Reykjavíkurborg krefst þess að Sigmundur víki sæti vegna bloggskrifa

Deilt er um hvort frið­lýsa skuli hafn­ar­garð­inn á lóð­inni Aust­ur­bakka 2 í Reykja­vík. Borg­ar­lög­maður segir að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hafa komið að mál­inu á fyrri stigum og því van­hæfan til að taka afstöðu til frið­lýs­ing­ar­til­lög­unnar.

Reykja­vík­ur­borg gerir þá kröfu að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra víki sæti við með­ferð til­lögu Minja­stofn­unar Íslands um frið­lýs­ingu hafn­ar­garðs­ins á lóð­inni Aust­ur­bakka 2 í Reykja­vík. Þetta kemur fram í athuga­semdum borg­ar­lög­manns sem sendar voru for­sæt­is­ráðu­neyt­inu þann 9. októ­ber síð­ast­lið­inn. Í bréf­inu er því haldið fram að með frið­lýs­ingu yrði gengið miklu lengra en nauð­syn­legt geti talist til að tryggja vernd og varð­veislu hafn­ar­garðs­ins.

Samkvæmt lögum um menn­ing­arminjar kemur það í hlut ráð­herra að frið­lýsa menn­ing­arminjar, eða afnema frið­lýs­ingu þeirra, að feng­inni til­lögu Minja­stofn­unar. Sú stofnun heyrir nú undir for­sæt­is­ráð­herra og dregur borg­ar­lög­maður í efa stjórn­sýslu­legt hæfi Sig­mundar Davíðs til þess að taka afstöðu til þess erindis Minja­stofn­unar sem hér er fjallað um. 

„Í fyrsta lagi skal bent á að í grein á heima­síðu sinni, sig­mund­ur­da­vid.is, sem birt­ist hinn 27. ágúst sl., fjallar for­sæt­is­ráð­herra um ugg­væn­lega þróun í skipu­lags­málum borg­ar­innar eins og hann kýs að kalla það,“ segir í bréfi Krist­bjargar Steph­en­sen borg­ar­lög­manns.

Er bent á að í nið­ur­lagi grein­ar­innar hafi for­sæt­is­ráð­herra sér­stak­lega vísað til umrædds hafn­ar­garðs. Orðrétt skrif­aði for­sæt­is­ráð­herra: „Forn­leifar sem fund­ust á lóð­inni við hlið Iðn­að­ar­banka­húss­ins verða frið­aðar sem og hafn­ar­garð­ur­inn við hinn enda Lækj­ar­göt­unnar.“ 

Þegar komið að málinu

Einnig kemur fram að for­stöðu­maður Minja­stofn­unar hafi upp­lýst um það á fundi borg­ar­ráðs 1. októ­ber að for­sæt­is­ráð­herra hefði nú þegar komið að mál­inu á fyrri stigum. „Upplýsti for­stöðu­mað­ur­inn um að ráð­herra hefði á fundi í ráðu­neyt­inu síð­ast­liðið sumar fengið kynn­ingu frá stofn­un­inni á því sem komið hefði í ljós við forn­leifa­rann­sóknir á svæð­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár