nátt­úr­lega. Þeir eru með sölu­bása inn í flug­stöð sem við fáum ekki. Við höfum óskað eftir því en þar er leigan svo gríð­ar­leg há að við ráðum ekki við það. Á einu ári ætla þeir að taka 21 millj­ónir úr vasa leigu­bíl­stjóra. Þeir segj­ast hafa lagt í 63 millj­óna kostnað til að setja upp hlið og fleira. Þannig að þeir eru að fá það borgað á þremur árum og halda svo áfram að rukka okkur um 21 millj­ónir á ári,“ segir Valur.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Isavia

InnlentIsavia

Isavia fær 6,3 millj­arða lán­aða til við­bótar: „Óvissan er engu að síður enn þá veru­leg“

Evrópski fjár­fest­inga­bank­inn hefur sam­þykkt að veita Isavia lán upp á 40 millj­ónir evra sem sam­svarar um 6,3 millj­örðum króna. Þetta kemur fram á vef Isavia. Þar segir að um loka­á­drátt vegna láns upp á 100 millj­ónir evra sem bank­inn veitti félag­inu árið 2018 sé að ræða, lánið er veitt til fram­kvæmda á Kefla­vík­ur­flug­velli. „Þessi fjár­mögnun kemur til við­bótar við fjóra...
InnlentIsavia

Færri far­þegar um Kefla­vík­ur­flug­völl á nýju ári

Reiknað er með að fjöldi far­þega sem fara um Kefla­vík­ur­flug­völl árið 2020 verði tæp­lega 6,7 millj­ónir og fækki því um 7,6% ef miðað er við árið 2019. Þetta kemur fram í far­þeg­a­spá Isavia fyrir árið 2020. Heild­ar­fjöldi komu­far­arfar­þega verður tæpar 2,6 millj­ónir, sem er 1,4% sam­dráttur frá í fyrra, sam­kvæmt spánni. Annað árið í röð fækkar skiptifar­þegum mest. Þeir fara...
InnlentIsavia

Sam­komu­lag WOW og Isavia vegna millj­arð króna skuldar stóðst allt fram í febr­úar

Wow og Isavia lögðu drög að sam­komu­lagi í lok sept­em­ber 2018 vegna millj­arð króna skuld flug­fé­lags­ins á þeim tíma, sem greiða átti í 13 aðskildum afborg­unum sem myndu teygja sig yfir síð­ustu tvo mán­uði árs­ins 2018 og fyrstu 11 mán­uði árs­ins 2019. Skilum sam­kvæmt sam­komu­lag­inu stóðu fram í febr­úar. Morg­un­blaðið greindi frá.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár