Hópur fólks handtekinn eftir manndráp í Mosfellsdal

Karl­maður á fer­tugs­aldri fannst lát­inn í kvöld. Málið er talið tengj­ast hand­rukkun.

Úr Mosfellsdal í kvöld
Úr Mos­fells­dal í kvöld Lög­reglan rann­sakar mann­dráp. Mynd: Pressphotos

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu rann­sakar mann­dráp sem átti sér stað í Mos­fells­dal í kvöld. 

Karl­maður um fer­tugt varð fyrir alvar­legri lík­ams­árás og var fluttur á Land­spít­al­ann í Fossvogi í kjöl­farið. Lög­reglan fékk til­kynn­ingu um árás­ina klukkan 18.24 í kvöld. Fjöl­mennt lið lög­reglu fór á vett­vang.

„Rannsókn máls­ins er umfangs­mikil, en fimm karlar og ein kona hafa verið hand­tekin í þágu hennar,“ segir í til­kynn­ingu frá lög­reglu sem barst fyrir nokkrum mín­útum.

Lög­reglan segir að ekki sé unnt að veita frek­ari upp­lýs­ingar um málið að svo stöddu. 

Fram kemur í frétt Rúv að málið sé talið tengj­ast hand­rukkun. Þá segir að hinir hand­teknu hafi áður komið við sögu lög­regl­unnar. Tveir hafi verið hand­teknir á Vest­ur­lands­vegi, nálægt Úlf­ars­felli milli Mos­fells­bæjar og Reykja­víkur. Lögregla vildi hins vegar ekki stað­festa við Rúv að hand­tök­urnar tengd­ust mál­inu. 

Einn hinna hand­teknu er Jón Trausti Lúth­ers­son, for­sprakki bif­hjóla­sam­tak­anna Outlaws, sam­kvæmt fréttum Rúv. Þá hefur einnig komið fram að bræð­urnir Marcin og Rafal Nabakowski séu meðal hinna hand­teknu, en þeir voru dæmdir vegna skotárásar í Breið­holti og bíða afplán­unar vegna þess dóms.

Frá vett­vangiMálið er talið tengj­ast hand­rukkun, sam­kvæmt frétt Rúv, en lög­reglan stað­festir það ekki.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Manndráp í Mosfellsdal

Mest lesið

4
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár