Samfarþegar Ásmundar Einars urðu fyrir miklum ónotum

Sam­far­þegi þinga­manns­ins lýsir atviki sem varð í flug­vél WOW air á leið til Washington, þar sem þing­maður kastaði upp yfir far­þega.

Samfarþegar Ásmundar Einars urðu fyrir miklum ónotum

Frétt DV fyrr í dag þar sem greint var frá því að Ásmundur Einar Daðason, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, hafi ælt í vél Wow Air á leið til Íslands frá Washington hefur vakið mikla athygli. Ásmundur Einar harð­neitar því að hann hafi verið undir áhrifum áfengis í við­tali við DV og seg­ist hafa verið með maga­kveisu. Nútíminn full­yrðir hins vegar að þing­mað­ur­inn hafi verið ölv­aður í flug­inu, og herma heim­ildir mið­ils­ins að Ásmundur hafi sjálfur gefið þær skýr­ingar að hann hefði drukkið áfengi ofan í svefn­lyf.

Stundin ræddi við Tinnu Margrét Jóhanns­dóttur sem sat fáeinum sætum fyrir aftan Ásmund í flug­inu. Hún segir farir sínar ekki sléttar og lýsir því hvernig æluskvettur þing­mansnins lentu á henni, vin­konu hennar og öðrum far­þegum sem voru í námunda við Ásmund. Þá full­yrðir hún að Ásmundur Einar hafi verið sýni­lega drukk­inn.

„Ég hélt fyrst að hann hefði verið kýldur og ég fatt­aði ekki hvað hafði gerst því hann var allur rauður í framan og skyrtan líka.“

„Skvettist út um allt“

„Ég tók upp sím­ann og tók mynd af vin­konu minni þegar hún frík­aði út. Hún var bara í panikki og stóð bara upp á sæt­inu. Þetta var ógeðs­legt. Þegar við stóðum í röð­inni að bíða eftir að kom­ast út úr landi þá vagg­aði hann. Það skvett­ist á fötin mín. Ég hélt fyrst að hann hefði verið kýldur og ég fatt­aði ekki hvað hafði gerst því hann var allur rauður í framan og skyrtan líka. Það voru skvettur út um allt, í loft­inu og alls staðar. Þetta var við­bjóður,“ segir Tinna Margrét. Stundin hafði sam­band við umrædda vin­konu Tinnu sem stað­festi frá­sögn Tinnu.

Ekki nálægt salerninu

Tinna segir að þær vin­konur hafi þó ekki orðið fyrir mestu gus­unni. „Það voru þarna Amer­ík­anar sem sátu næst honum. Þeir þurftu að skipta um föt. Ég sat nokkrum sæta­röðum fyrir aftan hann. Þetta var ekki nálægt neinu kló­setti, hann þurfti að labba alla vél­ina til að kom­ast á það,“ segir Tinna. Hún ítrekar að hún hafi séð til Ásmundar Einars þar sem hann drakk rauð­vín í flug­vél­inni. „Það var alltaf verið að bera í hann rauð­vínið,“ segir Tinna.

Ætlar í magarannsókn

Ásmundur sagði í sam­tali við DV að ekki væri um hlið­ar­verk­anir áfengis að ræða. „Nei ha? Ég hef aldrei heyrt það áður. Ég er sein­asti þing­mað­ur­inn sem á við áfeng­is­vanda­mál að stríða,“ segir Ásmundur. Hann við­ur­kennir hins vegar fús­lega að hafa ælt. „Meðan ég var úti þá sótti ég mér maga­still­andi lyf. Það er eitt­hvað að mér í mag­anum ef ég á að vera hrein­skil­inn, hef verið að glíma við þetta í heila viku en ég veit ekki af hverju þetta stafar. Ég pant­aði tíma um leið og ég kom heim og er eflaust á leið­inni í ein­hverjar maga­rann­sóknir,“ segir Ásmundur Einar við DV. Ekki náð­ist í Ásmund Einar Daðason við vinnslu fréttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár