Rúmlega tvítugur í stefnumótun með tæpa hálfa milljón fyrir hálft starf

Gauti Geirsson 22 ára nemi, mun vinna að stefnu­mótun í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu. Aðstoð­ar­menn Gunnars Braga Sveins­sonar rata ítrekað í fréttir. Hefð er fyrir reynslu­meiri aðstoð­ar­mönnum í ráðu­neyt­inu.

Rúmlega tvítugur í stefnumótun með tæpa hálfa milljón fyrir hálft starf

Ungur aldur Gauta Geirs­sonar, nýs aðstoð­ar­manns Gunnars Braga Sveins­sonar utan­rík­is­ráð­herra, hefur vakið tals­verða athygli frá því til­kynnt var um ráðn­ing­una í gær. Gauti er 22 ára og leggur stund á rekstr­ar­verk­fræði í Háskól­anum í Reykja­vík en hefur áður starfað sem háseti og vél­stjóri á tog­ara og far­þega­skipum, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu. Gauti verður í hálfu starfi í ráðu­neyt­inu sam­hliða námi. Mán­að­ar­laun aðstoð­ar­manna eru tæp­lega 900 þús­und krónur.

Fjöl­margir hafa lýst furðu sinni vegna ráðn­ing­ar­innar á sam­fé­lags­miðlum, þar á meðal eru Illugi Jök­uls­son rit­höf­undur og Sveinn Andri Sveins­son lög­maður. „Með fullri virð­ingu fyrir þessum unga manni, en væri það ekki skyn­sam­legra fyrir ráð­herra, sem kom inn í sitt starf alger­lega blautur á bak við eyrun, að ráða til sín aðstoð­ar­mann, hok­inn af reynslu og með þekk­ingu á sviði utan­rík­is­mála?“ spyr Sveinn Andri Sveins­son lög­maður. „Sagan segir okkur nefni­lega, að þeir stjórn­mála­menn hafa verið far­sæl­astir sem hafa haft góða ráð­gjafa í kringum sig.“

Vinnur að stefnumótun

Þá sá Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð­ar­maður for­sæt­is­ráð­herra, ástæðu til að bera í bætifláka fyrir Gauta. „Ég sé á glós­unum sem nýr aðstoð­ar­maður utan­rík­is­ráð­herra þarf að þola frá ýmsu and­ans fólki hér í dag að ekk­ert þeirra hefur nokkru sinni verið ungt og dug­legt né nokkru sinni fengið tæki­færi til góðra verka byggt á eigin verð­leikum og dugn­aði. Það er ósköp leið­in­legt,“ skrif­aði Jóhannes Þór á Facebook-síðu sína í gær. 

Í lögum um Stjórn­ar­ráð Íslands segir að meg­in­hlut­verk aðstoð­ar­manns ráð­herra sé að vinna að stefnu­mótun á mál­efna­sviði ráðu­neytis undir yfir­stjórn ráð­herra og í sam­vinnu við ráðu­neyt­is­stjóra. Þess ber að geta að Stefán Haukur Jóhann­es­son gegnir nú starfi ráðu­neyt­is­stjóra í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu, en áður var hann aðal­samn­inga­maður Íslands vegna við­ræðna um aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu. Að auki var hann yfir­maður eins af eft­ir­litsteymum ÖSE í Úkraínu árið 2014 og var for­maður samn­inga­nefndar um aðild Rúss­lands að WTO, svo eitt­hvað sé nefnt. Gauti var spurður um reynslu sína af utan­rík­is­málum í við­tali á Vísi í gær. „Ég hef alla­vega mjög mik­inn áhuga á þeim,“ segir hann. „Ég fór í eitt ár í reisu til Afríku og Asíu og ég hef alltaf haft mik­inn áhuga á, og fylgst vel með, utan­rík­is­málum.“

Ekki náð­ist í Gauta við vinnslu þess­arar fréttar.

Aðstoðarmenn í fréttum

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem fréttir af ráðn­ingum aðstoð­ar­manna Gunnars Braga vekja athygli. Þannig vakti til dæmis athygli þegar hinn 27 ára Ágúst Bjarni Garð­ars­son var ráð­inn til að sinna tíma­bundnum verk­efnum á skrif­stofu utan­rík­is­ráð­herra í mars á síð­asta ári. Í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu kom ekki fram hver þessi tíma­bundnu verk­efni voru en Ágúst Bjarni er stjórn­mála­fræð­ingur að mennt og leggur stund á MPM nám við Háskól­ann í Reykja­vik. Hann er jafn­framt for­maður Sambands ungra fram­sókn­ar­manna og odd­viti flokks­ins í Hafn­ar­firði. 

Þá vakti athygli þegar fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Gunnars Braga, Margrét Gísla­dóttir, var færð yfir í tíma­bundin sér­verk­efni í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu í apríl árið 2014. Verk­efnið átti upp­haf­lega að vera til tveggja mán­aða, en Margrét átti ekki aft­ur­kvæmt í utan­rík­is­ráðu­neytið og lét af störfum í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu í jan­úar á síð­asta ári. Í mars full­yrti Séð og heyrt að Margrét hefði verið færð að beiðni þáver­andi eig­in­konu Gunnars Braga en í sam­tali við Stundina sagði Margrét sögu­sagnir um meint sam­band sitt við Gunnar Braga birt­ing­ar­mynd kven­hat­urs í sam­fé­lag­inu.   

Auk Gauta er Sunna Gunnars Mart­eins­dóttir aðstoð­ar­maður ráð­herra en hún er með BA gráðu í almanna­tengslum frá Uni­versity of Westminster. Þá hefur hún starfað sem skrif­stofu­stjóri þing­flokks Fram­sókn­ar­flokks­ins frá 2010 og var aðstoð­ar­maður kosn­inga­stjóra flokks­ins árið 2009.

Liður í pólitískum frama

Engar reglur gilda um ráðn­ingu aðstoð­ar­manna ráð­herra og ekki er nauð­syn­legt að aug­lýsa stöð­urnar. Til árs­ins 2011 var ein­ungis heim­ilt að ráða einn aðstoð­ar­mann með hverjum ráð­herra en þeim fjölg­aði með nýjum stjórn­ar­ráðslögum. Í nýlegri grein eftir Gest Pál Reyn­is­son, stjórn­mála- og stjórn­sýslu­fræð­ing, og Ómar H. Krist­munds­son, pró­fessor við Háskóla Íslands, er bak­grunnur aðstoð­ar­manna ráð­herra árin 1971 - 2014 skoð­aður. Þar eru meðal ann­ars dregnar þær álykt­anir að mestu skipti við val ráð­herra á aðstoð­ar­manni að hann hafi áður starfað innan flokks ráð­herra og ráð­herra þekki hann per­sónu­lega. Fáir aðstoð­ar­menn hafa starfa sem sér­fræð­ingar á mála­sviði ráð­herra en um þriðj­ungur aðstoð­ar­manna hafði starfað innan fjöl­miðla eða að almanna­tengslum. Þá virð­ist sem ráð­herrar bæti ekki upp eigið reynslu­leysi í emb­ætti með reynslu­miklum aðstoð­ar­mönnum. Greini­legt er að fyrir hluta aðstoð­ar­manna er starf hjá ráð­herra liður í póli­tískum frama sem end­ur­spegl­ast í þeim fjölda aðstoð­ar­manna sem boðið hefur sig fram til Alþingis eða sveit­ar­stjórnar og jafn­vel hlotn­ast emb­ætti ráð­herra, eins og segir í grein­inni.

Innan utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins hefur verið hefð fyrir reynslu­meiri aðstoð­ar­mönnum á síð­ustu árum. Þannig var aðstoð­ar­maður Össurar Skarp­héð­ins­sonar, Kristján Guy Burgess, með meist­ara­próf í alþjóða­stjórn­málum og alþjóða­lögum. Áður en hann tók við sem aðstoð­ar­maður ráð­herra sinnti hann ráð­gjöf á sviði alþjóða­mála. 

Þá var Kristrún Heim­is­dóttir aðstoð­ar­maður Ingi­bjargar Sólrúnar Gísla­dóttur þegar hún gegndi stöðu utan­rík­is­ráð­herra. Kristrún hafði áður starfað sem lög­fræð­ingur hjá Samtökum iðn­að­ar­ins og Umboðs­manni Alþingis, verið fram­kvæmda­stjóri Reykja­vík­ur­aka­dem­í­unnar og frétta­maður hjá RÚV. 

Val­gerður Sverr­is­dóttir var með tvo aðstoð­ar­menn á meðan hún var utan­rík­is­ráð­herra. Fyrst Sigfús Inga Sig­fús­son, en hann er með MBA gráðu frá Stirling háskóla í Skotlandi og starf­aði áður í iðn­aðar- og við­skipta­ráðu­neyt­inu, og síðar Aðal­heiði Sig­ur­sveins­dóttur, sem einnig er með MBA gráðu frá Háskól­anum í Reykja­vík með sér­stakri áherslu á stjórnun í alþjóð­legu umhverfi og raf­ræna við­skipta­hætti. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár