Hafði nýlega ráðið sig í vinnu sem þroskaþjálfi

Arnar Jónsson Aspar var lærður þroska­þjálfi og mik­ill hesta­maður. Fjöl­skylda hans efast um að til­efni árás­ar­innar hafi verið fíkni­efna­skuld enda hafi Arnar verið edrú. „Hann var ofsa­lega barn­góður og það átti vel við hann að vinna með fötl­uðum,“ segir aðstand­andi.

Hafði nýlega ráðið sig í vinnu sem þroskaþjálfi
Arnar Jónsson Aspar og Heiðdís Helga Aðal­steins­dóttir Arnar og Heiðdís trú­lof­uðu sig í vetur og eign­uð­ust stúlku fyrir ein­ungis tólf dögum. Mynd: Úr einkasafni/Birt með leyfi fjölskyldu

Arnar Jónsson Aspar, sem lést í kjöl­far hrotta­legrar lík­ams­árásar á mið­viku­dag, var lærður þroska­þjálfi og nýbú­inn að ráða sig í vinnu sem slíkur. Hann átti að hefja störf 1. júlí næst­kom­andi. Þetta segir Klara Ólöf Sig­urð­ar­dóttir, móður­syst­ir Heiðdís­ar Helgu Aðal­steins­dóttur, kær­ustu Arnars, í sam­tali við Stundina. „Hann var ofsa­lega barn­góður og það átti vel við hann að vinna með fötl­uðum, en hann vann mikið við það hérna áður fyrr,“ segir hún.  

Síð­ast­lið­inn vetur hafi Arnar hins vegar meðal ann­ars unnið við snjó­mokstur, en á Facebook-síðu hans segir einmitt að hann vinni við snjó­mokstur, söltun og söndum. Þá hafi hann verið á fullu í hesta­mennsku. „Hann var sjálfur með hesta í sveit­inni og tók að sér að temja hesta fyrir aðra,“ segir Klara Ólöf. Arnar var meðal ann­ars virkur með­limur Hesta­manna­fé­lags­ins Harðar í Mos­fellsbæ, var full­trúi æsku­lýðs­nefndar félags­ins fyrir nokkrum árum og tók meðal ann­ars við Æsku­lýðs­bikar Lands­sam­bands hesta­manna­fé­laga árið 2011 fyrir hönd félags­ins. 

„Það vant­aði ekki hjálp­sem­ina í þessum manni.“

„Þetta var ofsa­lega indæll maður,“ segir Klara Ólöf.  „Hann vildi allt fyrir alla gera. Ynd­is­legur náungi og mik­ill dugn­að­ar­forkur. Ef maður hringdi í hann og bað hann um að hjálpa sér, þá var hann kom­inn eftir fimm mín­útur. Það vant­aði ekki hjálp­sem­ina í þessum manni.“

„Hann var óskap­lega hlýr og góður maður og reynd­ist Heiðdísi vel. Þá var hann ofsa­lega góður við afa Heið­dísar en þeir voru miklir vinir. Hann var ein­fald­lega mjög kær­leiks­ríkur,“ sagði góð vin­kona hins látna og Heið­dísar í sam­tali við Stundina, en hún treysti sér ekki til að koma fram undir nafni. 

Fær áfallahjálp eftir helgi

Heiðdís Helga, unnusta Arnars, var á meðal þeirra sem urðu vitni að árásinni. Klara Ólöf segir Heiðdísi Helgu vera í miklu áfalli eftir að hafa horft upp á mis­þyrm­ing­arnar. Það sé prestur hjá henni núna og að eftir helgi fái hún áfalla­hjálp. 

Heiðdís og Arnar eign­uð­ust dóttur þann 27. maí síð­ast­lið­inn og var hún því ein­ungis tíu daga gömul þegar faðir hennar lést. Dóttirin var sof­andi á meðan árásin átti sér stað. Arnar átti eina dóttur úr fyrra sam­bandi, en hún er 15 ára gömul. Dóttirin unga var sof­andi á meðan árásin átti sér stað en auk Heið­dísar urðu for­eldrar Arnars og afi Heið­dísar vitni að árásinni. Eins og fram kom í frétt mbl.is í gær fékk afi í kjöl­farið fyrir hjartað og var fluttur með sjúkra­bíl á sjúkra­hús, þar sem hann dvelur enn. 

Fjölskyldan þvertekur fyrir að um fíkniefnaskuld hafi verið að ræða

Sex hafa verið úrskurð­aðir í gæslu­varð­hald fyrir aðild að manns­drápi, fimm karlar og ein kona, en meðal þeirra eru Jón Trausti Lúth­ers­son, Sveinn Gestur Tryggva­son og bræð­urnir Marcin og Rafat Nabakowski. Menn­irnir fimm verða í gæslu­varð­haldi til 23. júní en konan til 16. júní, en lög­regla fór fram á jafn langt gæslu­varð­hald yfir þeim öllum. 

Sveinn Gestur Tryggvason
Sveinn Gestur Tryggva­son

Atburða­rás mið­viku­dags­kvölds­ins var ítar­lega rakin í Frétta­blað­inu í morgun. Fólkið hafi komið á tveimur bif­reiðum að heim­ili Arnars að Æsu­stöðum í Mos­fells­dal rétt eftir klukkan sex síð­degis, bankað upp á og ráð­ist á hann með bar­smíðum og spörkum fyrir utan heim­ili hans. Einn hinna grun­uðu, Sveinn Gestur, er meðal ann­ars sagður hafa stokkið á bak Arnars og tekið hann háls­taki með vinstri hendi en barið Arnar í and­litið með hinni hend­inni þar til hann missti með­vit­und. Þess má geta að Sveinn Gestur og Arnar eru æsku­vinir. 

Frétta­blaðið greinir einnig frá því að Sveinn Gestur hafi sjálfur hringt á Neyð­ar­lín­una og beðið um sjúkra­bíl. Þá heyr­ist Sveinn hreyta ókvæð­is­orðum að hinum látna um meinta fíkni­efna­skuld. 

Klara Ólöf stendur hins vegar við þau orð að ekki hafi verið um fíkni­efna­skuld að ræða en að öðru leyti viti fjöl­skyldan ekki hvert til­efni árás­ar­innar hafi verið. Hún segir að Arnar hafi verið búinn að vera edrú í mörg ár.

Auglýsti líkamsrækt æskuvinar síns

Sveinn Gestur rekur meðal ann­ars fyr­ir­tækið Aðal Garða­þjón­ust­una, sem sér meðal ann­ars um beða­hreins­anir, snyrt­ingu og grisjun trjá­þyrp­inga, trjá­fell­ingar, tún­þök­u­lögn, hekk­klipp­ingar, hellu­lögn, sól­palla­smíði og allar aðrar lóða- og garð­fram­kvæmdir. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar munu Jón Trausti, Marcin og Rafat allir hafa starfað fyrir garða­þjón­ust­una. 

Þá er Sveinn einnig einka­þjálf­ari og rekur lík­ams­rækt­ina Steve’s gym í Kópavogi. Arnar, hinn látni, aug­lýsti lík­ams­rækt­ina á Facebook-síðu sinni mars og sagði aðstöð­una hjá æsku­vini sínum glæsi­lega. „Allt sem þarf á einum stað, ásamt frá­bærri aðstoð við æfingar auk vand­aðri einka­þjálfun með góðri eft­ir­fylgni. Ég mæli með þessum huggu­lega og frá­bæra stað þar sem árangur lætur sig ekki vanta,“ skrif­aði Arnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Manndráp í Mosfellsdal

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár