„Gefinn plús fyrir erlenda peninga“

Enginn erlendur banki kom að kaup­unum á Bún­að­ar­banka Íslands. Ólafur Ólafsson setti ekki krónu af eigin fé í fjár­fest­ing­una en hagn­að­ist þó gríð­ar­lega á henni.

„Gefinn plús fyrir erlenda peninga“
Ólafur Ólafsson Var sagður „prímus­mót­or­inn“ að baki til­boði S-hóps­ins.

Ólafur Ólafsson kom ekki með neitt eigið fé inn í við­skiptin um kaup á hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum. Honum tókst að blekkja ríkið á þann veg að erlendur banki ætl­aði að taka þátt í fjár­fest­ing­unum, og hagn­að­ist að lokum gríð­ar­lega á flétt­unni. Þetta kemur fram í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans.

Frá upp­hafi sölu­ferlis íslensku bank­anna, seint á árinu 2002, var ljóst að kæmi erlendur aðili að kaup­unum væri lík­legt að við­kom­andi kaup­endur væru séðir í jákvæðu ljósi. Eins og for­maður fram­kvæmda­nefndar um sölu bank­anna sagði á einka­fundi með full­trúum S-hóps­ins, væri „gef­inn plús fyrir erlenda pen­inga“.

Ólafur safn­aði saman nokkrum íslenskum fyr­ir­tækjum með nægt fjár­magn til þess að geta staðið að kaup­unum. En hann þurfti einnig að fá erlent nafn með sér í hóp­inn til þess að gera til­boðið það allra væn­leg­asta, og þannig kemur til að starfs­menn franska bank­ans Societe General voru fengnir með í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár