Píratar ekki með í þverpólitísku útlendingafrumvarpi

Helgi Hrafn Gunn­ars­son segir „frá­leitt að setja í lög að rétt­ar­á­hrifum verði ekki frestað“ og telur það „gríð­ar­lega aft­ur­för að taka burt rétt umsækj­anda til að koma fram fyrir kæru­nefnd­ina“.

Píratar ekki með í þverpólitísku útlendingafrumvarpi

Píratar eru eini flokk­ur­inn á Alþingi sem ekki tekur þátt í flutn­ingi frum­varps til laga um breyt­ingu á útlend­inga­lögum. Meiri­hluti alls­herjar- og mennta­mála­nefndar lagði fram frum­varpið síð­ast­lið­inn föstu­dag, en Helgi Hrafn Gunn­ars­son, full­trúi Pírata í nefnd­inni, telur frum­varpið ekki vera til þess fallið að tryggja hæl­is­leit­endum sann­gjarna og skil­virka máls­með­ferð. „Auðvitað gengur flutn­ings­mönnum gott eitt til, en ég er samt bara ekki sam­mála þeim um að þetta sé rétt leið,“ segir hann í sam­tali við Stundina. 

Flutn­ings­menn eru þau Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, for­maður nefnd­ar­innar, og Vil­hjálmur Árnason úr Sjálf­stæð­is­flokknum, Líneik Anna Sæv­ars­dóttir, Karl Garð­ars­son og Haraldur Ein­ars­son úr Fram­sókn­ar­flokknum, Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir úr Sam­fylk­ing­unni, Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir úr Vinstri grænum og Róbert Marshall úr Bjartri fram­tíð. Verði frum­varpið að lögum munu stjórn­völd geta sent hæl­is­leit­endur sem koma frá „öruggum upp­runa­ríkjum“ úr landi um leið og Útlend­inga­stofnun hefur úrskurðað í málum þeirra. Í þessu sam­hengi er vísað til hæl­is­um­sókna sem séu „ber­sýni­lega til­hæfu­lausar“. Auk þess verða hæl­is­leit­endur sviptir rétt­inum til að koma fram fyrir kæru­nefnd útlend­inga­mála. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár