Saklaus af árásinni í Mosfellsdal: „Ég á enga samleið með þessu fólki“

Andrea Unn­ars­dóttir var nefnd sem ein hinna hand­teknu í mann­dráps­mál­inu í Mos­fells­dal. Hún er hins vegar frjáls.

Saklaus af árásinni í Mosfellsdal: „Ég á enga samleið með þessu fólki“

„Ég væri ekki að svara í sím­ann ef ég væri í haldi. Ég væri í ein­gangrun. Ég er heima hjá mér á Stokks­eyri. Ég kem ekki nálægt neinu af þessu,“ segir Andrea Unn­ars­dóttir, sem hefur verið rang­lega nefnd í fjöl­miðlum í tengslum við mann­dráp í Mos­fells­dal.

Andrea Unn­ars­dóttir var í morgun nefnd í frétt DV.is sem ein hinna hand­teknu í mann­dráps­máli í Mos­fells­dal, þar sem hópur fólks réðst á karl­mann um fer­tugt með þeim afleið­ingum að hann lést. Fimm karl­menn og ein kona voru hand­tekin.

Andrea er hins vegar ekki í haldi. Orðrómur var um að hún væri meðal hinna hand­teknu, en hún segir að ekki hafi verið haft sam­band við hana áður en frétt um hand­töku hennar var birt á DV.is. Hún þekkir hina hand­teknu, en hefur tekið þá stefnu í líf­inu að koma sér úr tengslum við glæp­a­starf­semi. Í því skyni flutti hún á Stokks­eyri, þar sem hún seg­ist reyna að bæta líf sitt. „Ég teng­ist þessum heimi ekki neitt. Ég er löngu komin í burtu frá þessu öllu saman. Ég er búin að vera að berj­ast við þetta lið allan þennan tíma. Að halda mér í burtu, að halda þeim í burtu. Ég er komin burt úr borg­inni, út úr þessu öllu saman. Síðan þá er búið að stela mót­or­hjól­inu mínu tvisvar, reynt að kveikja í hús­inu mínu, það er búið að keyra yfir hund­inn minn og stinga annan þeirra. Þetta er gert til að koma mér illa.“

DV hefur beðist afsök­unar á rangri nafn­birt­ingu.

Umfjöllun um AndreuAndrea frétti að hún hefði verið til umfjöll­unar sem hand­tekin í mann­dráps­máli.

Andrea var á sínum tíma dæmd fyrir lík­ams­árás og hlaut við­ur­nefnið Andrea „slæma stelpa„. Hún seg­ist vilja losna við að vera tengd við glæp­a­starf­semi. „Ég fæ ekki íbúð, ég fæ ekki vinnu, ég er löngu komin út úr þessu kjaftæði.“

Hún og Jón Trausti Lúth­ers­son, einn hinna hand­teknu í mál­inu, eru æsku­vinir, en hún seg­ist hafa rofið öll tengsl.

„Ég þekki þetta fólk. En ég á enga sam­leið með þessu fólki í dag. Ég er að reyna að berj­ast fyrir börn­unum mínum. Ég er orðin lög­hlýðin. Edrú. Ég er komin út í sveit. Ég vil ekk­ert af þessu fólki inn í mitt líf.“

Árásin á mann­inn í Mos­fells­dalnum var hrotta­fengin. Samkvæmt frétt Vísis var mað­ur­inn heima hjá sér með konu og nýfæddu barni þegar barið var að dyrum og beðið um hann. Þá hafi mað­ur­inn verið bar­inn með járn­kylfum og hann tek­inn háls­taki meðan höggin dundu á honum. Eftir það hafi amer­ískum pall­bíl verið ekið yfir fætur hans.

„Þetta redd­ast aldrei.“

Andrea setti inn Facebook-status í morgun þar sem hún lýsti sorg sinni vegna máls­ins. „Er sorgin og sökn­uður virki­lega allt sem býðst eftir allt? Allir bar­dagar sigr­aðir. Sann­leik­ur­inn fal­legri og ekta. Frelsið áunnið og kost­aði allt. En það sem er ekki hirt er drepið frá manni ... Sjálfs­blekk­ingin blekkir sorg­ina og sökn­uð­inn. Pollý­anna var veru­leikafirrtur kóka­ín­fík­ill, bara svo það sé á hreinu. Þetta redd­ast aldrei.“

Frá vett­vangiKarl­maður um fer­tugt lést eftir hrotta­lega lík­ams­árás.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Manndráp í Mosfellsdal

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár